Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 15
Tel að stjórnin hafi farið vel af stað Þið eruð ekki heimsk, eða hvað? Fannst eins og hjart- að væri að springa Bjarni Benediktsson gefur stjórninni góða einkunn. – SprengisandurSighvatur Björgvinsson snuprar Evrópusinnaða Sjálfstæðismenn. – FréttablaðiðElfari Þór Erlingssyni var nauðgað á skólaballi. – DV Öfugsnúin tilvera Spurningin „Ég hef nú ekki alveg myndað mér skoðun á því en tel auðlegðar- skatt þó óréttlátan fyrir marga.“ Ester Brynjólfsdóttir upplýsingastjóri hjá Höfuðborgarstofu „Mér finnst réttlátt að þeir sem eiga miklar eignir greiði aðeins meira til samfélagsins.“ Ólafur Ingi Eiríksson verslunarmaður „Ég er ekki nógu vel inni í hvað þessi ákveðni skattur felur í sér. Heilt yfir er ég samt mótfallinn aukasköttum hvers kyns.“ Sigurkarl Rúnarsson ferðaþjónustuaðili „Ég hef alla tíð verið á móti þess- um skatti og er á móti núna.“ Valdimar Þór Haraldsson bílstjóri „Ég hef bara ekkert kynnt mér um hvað þetta snýst. Betra samt ef allir greiða jafnt.“ Daníel Sigmundsson nemi Hvað finnst þér um afnám auð- legðarskattsins? 1 Flúði skólann eftir nauðgun Elfar var ofurölvi á skólaballi þegar stúlka misnotaði hann kynferðislega. 2 Mjúkar konur eru eins og eiturlyf Athyglisverðar niðurstöður könnunar í Bandaríkjunum. 3 Reykjanesbraut lokuð eftir harðan árekstur Umferðarslys við Vellina í Hafnarfirði á mánudagskvöld. 4 Tiger féll niður á hnén vegna verkja Kylfingurinn knái fann fyrir sárum verkjum á lokadegi Barclays-mótsins á sunnudag. 5 Hvatti til „léttra“ barsmíða á þingmönnum Óskari Helga var hent út af Mogga- blogginu fyrir að hvetja til ofbeldis. 6 Toll stjóri: Ekki láta gabba þig Einstaklingar, búsettir erlendis, bjóð- ast til að kaupa varning fyrir Íslendinga og senda gegn þóknun. 7 Solla: „Við erum bara öll í sjokki“ Spergilkáli stolið úr garði foreldra Sólveigar Eiríksdóttur á Gló. Mest lesið á DV.is Þ egar ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð á seinni hluta áttunda áratugarins og í Há- skóla Íslands árin þar á eftir voru vinstri róttæklingar fjölmennir, bæði í hópi nemenda og kennara. Þeir ýmist kenndu sig við Karl Marx eða sómamennina Lenín, Stalín, Trotsky og Mao. Gengu með komm- únistastjörnuna í barminum eða húf- unni og boðuðu sósíalíska byltingu með góðu eða illu, enda ekki tekið mark á „Moggalyginni“ um fyrir- myndarríkin í austri. Þá var helst talað um auðvaldið og arðránið á ör- eigum þessa lands. Þjóðnýta skyldi eignir auðvaldsins í nafni réttlætis. Svo merkileg þótti þessi hugmynda- fræði um langt árabil, að úr varð fræðigrein, hinn vísindalegi sós- íalismi, og kennd víða við háskóla á Vesturlöndum í allnokkrum til- brigðum, enda ekki einföld fræði. Meðal kennsluefnis í menntaskól- anum mínum voru valdar greinar úr tímaritinu Rétti, sem ritstýrt var út af Einari Olgeirssyni, einum helsta leið- toga íslenskra kommúnista í áratugi. Það tímarit var eins konar Pravda ís- lenskra vinstri róttæklinga í hálfa öld, ásamt auðvitað dagblaði þeirra Þjóð- viljanum. Auðvitað voru flestir þessara vinstri róttæklinga hinir mætustu menn þótt mikils ofstækis gætti hjá hinum heittrúuðustu eins og geng- ur og gerist. Við hugmyndafræði- legt og efnahagslegt hrun komm- únismans í lok níunda áratugarins breyttist umræðan sjálfkrafa hér á landi, nánast eins og hendi væri veif- að. Engin eftirspurn var eftir öreiga- byltingunni lengur. Nú skilgreindu gamlir róttæklingar á vinstri vængn- um og aðrir vinstri menn sig sem félagshyggjufólk, hvað sem það nú þýðir. Hafa þeir reynt að sameinast í einum flokki alla tíð síðan. En vanda- málið við þá sameiningu er að stór hluti „félagshyggjufólksins“ hefur aldrei almennilega getað falið andúð sína á hinu klassíska vestræna mark- aðshagkerfi og frelsi einstaklingsins. Vinstri róttæknin hvarf hins vegar ekki, heldur lagðist í dvala. Og svo kom bankahrunið og kreppan eft- ir tuttugu erfið ár í þögninni. Því- lík himnasending! Og nú var lag hjá þeim, sem engu höfðu gleymt. Gamlir aðdáendur Marx og þeirra félaga tóku að gera sig gildandi í umræðunni á ný og rykið var dustað af gömlu frös- unum úr menntaskólanum um auð- valdið, arðránið og öreigana. Þeir sem stunda viðskipti eru aftur orðn- ir braskarar og þeir sem eiga og reka stórfyrirtæki eru glæpamenn svo ekki sé nú talað um hin skelfilegu fjár- málafyrirtæki. Í kjölfar bankahrunsins þurfti ekki að gera byltingu. Vinstri menn komust til valda í lýðræðislegum kosningum, með niðurstöðu sem átti sér enga hliðstæðu í Íslands- sögunni. Og hvað gerðist? Allar auð- lindir áttu að verða eign ríkisins þótt notuð væri hugtök eins og „sameign þjóðar“. Taka átti hagnað heimila og fyrirtækja í ríkissjóð til að eiga fyr- ir allri samneyslunni í stað þess að haga útgjöldum í samræmi við tekjur. Hugarfarið var þannig að sá hagn- aður fólks og fyrirtækja, sem ekki var tekinn í ríkissjóð væri gjöf. Sjálfsagt þótti að þjóðnýta nettóeignir fólks umfram 75 milljónir með auðlegðar- skatti, þótt viðkomandi hefði engar tekjur til að greiða slíkan skatt. Það er enginn munur á því að þjóðnýta eignir með ofursköttum eða með einu pennastriki í stjórnarráðinu. Hér var strax farið í smiðju sósíalismans í efnahagsmálum, þótt fyrir lægi að sú hugmyndafræði væri dæmd til að mistakast og leiddi í raun til örbirgðar á endanum og sameiginlegrar eymd- ar. Þetta ágæta fólk hafði í reynd engu gleymt og ekkert lært. Það var kannski ekkert skrítið að þessi hugmyndafræði sósíalismans ætti greiða leið að fólki í kjölfar kreppu og þrenginga vegna banka- hrunsins. En auðvitað áttaði fólk sig fljótlega á því að þessi gamla og löngu úrelta hugmyndafræði var ekki lausnin á vandanum. Því var fyrstu tæru vinstri stjórninni hafn- að strax í næstu kosningum og það með slíkum stæl og tilþrifum að met var slegið. Vonbrigði og reiði vinstra manna varð hins vegar mikil vegna þeirrar niðurstöðu. Svo mikil er reiðin og heiftin að byltingin er aft- ur komin í umræðuna. Skipulagðar eru rógsherferðir gegn ríkisstjórn- inni og borgaralegum frjálslyndum öflum og hliðhollir fjölmiðlamenn og bloggarar eru allir virkjaðir. Nú er hamrað á því að þeir sem reynt hafa að vernda vestrænt lýðræði og frelsi einstaklingsins séu öfgafullir, gjarn- an kallaðir hægri öfgamenn. Sumir ganga svo langt að tengja þá við fas- isma þrátt fyrir að sú hugmynda- fræði sé nú upphaflega afsprengi kommúnismans. Eru það helst þeir sem boðuðu marxísku byltinguna á menntaskólaárum mínum og það með ofbeldi ef ekki vildi betur. Svona getur tilveran verið öfugsnúin. n Notaleg stund Þessir erlendu ferðamenn nutu góða veðursins í höfuðborginni síðdegis á þriðjudag og tylltu sér á bekk við Reykjavíkurhöfn. MyNd KristiNN MagNússoNMyndin Kjallari Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokks Umræða 15Miðvikudagur 28. ágúst 2013 „Vinstri róttæknin hvarf hins vegar ekki, heldur lagðist í dvala.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.