Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 2
2 Fréttir Helgarblað 6.–9. desember 2013
Útigangsmaður
fékk húsaskjól
n Fékk smáhýsi afhent á afmælisdaginn n Var einn án heimilis á Selfossi
Í
þessu tilviki hentuðu ekki þau
félagslegu úrræði sem voru til
staðar,“ segir Eyþór Arnalds,
formaður bæjarráðs Árborgar.
Dagskráin – Fréttablað Suður
lands greindi frá því í blaði sínu að
þann 15. nóvember síðastliðinn
hefði Jóhann B. Guðmundsson
fengið þak yfir höfuðið.
Jóhann hefur ekki átt fastan
samastað undanfarin ár og segja má
að hann hafi verið eini heimilislausi
íbúinn á Selfossi um nokkurt skeið.
Í Dagskránni kemur fram að á fundi
bæjarráðs þann 15. nóvember hafi
verið samþykkt að kaupa eða leigja
smáhýsi fyrir manninn. Húsinu var
komið fyrir að Sigtúni 1b en þar er
afar gott útsýni yfir Ölfusá.
Á myndinni sem fylgir fréttinni
má sjá Eyþór Arnalds ásamt
Jóhanni, daginn sem húsið var af
hent, 24. nóvember. Eyþór segir að
með þessu úrræði sé öryggi einstak
lingsins sem um ræðir tryggt auk
þess sem húsið veiti honum skjól.
Því er spáð að mjög kalt verði í
veðri á næstu dögum, svo húsnæð
ið kemur sér sjálfsagt afar vel núna
yfir kaldasta tímann.
Mikilvægt að styðja þá sem
minna mega sín
Eyþór segir aðspurður að um
einstakt tilfelli hafi verið að ræða.
Samfélagið hafi fylgst með Jóhanni
um nokkurt skeið. Bæjarráð hafi
viljað finna lausn á málum hans.
„Það er mikilvægt að styðja þá sem
minna mega sín til að styrkja sig.
Það er hugsunin að baki þessari
aðgerð,“ segir Eyþór. Hann segir að
málið hafi fyrst komið til umræðu í
bæjarráðinu fyrir um ári. Þegar ljóst
hafi verið að önnur úrræði hentuðu
ekki í þessu tilviki hafi verið gripið
til þessa ráðs.
Hann segir aðspurður að húsið
sem fengið var sé ekki ósvipað þeim
sem sett hafi verið upp fyrir úti
gangsmenn úti á Granda í Reykja
vík. „Í því er sturta og aðstaða til
eldunar,“ segir hann. Einhugur var í
bæjarráði um þessa lausn, að sögn
Eyþórs.
Einstakt úrræði
Eyþór á ekki von á því að þeir sem
ekki hafi húsnæði flykkist austur
yfir heiðina, í leit að lausn sem
þessari. „Svona mál verða alltaf
skoðuð út frá aðstæðum hvers og
eins. Þetta varð í þessu tilviki loka
niðurstaðan, eftir að búið var að
reyna önnur.“
Kostnaður bæjarfélagsins vegna
úrræðisins er nokkrar milljónir, að
sögn Eyþórs, en samkvæmt upp
lýsingum DV er gert ráð fyrir því að
leigutekjur komi á móti.
Afhending á afmælisdeginum
Í Dagskránni er greint frá því að
Jóhann, eða Jói, hafi verið hæst
ánægður með nýju húsakynnin og
að hann hafi ekki átt orð yfir her
legheitin. Þar kemur einnig fram
að svo skemmtilega hafi viljað til
að þeir Jóhann og Eyþór hafi báð
ir átt afmæli 24. nóvember síðast
liðinn, daginn sem Jóhanni var af
hent húsið. Að því tilefni hafi Eyþór
fært Jóhanni afmælisköku og mjólk
– sem hann einmitt heldur á á
myndinni. n
„Það er
mikil-
vægt að styðja
þá sem minna
mega sín til að
styrkja sig
Kátir kappar Eyþór og Jóhann
eiga sama afmælisdag. Afhendingu
hússins bar upp á þann dag, 24.
nóvember. Mynd dAgsKráin sElfossi
Baldur guðmundsson
baldur@dv.is
Allt að 60% afsláttur af matvöru
A
llt að 60% afsláttur er veittur
af matvöru á sérstökum af
sláttarkvöldum sem stóru
matvörukeðjurnar halda
fyrir starfsmenn sína. Í sumum til
fellum er starfsmönnum samstarfs
fyrirtækja einnig boðið til herlegheit
anna, sem oft eru nefnd birgjakvöld.
Í vikunni voru til að mynda haldin
slík kvöld hjá Norvik, sem rekur með
al annars Krónuna og Intersport,
þar sem afsláttur var upp á 5–30%
af völdum vörum. „Það er gefinn út
listi yfir ýmsa vöru svo sem kjöt og
gos og þessar helstu jólavörur sem
fólk er að kaupa og við veitum góð
an afslátt af því,“ segir Kristinn Skúla
son, rekstrar stjóri krónunnar. Hann
segir meiri afslátt á starfsmanna
kvöldunum en gefnir eru út sérstak
ir aðgöngumiðar að þeim. „Þetta er
svona eins og viðbótarjólagjöf til
starfsmanna,“ segir Kristinn. Svipað
fyrirkomulag er á starfsmannakvöldi
Hagkaupa samkvæmt upplýsingum
frá Högum, þar fá starfsmenn að
gangsmiða senda með launaseðlun
um sínum.
Hjá Högum fengust þær upp
lýsingar að starfsfólki Bónuss væri
ekki boðið upp á slík afsláttarkvöld.
„Álagningin þar er svo lág að hún
býður ekki upp á það,“ sagði tals
maður fyrirtækisins.
Birgjakvöld Haga var haldið í
Smáralind í vikunni. Þá voru all
ar verslanir fyrirtækisins opnaðar
aftur hálftíma eftir að þeim hafði ver
ið lokað, fyrir sérstaka gesti, starfs
menn fyrirtækisins og birgja þess.
Húsasmiðjan og Blómaval höfðu
einnig opið fyrir viðskiptavini sína
á fimmtudagskvöld sem fengu 25%
afslátt af völdum vörum. n fifa@dv.is
Sérstök afsláttarkvöld stóru matvöruverslananna voru í vikunni
Mótmæltu
refsiaðgerð-
um ESB
Á fundi Vestnorræna ráðsins
og Evrópuþingsins nýlega voru
makrílveiðar Íslands og Færeyja
ræddar sem og ákvörðun ESB
um refsiaðgerðir gegn Færeyjum
vegna síldveiða. Formaður
ráðsins, Unnur Brá Konráðsdótt
ir, og varaformaður, Bill Justinus
sen, sátu fundinn auk fulltrúa
Evrópuþingsins. Þau mótmæltu
harðlega þessum refsiaðgerð
um auk þess sem hótanir ESB
um refsiaðgerðir vegna markríl
veiða voru fordæmdar. „For
sætisnefndin undirstrikaði það
við sendinefnd Evrópuþingsins,
að fyrri aðgerðir hefðu haft mikil
áhrif í vestnorrænu löndunum,
eins og þegar ESB lagði innflutn
ingsbann við selafurðum,“ var
haft eftir Unni Brá eftir fundinn
í tilkynningu frá Vestnorræna
ráðinu. Sú aðgerð hefði haft
alvarlegar afleiðingar fyrir smá
ar selveiðibyggðir í Grænlandi.
Vestnorræna ráðið er formleg
ur samstarfsvettvangur Færeyja,
Grænlands og Íslands og fundar
árlega með fulltrúum Evrópu
þingsins.
Lýsa þungum
áhyggjum
Stéttarfélagið Drífandi í Vest
mannaeyjum sendi frá sér
ályktun í gær þar sem þungum
áhyggjum er lýst vegna þróun
ar samningaviðræðna á milli
atvinnurekenda og launafólks
undanfarna daga. „Enn eina
ferðina á að skammta almennu
verkafólki skammarlegar upp
hæðir á meðan hálauna fólk fær
hundruð þúsunda á mánaðar
hækkanir á sín laun,“ segir í til
kynningunni. Einnig kemur fram
að ljóst sé að atvinnugreinar í
útflutningi þoli launahækkanir í
ljósi tugmilljarða afkomu þeirra
undanfarin ár.
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að
taka á móti pöntunum
í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is