Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Qupperneq 4
Helgarblað 6.–9. desember 20134 Fréttir
Gagnrýndu
bankaskattinn
n Sjálfstæðismenn töldu skattinn óframkvæmanlegan n Hangir í lausu lofti
S
kattlagningin á fjármálafyrir-
tæki í þrotameðferð sem á að
fjármagna hluta af skulda-
niðurfellingum ríkisstjórn-
arinnar er ennþá í lausi lofti.
Meðal þess sem ekki liggur fyrir er
hvort skatturinn eigi að leggjast á
lýstar kröfur í þrotabú fjármálafyr-
irtækjanna eins og Glitnis og Kaup-
þings eða samþykktar kröfur. Vinn-
an við útfærsluna á skattlagningunni
er því ansi skammt á veg komin en
efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis hefur verið að velta skattlagn-
ingunni fyrir sér.
Í viðtali við DV í vikunni
vildi Jóhannes Þór Skúlason,
aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar forsætisráðherra,
ekki segja blaðamanni hvenær
ákveðið hefði verið að fjármagna
hluta af skuldaniðurfærslunum
með bankaskatti. Ekkert var fjall-
að um þennan bankaskatt í glær-
um eða skýrslu sérfræðingahóps
ríkisstjórnarinnar sem vann skulda-
tillögurnar. Miðað við þá vinnu voru
hugmyndir um fjármögnun á til-
lögunum með bankaskatti ekki hluti
af vinnu nefndarinnar. Vinna við
hugmyndirnar virðist auk þess vera
afar skammt á veg komin á Alþingi.
Sagði stjórninni að bíða
Í umræðum um fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar í október síðast-
liðinn benti Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, á að í tíð
síðustu ríkisstjórnar, árið 2010, hefði
slíkur bankaskattur verið skoðaður.
Erfitt hefði hins vegar verið að inn-
heimta slíkan skatt af ýmsum ástæð-
um: „Þegar þetta var skoðað á sín-
um tíma var algjörlega ljóst að það
var enginn efnahagsreikningur til og
það yrðu missiri þangað til að búin
yrðu komin í það ástand að þau gætu
verið skattandlag. Þetta var lagt til
hliðar og þar af leiðandi fór aldrei
fram, svo ég kæmi að, skoðun á hin-
um tæknilegu og lögformlegu álita-
málum enda var ekki tilefni til. Það
var augljóst mál að þetta lægi í fram-
tíðinni, ef ætti einhvern tímann að
reyna þetta.“
Í október tilkynnti ríkisstjórnin
að hún ætlaði að loka fjárlagagatinu
með því að leggja sérstakan
bankaskatt á fjármálafyrirtæki í
gjaldþrotameðferð eins og Glitni og
Kaupþing og lét Steingrímur orð sín
falla í umræðunni um þann þátt fjár-
laganna. Benti hann stjórnar liðum
auk þess á að bíða með að hrósa
happi fyrr en fyrir lægi að skatturinn
væri innheimtanlegur: „Ég mundi
í sporum stjórnarsinna hafa örlít-
inn fyrirvara á, áður en þeir fara að
skamma okkur fyrir að hafa ekki
gert þetta á einhverjum fyrri tímum
þegar það var ómögulegt, þangað til
að þeir eru búnir að sýna að þetta
sé hægt. Þá skulum við tala aftur
saman.“
Sjálfstæðismenn gagnrýndu
bankaskattinn
Athygli vekur að þegar Steingrímur
lagði frumvarpið um bankaskattinn
fram árið 2010 var frumvarpið gagn-
rýnt nokkuð af sjálfstæðismönnum,
meðal annars á þeim forsendum að
það fæli í sér „mismunun“ og væri
hugsanlega brot á „jafnræðisreglu“.
Meðal annars sagði Bjarni Bene-
diktsson í ræðu um frumvarp Stein-
gríms að um væri að ræða skatt sem
væri ekkert annað en tekjuöflun fyrir
ríkið. „Maður fær á tilfinninguna að
undir þessu flaggi sé einfaldlega ver-
ið að tefla fram máli sem er ekki ann-
að en tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Hér
er verið að finna enn eina leið til að
ná í einn milljarð fyrir ríkissjóð sem
á að standa undir rekstri hans.“
Pétur Blöndal lét heldur ekki sitt
eftir liggja og sagði um bankaskatt-
inn að hann gæti hugsanlega brotið
jafnræðislegu: „Þessi skattlagning
sem hugsanlega brýtur jafnræðis-
reglu.“ Pétur benti einnig á það að
skattlagningin gæti falið í sér „mis-
munun“ ef aðeins ætti að leggja
skattinn á fjármálafyrirtæki yfir
vissri stærð en ekki minni fyrirtæki.
Gagnrýni á þessum forsendum barst
meðal annars til Alþingis frá spari-
sjóðum í október síðastliðinn.
Nú er öldin hins vegar önnur:
Sjálfstæðismenn eru núna í þeirri
stöðu að hafa lagt fram tillögur sem
ganga út á að slíkur bankaskattur sé
innheimtanlegur, án þess að hægt sé
að fullyrða að svo sé. n
„Ég mundi í spor-
um stjórnarsinna
hafa örlítinn fyrirvara
á, áður en þeir fara að
skamma okkur.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Ekki framkvæmanlegur
Steingrímur J. Sigfússon taldi
bankaskattinn ekki fram-
kvæmanlegan árið 2010.
Hugsanlega brot
á jafnræðisreglu
Pétur Blöndal benti á
að bankaskatturinn
væri hugsanlega brot
á jafnræðisreglu.
Framsókn
bætir fylgi sitt
Framsóknarflokkurinn fengi 20,1
prósent atkvæða ef gengið yrði
til þingkosninga í dag ef marka
má skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Íslands
sem unnin var fyrir Morgunblað-
ið. Samkvæmt henni fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 23,3 prósent
atkvæða og ríkisstjórnarflokk-
arnir því samanlagt 43,4 prósent
atkvæða.
Er það átta prósentustigum
minna en flokkarnir fengu í þing-
kosningum í apríl síðastliðnum.
Umrædd könnun var fram-
kvæmd dagan 2. og 3. desember
síðastliðinn eftir að aðgerðir
ríkis stjórnarinnar í skuldamálum
voru kynntar.
Samkvæmt könnuninni fengi
Samfylkingin 15,8 prósenta fylgi,
Vinstri græn 14,1 prósents fylgi,
Björt framtíð 13,7 prósenta fylgi
og Píratar 7,7 prósenta fylgi.
Breytt
útgáfa DV
Á þriðjudag í síðustu viku breytt-
ist útgáfa DV þegar mánudags-
og miðvikudagsblaðið var sam-
einað í eitt stórt þriðjudagsblað.
Í stað tveggja 24 síðna blaða fær
lesandinn stórt blað sem kemur
út á þriðjudögum sem fyrr segir.
Þess má einnig geta að á
sama tíma er stóraukin þjón-
usta á DV.is og meðal annars
settur upp sérstakur vefur sem
þjónar Suðurnesjum. Sú aðgerð
að sameina tvö blöð nú er í hag-
ræðingarskyni. Aðgerðin felur
ekki í sér samdrátt á ritstjórn.
Framleiðsla verður aukin og
munu þess sjást merki í blaðinu
og á vefnum.
Banaslys á Mónakó
Maður datt aftur fyrir sig og fékk höfðuhögg
Þ
etta er hörmulegt slys.
Ekki meira en leiðindi fyrir
alla aðila,“ segir Marge-
ir Margeirsson, eigandi
Mónakó við Laugaveg þar
sem banaslys átti sér stað síðast-
liðið miðvikudagskvöld. „Hann
kom inn þessi ágæti maður, sam-
kvæmt myndavélaklukkunni, tutt-
ugu mínútur í ellefu. Hann gengur
þarna um og rabbar við einhverja
aðila sem voru kunningjar hans.
Innan þriggja mínútna eftir að hann
kemur inn þá er hann kominn upp í
þriðju tröppu, er mér sagt, og dettur
aftur fyrir sig og rekur höfuðið í,“
segir Margeir í samtali við DV. Mað-
urinn var fluttur mikið slasaður með
sjúkrabifreið á slysadeild Landspít-
alans þar sem hann fór í aðgerð.
Fréttastofa RÚV greindi frá því um
hádegi á fimmtudag að maðurinn
hefði látist. Margeir segir starfs-
fólk sem var á vakt miðvikudags-
kvöldið vera í áfalli eftir slysið. Að-
spurður hvort starfsmenn hafi þekkt
manninn segir Margeir: „Þekkt og
þekkt ekki? Það vissi hvað hann hét
og hafði séð hann eitthvað áður en
hann var ekki vinur eða kunningi
þeirra.“ Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu rannsakar málið sem slys.
Barinn Mónakó hefur lengi vel
verið þyrnir í augum lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu sem og ná-
granna; ítrekað hefur verið reynt að
afturkalla starfsleyfi staðarins. Sam-
kvæmt skýrslu lögreglustjóra sem
tekur til tveggja ára mátti rekja fjöl-
mörg afbrot á Laugavegi til annað-
hvort Mónakó eða Monte Carlo,
en báðir staðir eru í eigu Margeirs.
Hann sagði á sínum tíma að slík
gagnrýni ætti ekki við nein rök að
styðjast. „Ég er ekkert að fara af
Laugaveginum,“ sagði Margeir þá. n
hjalmar@dv.is
Eigandi Mónakó Margeir segir að mað-
urinn sem lést hafi ekki verið fastagestur á
Mónakó en starfsfólk hafi þó þekkt manninn.
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods