Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 11
Helgarblað 6.–9. desember 2013 Fréttir 11 Sjö dagar til að afgreiða fjárlög Tvær umræður um fjárlögin eftir Tvær umræður eru eftir vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnar- innar fyrir næsta ár. Ágreiningur er uppi um hvort starfsáætlun Alþingis geri ráð fyrir nægum tíma til að klára umræðu og af- greiðslu frumvarpsins. Aðeins sjö þingfundardagar eru eftir á árinu samkvæmt starfsáætlun þingsins fyrir veturinn. Síðari umræða um fjárlagafrumvarpið átti að eiga sér stað á miðvikudag og þriðja og síðasta umræðan næstkomandi þriðjudag. Fjár- lagaumræðinni var frestað í byrj- un vikunnar með tilkynningu. Ástæða fyrir því að fresta þurfti um- ræðu um fjárlögin eru miklar breytingar sem þau eiga að ganga í gegnum. Bæði á að auka fjárútlát til Landspítalans stór- lega, miðað við ummæli Vigdís- ar Hauksdóttur, formanns fjár- laganefndar, og svo þarf að finna út hvernig þrefalda eigi tekjur af sérstökum bankaskatti. Síðar- nefnda aðgerðin þarf að eiga sér stað vegna tillagna stjórnarinnar um aðgerðir í þágu þeirra sem skulda verðtryggð húsnæðislán. Í fjárlaga- frumvarp- inu eins og það var lagt fram í haust er gert ráð fyrir 11,5 milljarða tekjum af þessum skatti en gert er ráð fyrir í tillögunum að hann standi undir 20 milljarða útgjöldum á næsta ári og gott betur. Í kynningu á skuldaniðurfellingartillögum stjórnarinnar talaði Bjarni Bene- diktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, um tekjur upp á hátt í fjörutíu milljarða af þessum skatti. Ljóst er að gefa þarf veru- lega í ef það á að nást. Alla jafna taka umræður um fjárlög ríkisins mikinn tíma. Sé umræða um síðustu fjárlög skoðuð kemur í ljós að alls stóðu önnur og þriðja umræða um fjárlög ársins 2013 3.852 mín- útur, eða rúma 64 klukkutíma. Það jafngildir rúmum tveimur og hálfum sólarhring af stans- lausum ræðuhöldum. Þó er vert að nefna að árið áður voru að- eins 1.761 mínúta, eða rúmar 29 klukkustundir, sem fóru í aðra og þriðju umræðu fjárlaga ársins 2012. Ef þessir sjö fundir duga þinginu ekki til að taka tvær umræð- ur um málið og samþykkja það sem lög kemur upp sjaldgæf staða. Sam- kvæmt stjórnarskrá kemur það í hlut forseta Íslands, sem nú er Ólafur Ragnar Grímsson, að setja bráðabirgðafjárlög sé þing ekki starfandi. Óljóst er hvaða áhrif þetta hefur nákvæmlega á fjár- hag ríkisins og starfsemi þess. Leggja þarf bráðabirgðalög sem forsetinn samþykkir fyrir þingið þegar það kemur saman á ný. Stefnt vegna bílaskuldar Margrét Hrafnsdóttir keypti BMW sem hún borgaði ekki af í meira en ár E inum af forvígismönnum Herbalife á Íslandi, Margréti Hrafnsdóttur, hefur verið stefnt fyrir nærri 3,8 milljóna skuld við Íslandsbanka út af bílaláni sem hún hætti að greiða af árið 2010. Þetta kemur fram í stefnu frá Íslands- banka sem birt er í Lögbirtingablað- inu. Ástæðan fyrir því að stefnan er birt i Lögbirtingablaðinu er sú að ekki hefur tekist að birta Margréti stefnuna persónulega þar sem hún er búsett í Bandaríkjunum. Skuldin er tilkomin vegna rekstrar- leigusamnings sem Margrét gerði um BMW-bifreið árið 2007 sem keypt var af Bifreiðum og landbúnaðarvél- um með fjármögnun frá Glitni í nóv- ember það ár. Lánið var í japönskum jenum, svissneskum frönkum og ís- lenskum krónum. Í stefnunni segir svo: „Leigutaki greiddi umsamdar greiðslur til 15. júlí 2009 en frá og með þeim tíma hefur hann ekki fengist til að greiða gjald- fallnar greiðslur þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir þar um. Hinu leigða tæki var skilað í lok samningstíma af leig- utaka þann 15. desember 2010 og miðast því uppgjör aðilanna við þann dag. Er því skuld stefndu miðað við 15. desember 2010 reiknuð skv. 16. gr. skilmála samningsins, sem hér segir.“ Margrét greiddi því ekki af bif- reiðinni í tæpt eitt og hálft ár áður en hún skilaði bílnum. Nú vill Íslands- banki, arftaki Glitnis, fá þessa fjár- muni til baka og stefnir Margréti því og birtir stefnuna í Lögbirtingablað- inu. Fyrir nokkru greindi DV frá því að MP banki hefði stefnt Jóni Óttari Ragnarssyni, eiginmanni Margrétar og öðrum forvígismanni Herbalife, og birt stefnuna í Lögbirtingablaðinu. n ingi@dv.is Báðum stefnt Forvígismönnum Herba life á Íslandi, Jóni Óttari Ragnarssyni og Margréti Hrafnsdóttur, hefur báðum verið stefnt með skömmu millibili út af skuldum á Íslandi. Um fátt hefur meira verið fjallað í þjóðmála- umræðunni í meira en heila öld en skatta og gjöld. Sögu skattkerfis- breytinga hefur þó ekki verið gerð fræðileg skil fyrr en núna með ritinu Í þágu þjóðar eftir Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðing. Tíundarkerfið forna var orðið úrelt á 19. öld og þjóðina vantaði tilfinnan- lega sameiginlegan sjóð, ríkissjóð, til að geta byggt upp nútímasamfélag. Það var gert m.a. með því að taka upp tekjuskattskerfi árið 1877. Allar ríkisstjórnir hafa síðan breytt skattalögum og því er ritið hvort tveggja í senn mikilvægt framlag til stjórnmálasögu þjóðarinnar og grundvallarrit um sögu skatta og skattkerfisbreytinga á árunum 1877–2012. Sagan er sögð á ljósan og skilmerkilegan hátt og margt kemur fram sem áhugafólki um þjóðarsöguna mun þykja fengur að. Saga skatta og skattkerfisbreytinga á Íslandi 1877−2012 Friðrik G. Olgeirsson Bækurnar fást í bókaverslunum Pennans/Eymundsson og hjá Bóksölu stúdenta Í þágu þjóðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.