Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 28
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 28 Umræða Helgarblað 6.–9. desember 2013 Hvað er að gerast? Ríkisvæðing kosningaloforðs Íbúi í Hraunbænum vaknaði við skotbardagann. – DV Í sland braut reglurnar og komst upp með það,“ er ein túlkun á því hvernig íslensk stjórnvöld náðu að lágmarka skaðann fyrir ís- lenska skattgreiðendur til fram- búðar með því að reyna ekki að bjarga viðskiptabönkunum frá hruni um haustið 2008. Ef þetta hefði ver- ið reynt, til dæmis ef Seðlabanki Ís- lands hefði lánað Glitni peninga til að endurfjármagna lán sín í lok sept- ember 2008 og svo haldið áfram lán- veitingum til að reyna að stoppa í frekari göt sem mynduðust í banka- kerfinu, hefði tap skattgreiðenda af hruninu orðið miklu meira. Tapið af hruni íslensku bankanna lenti því að stóru leyti á erlendu lánastofn- unum sem fjármögnuðu þá en ekki á íslenskum aðilum. Þetta er ein af ástæðum þess að Ísland komst merkilega fljótt á lappir aftur eft- ir hrunið því stór hluti tapsins á því lenti á öðrum en ríkinu. Sem betur fer reyndi íslenska ríkið og Seðlabankinn ekki að bjarga þessum „bandíttabönkum“, eins og breski sagnfræðingurinn Tony Judt kallaði þá áður en hann lést; þeir voru löngu orðnir morknir að inn- an af misnotkun og hefðu sjálfsagt hrunið hvort sem var með tilheyr- andi aukatapi fyrir íslenska skatt- greiðendur. Bankakerfið var orðið allt of stórt til að ríkið gæti gert nokk- uð. Með þessari aðgerð braut ís- lenska ríkið hins vegar þá möntru í alþjóðlegu fjármálakerfi heimsins að stjórnvöld hlaupi undir bagga með bankastofnunum sínum og berji í brestina til að halda þeim gangandi. Írar gerðu þetta til dæmis árið 2008 þegar þeir ábyrgðust skuldir bank- anna sinna og þurftu að dæla tug- um milljarða evra inn í kerfið til að halda því gangandi og loks að fá lán frá Evrópusambandinu. Bandaríkja- menn gerðu þetta líka með hinni svokölluðu TARP-aðgerð: Milljarða innspýtingu af skattfé inn í banka- kerfið til að styrkja innviði þess. Nú ætlar íslenska ríkið að brjóta annað lögmál í þeirri viðleitni sinni að takmarka tap íslenskra skuldara af hruninu á kostnað kröfuhafa bank- anna sem féllu árið 2008: Nefnilega að skattleggja eignir þrotabúanna til að ná út úr þeim 80 milljörðum króna til að borga niður húsnæðis- skuldir Íslendinga. Öfugt við þá að- gerð ríkisstjórnarinnar að láta kröfu- hafa bankanna taka skellinn 2008 þá er afar ólíklegt að skattlagningin á þrotabú bankanna standist lög. „Við erum að brjóta áratuga göm- ul, alþjóðleg lög um skattlagningu á þrotabú. Þrotabú hafa aldrei verið andlag sérstakrar skattlagningar. Til- gangur þrotabúa er að skipta á milli kröfuhafa þeim eignum sem eru í búinu,“ segir lögmaður sem leiðar- ahöfundur ræddi við. Alveg sama hvað fólki finnst um vogunarsjóði eða fjárfestingarsjóði úti í heimi sem keyptu kröfurnar á íslensku bankana fyrir lítið af lán- veitendum þeirra eftir hrunið 2008 þá felst gríðarleg áhætta í þessari boðuðu aðgerð ríkisstjórnarinnar. Sú áhætta er bæði fjárhagsleg og pólitísk. Ef kröfuhafar bankanna fara í mál við íslenska ríkið fyr- ir innlendum og jafnvel erlendum dómstólum þá getur kostnaður- inn við aðgerðina fyrir skattgreið- endur hlaupið á milljörðum króna. Íslenska ríkið þyrfti þá að greiða þrotabúunum aftur þann skatt sem innheimtur var með vöxtum auk skaðabóta og væntanlega málskostnaðar. Þannig mun allur kostnaðurinn við niðurfærslurnar, auk frekari kostnaðar, lenda á ís- lenskum skattgreiðendum. Íslenska ríkið er því í reynd að ríkis væða skuldaniðurfærslur al- mennings upp á tugi milljarða króna með því að nota í þær peninga annarra sem ekki er víst að megi taka sem skatt. Ef þetta gerist, sem ekki er ólíklegt þar sem að líklegt má telja að bankaskatturinn standist ekki lög, þá verður álagning skattsins að einu stærsta pólitíska hneyksli síðustu ára hér á landi. Hneyksli sem byggir á áhættu sem tekin er til að efna að hluta til stærsta kosninga loforð Framsóknarflokksins; hneyksli sem er ekkert annað en afleiðingin af rík- isvæðingu á kosningaloforði. Með þessari ákvörðun er tekin nánast vítaverð áhætta því ríkið er ekki að- eins að brjóta óskrifaða reglu eða möntru eins í bankahruninu 2008 heldur líklega einnig lög. Hætt er við því að íslenska ríkið komist ekki upp með þessa skattlagningu og það muni leiða af sér fjárhagslegt tjón fyrir þjóðina. Þá munu Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson þurfa að axla pólitíska ábyrgð á tjóninu. n Sofandi á RÚV Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkis- útvarpsins, er óhress með að lögreglan skyldi ekki hafa vakið fréttamenn hans þegar um- sátrið í Hraunbænum stóð sem hæst. Í síðustu viku rak Óðinn næturfréttamenn sína en stað- hæft var þá að fréttamaður yrði samt á vaktinni yfir nóttina. Nú virðist hann ekki hafa verið vakandi yfir atburðum og Rík- isútvarpið svaf örlaganóttina á meðan einkamiðlar vöktu. „365 tapar áskrifendum“ Það gengur á ýmsu hjá fjöl- miðlarisanum 365 sem á árinu hefur verið í ólgusjó uppsagna. Páll Vilhjálmsson bloggari gefur fyrirtækinu ekki háa einkunn og bendir á að áskrifendur séu á flótta frá Stöð 2. „ Fréttablaðið er auglýsinga- bæklingur með textabrotum og afgangurinn af 365 miðlum tap- ar áskrifendum til netsjónvarps- stöðva,“ bloggar hann. Ekki er víst að Jón Ásgeir Jóhannesson, skuggastjórnandi 365, sé ánægður með þessa einkunn. Leiða má líkur að því fjölmiðlarisinn stefni bloggar- anum fyrir að vísa til rekstrar- örðugleika. Lúxushús Sigurðar Útrásarmaðurinn Sigurður Einarsson hef- ur marga fjör- una sopið frá því hann baðaði sig í vellystingum sem æðsti maður Kaupþings. Hann er nú lögsóttur vegna mála sem yfirvöld telja vafasöm. Sjálfur hefur hann sagt að fjárhagsleg staða sín sé erfið. Það er þó eflaust huggun harmi gegn að hann hefur að- gang að sumarhúsi sínu á Veiði- læk í Borgarfirði sem hann byggði í góð ærinu. Sigurður hefur undanfarið sést þar. Hús- ið, sem er eitt hið dýrasta á Ís- landi, er í eigu dansks fyrir- tækis. Barnalán Hemma Það er ýmislegt í lífi Hermanns Gunnarssonar sem hefur legið í þagnargildi. Þess á meðal er að hann eign- aðist frumburð sinn árið 1968 en ekki 1971 eins og hann segir í ævisögu sinni, Hemmi Gunn – sonur þjóðar. Egill Helgason sjónvarpsmað- ur þykir hafa hárfínan en um- deildan húmor. Hann spyr á bloggi sínu hvort bókin hefði ekki átt að heita Hemmi Gunn – faðir þjóðar. Leiðrétting? T illögur ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu húsnæðisskulda heimilanna vekja áleitnar spurningar. Skoðum verklagið fyrst. Ríkis- stjórnin felur einkafyrirtæki, Ana- lytica, að meta áhrif fyrirhugaðrar leiðréttingar. Með því er ríkisstjórn- in í reyndinni að lýsa því yfir, að hún vantreysti stjórnkerfi ríkisins. Ríkis- stjórnin hefði getað aflað tillögum sínum trausts með því t.d. að leggja strax fram umsögn AGS, sem hefur lagt drjúgan skerf til hagstjórnar- innar frá hruni auk lánsfjár, eða um- sagnir annarra óháðra sérfræðinga, en ríkisstjórnin virðist ekki held- ur treysta AGS eða óháðum sér- fræðingum. Það er ekki traustvekj- andi verklag. Skattgreiðendur bera kostnaðinn Ekki er annað að sjá en að 80 millj- arðar króna lendi á skattgreiðend- um næstu fjögur ár, þar eð ekkert segir í tillögunum um fjármögn- un lækkunar höfuðstóls húsnæðis- lána um þessa 80 milljarða, þ.e. 20 milljarða á ári 2014–2017. Þessir 80 milljarðar hljóta að þurfa að skila sér til heimilanna með auknum niðurskurði ríkisútgjalda, aukinni skattheimtu eða aukinni skuld- setningu ríkisins, og er þó ekki á neitt af því bætandi eins og sakir standa. Því vekur eftirtekt, að í skýrslu Analytica stendur: „Skv. tillögum sérfræðingahóps- ins er gert ráð fyrir að skuldaleið- réttingarhluti aðgerðanna verði ekki fjármagnaður með peninga- prentun og að ekki myndist halli á ríkissjóði beinlínis vegna þessara aðgerða. Hins vegar verður ríkis- sjóður af framtíðartekjum af úttekt séreignarsparnaðar sem nú rennur til höfuðstólslækkunar lána. Ekki er gert ráð fyrir að til þurfi að koma ríkisábyrgð eða sérstök skuldsetn- ing ríkissjóðs vegna aðgerðanna.“ Þessar forsendur Analytica fá ekki staðizt, hvort sem 80 millj- arðarnir skila sér eða ekki utan úr heimi, t.d. frá erlendum vogunar- sjóðum í gegnum þrotabú bank- anna í samræmi við kosninga- loforð Framsóknar í vor leið, en um það er þó ekkert sagt í gögn- um málsins. Analytica virðist sjást yfir það lykil atriði, að fjármögnun ríkissjóðs gegnum þrotabú bank- anna er tæknilega ígildi peninga- prentunar af hálfu Seðlabanka Íslands og því ávísun á aukna verð- bólgu og viðskiptahalla eins og Gunnar Tómas son hagfræðing- ur hefur ítrekað bent á. Mat Ana- lytica á áhrifum leiðréttingarinnar (engin teljandi áhrif á verðbólgu, gengi o.s.frv.) er því ekki trúverð- ugt. Fróðlegt væri að sjá mat AGS á þessum atriðum – og ekki vanþörf á, úr því að Þjóðhagsstofnun var lögð niður fyrir meira en áratug. Innlyksa Kynningu á tillögum ríkisstjórn- arinnar fylgir óljóst tal um skatt- lagningu bankanna. Þetta tal er ábyrgðarlaust, úr því að ríkisstjórn- in hefur ekki lagt fram neinar tillög- ur um framtíðarskipan bankamál- anna. Bankarnir standa í rauninni á brauðfótum vegna afskrifta, van- skila og lögbrota á liðinni tíð, en þeir græða samt sem stendur á tá og fingri, þar eð þeir þurfa ekki nú frekar en endranær að sæta erlendri samkeppni. Þeir græða með gamla laginu, þ.e. á kostnað viðskiptavina sinna með því að greiða innstæðu- eigendum hverfandi vexti og taka háa vexti af útlánum undir verndar- væng ríkisins. Bankaskattur er því að óbreyttu fyrirkomulagi banka- málanna skattur á venjulegt fólk og fyrirtæki í innlyksa viðskiptum við bankana. Séreignarsparnaður Að hluta snýst fyrirhuguð leiðrétting um að leyfa skuldugum heimilum að létta á skuldum sínum í þrjú ár með því að greiða þær niður frekar en að byggja upp séreignarsparnað. Þennan hluta leiðréttingarinnar þurfa heimilin sjálf að bera, þar eð þau munu þá eiga minni lífeyri en ella þegar fram í sækir. Þessu fylgir þó svolítil meðgjöf frá ríkinu að því leyti, að væri séreignarsparnaður- inn leystur út jafnharðan til annarra nota, þyrfti skv. lögum að greiða af honum tekjuskatt. Ríkið verður því af skatttekjum sem þessu nemur í framtíðinni, og bilið þarf að brúa með nýrri skattheimtu, skuldasöfn- un eða niðurskurði útgjalda. Um- fang þess hluta fjármögnunarinnar er ekki auðvelt að meta löngu fyrir fram. Skammgóður vermir Ríkisstjórnin hefði getað reynt að afla trausts á tillögum sínum með því að leggja einnig fram tillögur um framtíðarskipan bankamála, verðtryggingar, afnám gjaldeyris- hafta o.fl., svo að fólkið og fyrirtæk- in í landinu þyrftu ekki að óttast, að allt sæki aftur fljótlega í gamla farið. Engum slíkum tillögum er þó til að dreifa. Enn hallar mjög á lántakend- ur í bankaviðskiptum. Þessa slag- síðu þarf að leiðrétta án frekari taf- ar eins og m.a. Lýðræðisvaktin lagði til fyrir kosningar. Sé það ekki gert, getur aukin verðbólga með óbreyttri verðtryggingu á skömmum tíma étið upp allan hugsanlegan ávinn- ing heimilanna af fyrirhugaðri leið- réttingu, komi hún til framkvæmda fyrir tilstuðlan Alþingis án nauðsyn- legra viðbótarráðstafana. Fari svo, mun leiðréttingin reynast skamm- góður vermir. n Þorvaldur Gylfason skrifar Kjallari „Fari svo, mun leiðréttingin reynast skamm- góður vermir. Allt mitt líf hefur verið í móðu Við bætum hvort annað Gunnhildur Svava Guðmundsdóttir afplánar fangelsisdóm í Tékklandi. – DV Brynja Þorgeirsdóttur um samstarf sitt og Braga í Orðbragði. – DV Einlægur með eindæmum Álitsgjafi DV um Pétur Jóhann Sigfússon, fyndnasta mann Íslands. – DV Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Leiðari „Við erum að brjóta áratuga gömul, alþjóðleg lög um skatt- lagningu á þrotabú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.