Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 16
Helgarblað 6.–9. desember 201316 Fréttir
Íslenskir nemendur hrapa
n Ísland undir meðaltali OECD n Stærðfræðilæsi hrakar n Asíuþjóðir bæta sig
N
okkuð hefur verið fjallað
um frammistöðu íslenskra
nemenda í könnun PISA,
sem framkvæmd var árið
2012, en segja má að niður
stöðurnar séu fremur sláandi. Ís
lendingar eru fyrir neðan meðal
tal OECD á öllum þremur sviðum
könnunarinnar og getur um þriðj
ungur íslenskra drengja ekki lesið sér
til gagns við lok grunnskólagöngunn
ar. Frammistaða íslenskra nemenda
hefur þó ekki alltaf verið svona slæm,
en Ísland hefur fallið um 22 stig á síð
ustu tíu árum, og það sama er uppi á
teningnum hjá hinum Norðurlanda
þjóðunum, sem fallið hafa um að
meðaltali 18,4 stig í stærðfræðilæsi
frá árinu 2003.
Ísland undir meðaltali
Í könnun ársins 2012 var lögð áhersla
á stærðfræðilæsi en auk þess var bæði
lesskilningur og náttúrufræðilæsi
kannað. Stærðfræðilæsi íslenskra
nemenda er upp á 493 stig en það er
rétt undir meðaltali OECD, sem er
494 stig, og situr Ísland því í 27. sæti
yfir frammistöðu þátttökuríkja. Það
er talsverð afturför frá árinu 2003, en
þá sátu Íslendingar í 11. sæti með 515
stig, og hafa íslenskir nemendur því
hrapað um 22 stig á þessum níu árum.
Árangur Íslendinga í lesskilningi
er einnig talsvert lakari nú en þegar
könnun PISA var fyrst framkvæmd
árið 2000. Þá var Ísland í 10. sæti með
507 stig en er nú í 36. sæti með 483
stig, en það er 13 stigum undir meðal
tali OECD og jafnframt hrap um 24
stig. Lökust var þó frammistaða ís
lenskra nemenda í náttúrufræðilæsi.
Ísland situr í 39. sæti með 478 stig í
þeim flokki, en það er 20 stigum undir
meðaltali OECD og jafnframt 13 stig
um minna en Ísland hlaut árið 2000.
Norðurlandaþjóðirnar hrapa
Þrátt fyrir lakari árangur er Ísland
á svipuðum stað og hin Norður
löndin, sem öll hafa hrapað nokkuð
síðan árið 2000. Líkt og undanfarin
ár komu finnskir nemendur best út
af Norðurlandaþjóðunum í stærð
fræðilæsi en árangri þeirra hefur þó
einnig hrakað. Finnar sitja nú í 12.
sæti listans með 519 stig en árið 2003
voru þeir efstir allra þátttökuríkja
með 544 stig. Danir eru ofar en Ís
lendingar, með 500 stig í 22. sæti, en
2000
470
475
480
485
490
495
500
505
510
515
2003 2006 2009 2012
Árangur Íslands 2000–2012
bæði Norðmenn og Svíar eru neðar.
Norðmenn sitja í 30. sæti með 489
stig en Svíar í því 38. með 478. Er það
talsverð afturför frá árinu 2003 en þá
voru Danir í 12. sæti með 514 stig,
Svíar í 14. sæti með 503 stig og Norð
menn í 19. sæti með 495 stig. Finnar
og Svíar hafa því hrapað um 25 stig á
þessu tímabili, Íslendingar um 22 stig,
Danir 14 og Norðmenn 6 en Norður
landaþjóðirnar hafa að meðaltali fall
ið um 18,4 stig á þessum tíu árum. Á
meðan hafa aðrar þjóðir hafa sótt í sig
veðrið og bætt árangur sinn.
Asíuþjóðir bæta sig
Í sjö efstu sætum listans yfir stærð
fræðilæsi eru Asíulönd en flest
þeirra hafa bætt árangur sinn um
talsvert á síðustu árum. Langbestum
árangri náðu nemendur í Shang
hai í Kína með 613 stig, en það er
40 stigum meira en nemendur frá
Singapúr sem skipa annað sætið
og jafnframt 119 stigum, eða um
þremur árum af kennslu, fyrir ofan
meðal tal OECD.
Í þriðja sæti eru nemendur frá
Hong Kong í Kína, sem mældust
með 561 stig en það er einu stigi
meira en Taívan, sem skipar fjórða
sæti listans. Í fimmta sæti er Suður
Kórea með 554 stig, í sjötta sæti
er kínverska sjálfstjórnar héraðið
Macau með 538 stig og í því sjöunda
er Japan með 536 stig. Öfugt við
Norðurlöndin hafa allar þess
ar þjóðir, sem tóku einnig þátt árið
2003, bætt árangur sinn á undan
förnum áratug. Til dæmis hefur
SuðurKórea hækkað um 12 stig frá
árinu 2003, Macau og Hong Kong
um 11 stig og Japan um tvö. n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
n Lesskilningur
n Stærðfræðilæsi
n Náttúrufræðilæsi
Mikið fall Íslenskir nemendur hafa fallið
um 22 stig í stærðfræðilæsi frá árinu 2003.
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
25% afsláttur af völdum vörum í Lifandi
markaði og af öllum bætiefnum frá NOW
25% afsláttur aföllum NOWbætiefnum
HEILSUSPRENGJA
25% afsláttur af völdum vörum
Ti
lb
o
ð
ið
g
il
d
ir
5
. -
1
2.
d
es
em
b
er
.
Ekki gleym
a
heilsunni u
m jólin!
Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is