Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Side 22
22 Menning 28. ágúst 2013 Miðvikudagur Ríkir og fátækir í framtíðartrylli n Handritið að Elysium varð til í hruninu L eikstjórinn Neil Bloomkamp sló í gegn með myndinni District 9 fyrir nokkrum árum. Myndin var vísindaskáldsaga sem fjallaði þó öðrum þræði um „apartheit“-tímabil- ið í sögu Suður-Afríku. Myndin fékk fjórar óskarsverðlaunatilnefningar, meðal annars sem besta myndin, og kom Neil Bloomkamp á kortið sem einum af efnilegri leikstjórum sinnar kynslóðar. Elysium er, líkt og District 9, vís- indaskáldsaga. Myndin gerist árið 2154 þegar Jörðin er orðin handónýt, allt of fjölmenn og íbúar hennar fá- tækir og vesælir. Flestir vilja komast til Elysium sem er sérhönnuð paradís hinna ríku, en Rhodes ráðherra (Jodie Foster) heldur jarðlingum frá geim- stöðinni hvað sem það kostar. Þegar jarðarbúinn Max (Matt Damon) er kominn á endastöð í sínu lífi, ákveður hann að leggja allt undir og heldur af stað í háskaför til Elysium. Þar með setur hann af stað æsispennandi atburðarás sem sker úr um framtíð plánetunnar. Neil Bloomkamp hefur sagt í við- tölum að hann hafi fengið hug- myndina að myndinni í efnahags- hruninu og verið fljótur að skrifa handritið. Stórleikararnir Matt Damon og Jodie Foster fara með aðalhlutverk- in í myndinni sem hefur fengið mis- jafna dóma í erlendum fjölmiðlum. Reyndar hafa flestar stórmyndir sum- arsins ekki átt góðu gengi að fagna í kvikmyndahúsum. Disney tapaði til að mynda hundruðum milljóna á myndinni The Lone Ranger, sem er eitt stærsta flopp síðustu ára. Elysium er frumsýnd á miðviku- daginn, 28. ágúst, í Smárabíói, Há- skólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. n Stórkostleg vonbrigði„ Kick-Ass 2 tekur upp þráðinn nokkurn veginn þar sem frá var horfið þótt persónurnar séu orðnar aðeins eldri. Myndasögunni er fylgt áfram en dæmið sem gekk svo fullkomlega upp áður gengur ekki upp núna. Ferskleikinn er farinn af þessu öllu saman. Myndin er þvæld og langdregin, grínið er ekki lengur fyndið og þótt rudda- legt ofbeldið sé enn á sínum stað þá þjónar það einhvern veginn ekki sama tilgangi og áður og gerir ekkert fyrir mann. Miðað við þær væntingar sem Kick-Ass byggði upp er því ekki hægt að lýsa framhaldinu sem öðru en stórkost- legum vonbrigðum.“ Þórarinn Þórarinsson blaðamaður – kvikmyndavefurinn Svarthöfði Ljúffengir ostar„ Ostasalinn í götunni opnaði eftir sumarfrí áðan. Nú sit ég og reyni að klára greinina fyrir Fréttatímann en er mest í því að háma í mig geðveikslega góðan Cantal, frábæran Sainte-Maure de Touraine og er farinn að teygja mig í settlegan Roquefort Carles. Það vantar ekki að þetta eru eðalostar en þeir hafa líka verið geymdir við hárréttar aðstæður og eru seldir akkúrat tilbúnir til neyslu; í sínu allra besta formi.“ Gunnar Smári Egilsson nýtur lífsins – Facebook Vont ár í Hollywood„ Sá Elysium í gær og þvílík vonbrigði. Ef heldur fram sem horfir þá verður þetta versta ár í sögu Hollywood. Það er eins og fólkið sem vinnur þarna sé algerlega ólæst á handrit. Vantar upp á uppbyggingu, samhengi, persónusköp- un og allt hitt sem gerir sögur þess virði að segja þær. Ég hlakkaði gríðarlega til þess að sjá þessa mynd þar sem síðasta mynd þessa leikstjóra, District 9, var alveg frábær. Þar náði hann að tvinna saman spennandi heimsmynd, magnaðri ádeilu, flottum persónum og hugmyndum um heiminn sem sjaldgæft er að sjá í mynd af þessari stærðargráðu.“ Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri um nýjustu mynd Neil Bloomkamp, Elysium – Facebook Tvífari Dr. Gunna„ Þrjár bandarískar konur buðu mér í löns í gær. Þeim fannst bara svona æðisleg túrista-bókin sem ég gerði fyrir nokkrum árum og vildu endilega hitta mig. Ég reyndi að vera voða skemmtilegur og landi og þjóð til sóma. Það verða allir að leggjast á eitt í túristavertíðinni, ha? Þær voru búnar að gera bakgrunns-tékk á mér, m.a. að leita að “„Fart Song“ á Itunes. Því héldu þær að ég kæmi fram á ensku undir listamannsnafninu Crabmeat Thompson. Svo virðist vera að það sé einhver náungi sem kallar sig Crabmeat Thompson í barnalagabransanum. Enn vandast málið þegar það kemur í ljós að þessi Crabmeat er svo sem ekkert sláandi ólíkur mér: og enn verra er til þess að vita að Krabbakjöt- ið er jú, með lag sem heitir The Fart Song. Stundum verður ruglið í veruleikanum alveg á pari við ruglið í draumunum.“ Doktor Gunni um amerískan tvífara sinn – drgunni.wordpress.com L ókal – alþjóðleg leiklistarhá- tíð í Reykjavík – var haldin í fyrsta skipti árið 2008. Á hátíð- inni hefur Íslendingum gefist færi á að sjá erlendar leiksýn- ingar og erlendum leikhúsgestum að sjá það nýjasta í íslenskri leiklist. Þannig svipar hátíðinni til Airwaves- tónlistar hátíðarinnar sem flestir þekkja. Margar af þeim sýningum sem sýndar hafa verið á Lókal hafa farið sigurför um heiminn. Til dæmis sýndi Vivavarium Studio hópur- inn verkið L´Effet de Sérge á fyrstu Lókal-hátíðinni. Hópurinn átti síð- ar eftir að fara með sýningar sínar út um allan heim og nýverið var leik- húsmaðurinn Snæbjörn Brynjars- son í fréttum þar sem hann fékk hlutverk í nýjustu sýningu hópsins á Wiener Festwochen-hátíðinni. Sýn- ing Richard Maxwell, Ode to the Man Who Kneels, á fyrstu Lókal-hátíðinni er einnig minnisstæð. Hátíðin hefur einnig verið stökk- pallur fyrir íslenska listamenn. Út- sendarar Wiener Festwochen buðu til að mynda leikhópnum Kviss Búmm Bang á listahátíðina í Vínar- borg eftir að hafa séð verk hópsins Eðlileikarnir á Lókal-hátíðinni. Lókal er nú haldin sjötta sinn. Hátíðin er orðinn fastur liður á menningar- dagatalinu. DV skoðar þau atriði sem í boði eru á hátíðinni í ár. Íslensk fjölskylda á svið Friðgeir Einarsson og Ragnheiður Harpa Leifsdóttir voru bæði við nám í Fræði og framkvæmd við Listahá- skóla Íslands og eiga verk á hátíðinni. Verk Ragnheiðar Hörpu heitir Tómið – Fjölskylduskemmtun. Ragnheiður býður fjölskyldu sína velkomna á svið. Fjölskyldan stendur á tímamót- um. Börnin eru að flytja að heiman og ákveðið uppgjör stendur fyrir dyrum. Ragnheiður hefur áður sýnt á Lókal og hefur frá því hún útskrif- aðist vakið athygli fyrir gjörninga og leikverk. Verk hennar dansa á mörk- um myndlistar og leiklistar og hún hefur einnig sýnt verk sín erlendis. Friðgeir Einarsson titlar sig sem sviðslistamann. Hann er bæði leikari og leikstjóri og hefur einnig komið fram í fjölda dansverka – bæði með hópnum Ég og vinir mínir, Shalala grúppu Ernu Ómarsdóttur og sviðs- listahópnum 16 elskendum. Verk Friðgeirs heitir Lítill kall. Í kynn- ingartexta verksins segir Friðgeir að eftir ítarlegar rannsóknir á manns- heilanum hafi hann komist að þeirri tímamótaniðurstöðu að manneskjan sé of löt til þess að hugsa. Nýtt verk eftir Guðberg Grindvíska atvinnuleikhúsið – GRAL frumsýnir leikverk eftir rithöfundinn Guðberg Bergsson og mun þetta vera fyrsta leikritið sem hann hefur skrif- að. Leikritið heitir: Eiðurinn og eitt- hvað. Bergur Þór Ingólfsson er leik- stjóri og listrænn stjórnandi GRAL en leikhúsið hefur einbeitt sér að verkum sem byggja á sögu og um- hverfi bæjarins. Í kynningartexta um verkið segir að sýningin sé „óvænt og öðruvísi leiksýning skreytt gullkorn- um úr hugarheimi Guðbergs sem oft á tíðum [sic] getur verið ólíkindatól og kemur alltaf á óvart.“ Danshöfundurinn Brogan Davi- son og leikstjórinn Pétur Ármanns- son sýna verkið Dansaðu fyrir mig. Verkið fjallar um föður Péturs, Ár- mann Einarsson, sem er skólastjóri tónlistarskóla en hefur þó alltaf alið með sér þann draum að dansa nú- tímadans á sviði. Hann og Brogan, tengdadóttir hans, sömdu dans- verk sem þau sýndu á Akureyri fyrr á þessu ári og nú er verkið komið til Reykjavíkur á Lókal-hátíðina. Krónískur ótti við hljóð Það er alltaf kærkomið að fá tækifæri til að sjá erlend leikverk á sviði hér á Íslandi. Myndlistar- og leikhúsmað- urinn Diederik Peeters sýnir verkið Red Herring á hátíðinni. Verkið fjall- ar um tilraunir höfundarins til að yfirstíga þráhyggju og vænisýki sína á sviðinu en höfundurinn er haldinn krónískum ótta við hljóð af ýmsu tagi – og af hljóðum er yfirleitt nóg í leik- sýningum. Sýningin Winners & Losers eftir leikhópinn Theatre Replacement frá Vancouver í Bresku Kólumbíu og Neworld Theatre og fjallar um sam- kvæmisleik sem fer úr böndunum. Leikurinn felst í því að nefna staði eða hluti og færa rök fyrir því hvort viðkomandi staður eða hlutur sé flottur eða glataður. Verkinu er lýst sem djörfum og eldfimum samræðum um „hin n Fjöldi erlendra viðburða á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal Alþjóðleg leiklistar- veisla í Reykjavík Leiklist Símon Birgisson simonb@dv.is Guðbergur Bergsson Höfundur verksins Eiðurinn og eitthvað sem frumflutt verður á Lókal-hátíðinni í ár. VERK Produksjoner frá Noregi Úr verkinu Build me a Mountain. Lítill kall Friðgeir Einarsson býður áhorfendum upp á lausn úr viðjum letinnar. Matt Damon í Elysium Myndin hefur fengið misjafna dóma í erlendum fjölmiðlum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.