Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 30
Helgarblað 6.–9. desember 201330 Umræða Þessir hægrimenn … Umsjón: Henry Þór Baldursson Þ egar Svarthöfði las frétt- ir af tilraun hóps fólks til þess að vanhelga hina til- vonandi moskulóð í Soga- mýri í Reykjavík þá varð hann fyrir vonbrigðum. Ekki vegna þess að það sé slæmt að dreifa svínshausum á moskulóðir, heldur vegna sorglegrar van- þekkingar þeirra sem áttu hlut að máli. Nær hefði verið, að mati Svarthöfða, að opna ham- borgarastað í Sogamýrinni sem býður eingöngu upp á svína- borgara og beikon. Lokkandi ilmurinn myndi þannig kvelja sársvanga múslim- ana hverja bæna- stund, þar til þeir myndu gefast upp og fara aftur til Sádi-Arabíu. Svarthöfði tekur að öðru leyti und- ir með þeim sem eru á móti moskubyggingunni. Svarthöfði er ekki barnaleg- ur og veit hvaða ógn stafar af múslimunum. Múslimar eru ábyrgir fyrir 60 af þeim 2.400 hryðjuverkaárásum sem gerðar voru á bandarískri grund síð- ustu fjóra áratugina rúma. Þetta gera um 2,5 prósent af heildar- fjölda. „Yfirfærðu þetta yfir á fjölda múslima á Íslandi,“ sagði Svarthöfði við einn barnalegan nágranna yfir rjúkandi bolla af arabísku kaffi: „Af þessum 770 múslimum eru þá 2,5 prósent hryðjuverkamenn – NÍTJÁN hryðjuverkamenn!“ Svarthöfði uppskar ekkert annað en ruglingslegt augnaráð og flótta- legar afsakanir, um að nágrann- inn þyrfti nú að „fara að drífa sig að sækja krakkann“. Já, þeir eru fáir sem standast vitsmunalega krafta Svarthöfða. Svarthöfði gefur nefnilega ekki mikið fyrir „pólitíska rétt- sýni“. Hugtök eins og „trúfrelsi“ eða „mannréttindi“ eru bara fyrir vinstri sinnaða vælukjóa, sem elska greinilega múslima meira en Íslendinga. Venjulegir Íslendingar, eins og Svarthöfði, eru eðlilega tortryggnir í garð múslima, enda eru þeir oftast öðruvísi á litinn og elda mat sem lyktar skringilega. Þeir eru líka grunsamlega líkir öðrum lituð- um mönnum í öðrum lönd- um, sem elda líka skringilega lyktandi mat, og kúga konur og drepa fólk í þokka- bót. En á Íslandi er ógnarstjórn réttsýninnar og rödd hins venjulega Ís- lendings heyrist ekki. n Svarthöfði Ógnarstjórn réttsýninnar Ekki lögmál að ríkið reki Rás 2 Nefskattur óheppilegt form til að innheimta skatt, segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra Einar Sigurðsson Hvers vegna standa íslenskir nemendur jafn illa að vígi og raun ber vitni, samanber niðurstöður PISA-könnunarinnar?  Illugi Gunnarsson Það er ekkert eitt svar við þessari spurningu. Við þurfum að skoða mennta- kerfið okkar allt, frá grunni, og reyna að átta okkur á þessum vanda. Það þarf að leggja mat á menntun kennara, námsgögnin sem við notum, kennsluaðferð- irnar, hvernig við prófum börnin o.s.frv. Ég vara við því að dregin sé sý ályktun að það sé eitthvað eitt sem sé að hjá okkur og að það sé hægt að kippa því í liðin með einu átaki. Þetta er verkefni sem mun taka langan tíma og krefst úthalds. Alma Guðmundsdóttir Nú veit ég að þú sjálfur ert menningarlega sinnaður. Kostnaður við föst laun Rásar 1 eru 7% af heildar rekstrarkostnaði RÚV en rekstrarkostnaður yfirstjórnar RÚV 6%. Ekkert var skorið niður í yfirstjórn en 50% niðurskurður fastra starfsmanna á Rás 1. Ert þú ánægður með þessa skiptingu? Ef ekki hyggstu standa með fólkinu í landinu og endurskoða þennan hroðaverknað?  Illugi Gunnarsson Yfirstjórn Ríkisútvarpsins ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar og því að hún fari að lögum og sinni þeim verkefnum sem henni er ætlað samkvæmt sérstökum þjónustusamningi. Framundan er reyndar endurskoðun á þjónustusamningi og nauðsyn- legt að við þá endurskoðun verði horft til þeirra fjármuna sem Ríkisútvarpið hefur til ráðstöfunar og hvernig tryggt sé að unnið sé í samræmi við það hlutverk sem lögin um Ríkis útvarpið kveða á um. En ég vil taka það fram að ég er ekki sammála því að fólk hafi verið rekið frá Ríkisútvarpinu með einhverri skömm. Uppsagnirnar eru komnar til vegna þess að tekjur Ríkisútvarpsins dragast saman þar sem möguleikar þess til að afla tekna á auglýsinga- markaði hafa verið skertar. Þorgerður Sigurðardóttir Styður þú það að helmingi dagskrárgerðarfólks á Rás 1 hafi verið sagt upp á einu bretti, þú sem lagðir sérstaka áherslu á sterka Rás 1 í umræðu á þingi, aðeins nokkrum dögum áður en uppsagnirnar fóru fram?  Illugi Gunnarsson Ég á eftir að sjá endalega útfærslu á því hvernig uppbygging dagskrár- stefnu Ríkisútvarpsins verður í ljósi þeirra fjármuna sem stofn- unin hefur úr að spila. Reynir Traustason Ertu hlynntur því að selja Rás 2 í framtíðinni?  Illugi Gunnarsson Rás 2 gegnir mikilvægu hlutverki, einkum þegar kemur að útbreiðslu og kynningu á íslenskri tónlist, starfsmennirnir þar hafa unnið frábært verk á undanförnum árum og áratugum hvað þá þætti varðar. En það er ekkert lögmál að ríkið sinni sjálft slíku hlutverki, þrátt fyrir að nauðsyn- legt sé að slíkur stuðningur sé til staðar að mínu mati. Ef hægt er með sannfærandi hætti að sýna fram á aðrar aðferðir sem tryggja að sami árangur náist, þá er ég reiðubúinn til að hlusta á allar slíkar hugmyndir. Mestu skiptir að hlutverk Ríkisútvarps- ins sé skýrt og það geti sinni því hlutverki vel. Eyþór Jóvinsson Sæll Illugi, árið 2008 ritaðir þú grein ásamt Bjarna Ben um mikilvægi þess að farið yrði í aðildarviðræður við ESB, hefur afstaða þín breyst? Hvernig vilt þú, persónulega, að sambandi ESB og Íslands verði háttað í framtíðinni? Hvernig telur þú hagsmunum Íslands best borgið?  Illugi Gunnarsson Ég tel að þró- un mála innan ESB undanfarin ár sýni að sambandið mun taka miklum breytingum á næstu árum. Evran mun knýja áfram þær breytingar, aukinn samruni ríkisfjármála evruríkjanna er t.d. óhjákvæmilegur. Hver verður t.d. þá staða þeirra ríkja sem eru í ESB en ekki í evrunni? Mun sambandið þróast í átt að tveggja rása kerfi, annars vegar evruríki sem vinna nánar og nánar saman og hins vegar þau sem eru utan? Með öðrum orðum, það ESB sem við horfðum á 2008 mun breytast í grundvallaratriðum í átt til meiri samruna. Sú staðreynd hefur áhrif á afstöðu mína. Ég tel að EES-samstarfið geti þjónað okkur vel í nánustu framtíð og að Ísland eigi mikil tækifæri m.a. í formi fríverslunarsamninga við ríki Asíu. Páll Kristjánsson Sá haft eftir þér í gær að námslán væru í rauninni niðurgreidd um 31%. Viltu útskýra þessa niðurgreiðslu og hvernig þessi niðurstaða er fundin?  Illugi Gunnarsson M.a. munur- inn á þeim vöxtum sem LÍN þarf að greiða annars vegar og þeim vöxtum sem námsmenn greiða sjóðnum til baka. Heiða Heiðars Varst þú hissa þegar ESB skrúfaði fyrir IPA-styrkina?  Illugi Gunnarsson Ekkert sérstaklega. Daði Ingólfsson Alþingi boðaði til þjóðaratkvæða- greiðslu um nýja stjórnarskrá 20. október 2012. Yfirgnæfandi meiri hluti kjósenda vildi að tillögur stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá og lýsti stuðningi við tiltekin álitaefni sem spurt var um. Hver er þín afstaða? Ber þingmönnum siðferðileg og pólitísk skylda til að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem Alþingi boðar til? Illugi Gunnarsson Þingmenn eru einungis bundnir af samvisku sinni. Ég tel að margt megi nýta af því sem unnið var á síðasta kjörtímabili í þessum málum, en jafnframt verð ég að segja að margt af því sem lagt var til var illa ígrundað að mínu mati. Framundan er vinna við að ná góðri samstöðu um afmarkaðar og vel ígrundaðar breytingar á stjórnarskránni sem hægt er að klára á þessu kjörtímabili. Ég hef góðar væntingar um að það takist. Hallur Guðmundsson Samkvæmt reglugerð sem gildir innan EES er óheimilt að skerða nefskatt á borð við útvarpsgjald til að brúa aðra liði sem fé skortir í. Síðasta stjórn gerði þetta og núverandi stjórn mun halda því áfram. Hvað hvetur ykkur til að ganga gegn þessari reglugerð og brjóta þar með lög?  Illugi Gunnarsson Afmarkaðir tekjustofnar eru langt í frá heppilegt form skattheimtu. Fyrir þá sem borga skatta skiptir engu máli hvað ríkið kallar skatt- inn, hann þarf að greiða. Alþingi hefur síðan vald til að ákveða hvernig sköttum er ráðstafað. Heida Sigurdardottir Ríkis- sjóður stendur illa og ráðherra vill því bíða betri tíma til þess að byggja upp vísindi og fræði hér á landi. Vandamálið er að það er ekki hægt að ýta á pásutakkann og halda að vísindafólk sitji bara og bíði átekta þar til eitthvað breytist. Það verður hér stórfelldur spekileki þar sem hámenntað fólk annaðhvort flyst úr landi eða kemur ekki aftur heim til Íslands eftir nám. Þetta er fólk með áratuga nám á bakinu og gífurlega sérfræðiþekkingu og við missum það í burtu. Hvað á að gera?  Illugi Gunnarsson Framlög til Rannsóknasjóðs og Tækniþró- unarsjóðs verða árið 2014 mun hærri en þau voru árið 2012 og öll árin þar á undan. Við erum sammála um að fjárfestingar í vísindum og þekkingu er aflvaki hagvaxtar, en jafnframt mun yfir skuldsettur ríkissjóður hækka vexti og draga þannig mjög úr hagvexti. Þetta er staðreynd málsins, við aukum við framlögin frá því 2012 en reynum um leið að koma böndum á ríkissjóð. Árelíus Þórðarson Sæll Illugi og til hamingju með útfærsluna á skuldavanda heimilanna. Ein spurning? Hvers vegna má þjóðin ekki kjósa um það hvort halda eigi viðræðum við ESB áfram. Ekki er þetta búið að vera gæfulegt hjá okkur síðustu ár og áratugi þar sem erfitt er að mynda sér framtíðarsýn og væntingar með mjög óstöðugri krónu.  Illugi Gunnarsson Ef kjósa á um eitthvað þá ætti einungis að kjósa um það hvort við viljum ganga í ESB eða ekki. Ef þjóðin vildi ganga inn þá er hægt að halda áfram og ef ekki þá er umsóknin að sjálfsögðu dregin til baka. Aðalmálið er að hvorugur þeirra flokka sem nú er í ríkisstjórn vill að Ísland gangi í ESB og stjórnarandstaðan er klofin í málinu. Það er því mikill meirihluti gegn málinu á nýkjörnu þingi og allt bendir til þess að meirihluti þjóðarinnar sé á móti inngöngu. Nafn: Illugi Gunnarsson Aldur: 46 ára Starf: Menntamálaráðherra Menntun: MBA-gráða í hagfræði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.