Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 27
Helgarblað 6.–9. desember 2013 Fréttir Erlent 27 Fastur í flakinu ofan á látnum vini sínum n Richard Koester lifði af ótrúlegt umferðarslys n Sat fastur í bílnum í sex daga R ichard Koester hringdi í dóttur sína að kvöldi 11. október síðastliðinn. Dóttir hans varð þrettán ára degi síðar og Richard sagði henni að vera vakandi á miðnætti svo hann gæti hringt aft- ur og óskað henni til hamingju með daginn. Það er síðasta minn- ing Richards frá þessum örlagaríka degi því nokkrum klukkustundum síðar lenti hann í alvarlegu um- ferðarslysi ásamt vini sínum, Ron- ald Lee Mohr. Fékk hjartaáfall Richard sagði ótrúlega sögu sína í viðtali við fréttamiðilinn 9News í Colorado á dögunum en hann lá ofan á látnum vini sínum í sex daga áður en hjálp barst. Eftir að Richard hafði talað við dóttur sína steig hann upp í bif- reið vinar síns og voru þeir á leið til smábæjarins Cripple Creek í Colorado. Eins og fram hefur kom- ið man Richard ekkert eftir því að hafa stigið upp í bifreiðina eða í hvaða erindagjörðum þeir voru. Talið er að Ronald hafi fengið hjartaáfall undir stýri með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bifreiðinni. Svo óheppilega vildi til að bifreiðin féll ofan í gil og var ekki með nokkru móti hægt að sjá bifreiðina frá veginum. Talið er að Ronald hafi látist skömmu síðar en Richard stórslasaðist. Hann sat sat fastur í bifreiðinni, ofan á vini sínum og þurfti hann að bíða í sex daga eftir björgun. Vissi að hann fyndist Í umfjöllun 9News kemur fram að fjölskylda Richards hafi strax vitað að eitthvað óeðlilegt hafi verið í gangi. Richard hafði alla tíð verið mikill fjölskyldumaður og talað við sína nánustu á hverjum ein- asta degi. Þegar ekkert heyrðist frá honum grunaði fjölskyldu hans að eitthvað hefði komið fyrir enda var hann ekki vanur að láta sig hverfa. „Ég keyrði út um allt og leitaði að honum og vissi það innst inni að ég myndi finna hann,“ segir Michaelle Woolery, systir Richards. Öll fjölskyldan tók þátt í leitinni að honum í samvinnu við lög- regluna en útlitið var ekki bjart þegar tæpir sex dagar voru liðnir frá hvarfi Richards. Báðir fótleggir fjarlægðir Á meðan fjölskylda Richards leit- aði hans sat hann fastur í flaki bif- reiðarinnar, án matar og vatns. „Ég man ekki svo glatt eftir þessu og satt best að segja hélt ég að mig væri að dreyma,“ segir Richard þegar hann er beðinn um að lýsa reynslu sinni. Það var ekki fyrr en þann 17. október að starfsmaður CDOT, sem mætti líkja við Vegagerðina á Ís- landi, kom auga á bifreiðina ofan í gilinu fyrir einskæra tilviljun. Richard var fluttur í skyndi á sjúkrahús og var ástand hans mjög alvarlegt. Læknar þurftu meðal annars að fjarlægja báða fótleggi hans og tvo fingur af hægri hönd. Þrátt fyrir það segist Richard reyna að líta á björtu hliðarnar enda sé ekki annað hægt eftir að hafa bjarg- ast úr þessum hörmungaraðstæð- um. „Læknirinn sagði að ég ætti ekki að vera á lífi. Guð lítur greini- lega svo á að ég hafi enn verk að vinna. Ég get verið þakklátur fyrir margt, get enn verið í kringum börnin og þarf ekki að hafa áhyggj- ur af því að kaupa skó aftur,“ segir hann æðrulaus í viðtalinu. n Æðruleysi Richard segir að hann geti þakkað fyrir margt. Hann fái meðal annars að vera í kringum börnin sín áfram og þurfi ekki að hafa áhyggjur af skókaupum í framtíðinni. „Guð lítur greinilega svo á að ég hafi enn verk að vinna. Erfiðar aðstæður Bifreiðin fór ofan í gilið sem sést á þessari mynd. Ómögulegt var að sjá bifreiðina og það var fyrir einskæra tilviljun að hún fannst. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Milljarðar í spilakassa Bretar eyddu 46 milljörðum punda, tæplega níu þúsund milljörðum króna, í spilakassa á síðasta ári. Þetta er 50 pró- senta aukning á fjórum árum. Í umfjöllun Daily Mail um málið kemur fram að eigendur þessara spilakassa hafi þénað rúmlega þrjú þúsund milljarða króna á tímabilinu frá apríl 2012 og til loka mars 2013. Þá kemur fram að 600 þúsund börn hafi verið stöðvuð í spilasölum víða um landið, eða sex sinnum fleiri en árið 2009. Bresk yfirvöld vilja stemma stigu við þessa auknu ásókn í spilakassa. Meðal annars hefur nú þegar verið lagt til að upphæðirnar sem hægt er að leggja undir verði takmarkaðar verulega. Of góðar einkunnir Harvard-háskóli í Massachusetts í Bandaríkjunum glímir við það einkennilega vandamál að þar fá of margir góðar einkunnir. Þetta er mat Harvey Mansfield, pró- fessors við Harvard-háskóla, sem kennt hefur við skólann í rúm 50 ár. Harvey telur að auknar kröf- ur verði að gera til nemenda og skólanum hafi ekki tekist að halda ákveðnum staðli – afburðanem- endur verði að fá þá viðurkenn- ingu sem þeir eiga skilið. Bendir hann á að algengasta einkunninn sem gefin er í skólanum sé A en meðaltalið sé A-. Eitraðar mýs til bjargar Yfirvöld í Gvam í vesturhluta Kyrrahafs hafa ákveðið að nota eitraðar mýs til að berjast gegn snákaplágu sem þar geisar. Tvö þúsund dauðar mýs, sem fylltar hafa verið með tylenol, verkjalyfi sem hingað til hefur verið best þekkt sem gagnlegt vopn í barátt- unni gegn höfuðverk og öðrum verkjum, voru sendar til Gvam á dögunum. Snákarnir sem um ræðir, svokallaðir brúnir trésnákar (e. brown tree snakes), hafa í gegn- um tíðina valdið miklu tjóni á fjölskrúðugu dýralífi Gvam. Ekki nóg með það heldur valda þeir einnig fjárhagslegu tjóni þegar þeir skríða inn í tengivirki með þeim afleiðingum að rafmagni slær út. Tilraunir hafa sýnt að snákarnir þola illa tylenol og er vonast til þess að hægt verði að fækka þeim verulega. Klám í stað Disney-myndar Brot úr kynlífsmyndinni Nymphomaniac sýnt á barnasýningu N okkur börn, gestir í kvik- myndahúsi í borginni Tampa í Flórída í Bandaríkj- unum, áttu sér einskis ills von þegar þau komu sér fyrir með forráðamönnum sínum í sýningar- sal í Pinellas Park-kvikmyndahús- inu til að horfa á Disney-myndina Frozen. Áður en Disney-myndin hófst sýndi kvikmyndahúsið „trailer“, eða stiklu, úr mynd sem á ekkert erindi við börn. Um var að ræða nýjustu afurð leikstjórans Lars Von Trier, Nymphomaniac. Myndin fjallar á sérstaklega opinskáan hátt um kyn- lífsfíkn og inniheldur margar grófar kynlífssenur. Furðu lostnir foreldrar gripu fyrir augu barna sinna á með- an sumir reyndu að hraða sér út úr salnum hið snarasta. Lynn Greene var ásamt barni sínu í kvikmynda- húsinu. Haft er eftir henni á banda- ríska miðlinum My Fox Tampa Bay að tæknilegir örðugleikar hafi gert vart við sig svo nokkur frestun varð á því að sýningin hæfist. Önnur mynd hafi verið sett í tækið á með- an en þá hafi kynlífssenurnar birst á hvíta tjaldinu „Fyrst settu þeir af stað gamla teiknimynd í anda Mikka músar og Steamboat Willie. Skyndilega var slökkt á því og Nymphomaniac birtist á tjaldinu.“ Sagt hefur verið um Nymphoman- iac að þar fari grófasta kvikmynd sem tekin hafi verið til opinberra sýninga í vestrænum kvikmynda- húsum. Greene segir að öryggisráð- stafanir hljóti að verða gerðar í kvikmyndahúsinu í ljósi atviksins. „Ég hafði ekki nógu margar hendur til að hylja bæði augu og eyru,“ segir hún og bætir við að tíminn sem myndin var sýnd hafi verið sérstak- lega lengi að líða. n baldur@dv.is Nymphomaniac Lars Von Trier hefur síst af öllu haft börn í huga við gerð myndarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.