Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 36
Helgarblað 6.–9. desember 201336 Fólk Viðtal L árétt haglél lemur gluggana á stúdíói Björgvins í Hafnar- firði eins og hraður trommu- sláttur. Björgvin er ekkert að hafa fyrir því að fara úr yf- irhöfninni í frostinu sem smeygir sér inn fyrir veggina. Situr snún- ingsstól í loðfóðruðum leðurjakka í miðju stúdíóinu og ræðir við upp- tökumeistara sinn. Fréttafíkill Það eru stórir jólatónleikar fram undan en þeir ræða ekki um neitt slíkt heldur fréttir dagsins. Skotárás í Árbænum. Þeir sem þekkja Björgvin vita að hann lætur fátt fram hjá sér fara. Hann er sannkallaður fréttafíkill og áskrifandi að öllum helstu stöðv- um, bæði innlendum og erlendum. Hann er með ástandið í Úkraínu á takteinum og fylgist með látunum í Norður-Kóreu. „Ég vil vera viss um að heimsstyrjöld sé ekki skollin á áður en ég leggst til hvílu á kvöldin,“ segir hann og glottir. „Ég vil hafa heimsmyndina skýra og vil fylgjast með öllu því sem er að gerast í heim- inum. Ég vil lesa öll blöðin og horfa á helstu fréttir.“ Jólatónleikar í hverju horni Þetta er sjöunda árið sem Björgvin heldur jólastórtónleika. Þeir eru í hugum margra ómissandi hluti af hátíðinni. Hann hefur safnað í kring- um sig landsliði tónlistar manna og fleira hæfileikafólki, þeirra á meðal dóttur sinni Svölu, Helga Björnssyni, Eivöru, Eyþóri Inga, Röggu Gísla, Sigríði Thorlacius og Unnsteini Manuel. Að auki stígur stórstjarnan John Grant á svið. Þá mega gestir eiga von á því að sjá og heyra stór- sveit, strengjasveit, karlakór, barna- kór, gospelkór. Í þessum góða hópi er barnabarn Björgvins, Þórunn Lea, sem hann er ákaflega stoltur af. „Ég byrjaði í Laugardalshöllinni 2006 með stóra tónleika með Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Ég byrjaði með fjórar fullar hallir og fannst svakalega gaman að vera með Mela- bandið, stærstu sveit landsins á bak við mig. Eftir þessa tónleika þá hugs- uðum við sem stóðum að þessu að það væri hreinlega gaman að gera meira af þessu. Erlendis er þetta fyrirkomulag vinsælt og þegar við erum að fara af stað þá er ekki eins mikið af þessu. Nú eru í hverju horni jólatónleikar. Það liggur við að þegar þú farir út í sjoppu að kaupa þér kók og pylsu sé þar síðhærður hippi með gítar og kerti að halda jólatónleika,“ segir Björgvin og skellir upp úr. „Þetta hlýtur að vera svona góður bisness fyrst svo margir vilja eiga hlut í honum, en það má vara sig. Þetta er gífurlega áhættusamt og svakalega dýrt. Við vöndum okkur en förum varlega. Tónleikarnir verða tvenn- ir í ár. Að sjálfsögðu myndum við halda fleiri tónleika ef fólkið bæði um það.“ Enn stressaður fyrir tónleika Hann verður enn stressaður áður en hann stígur á svið. „Ef mað- ur finnur ekki fiðringinn í magan- um þá er þetta bara búið. Þá getur maður bara farið heim að leggja sig og láta sér leiðast. Það jafnast ekk- ert á við lifandi tónleika. Þetta gerist bara einu sinni. Upplifunin er sér- stök, þú finnur töfrana í loftinu og adrenalínið streymir.“ Hann segir lykilinn að velgengni sinni vera að vinna með fólki sem er betra en hann á vissum sviðum. „Þetta gerist allt á þessari samsuðu af fólki. Ég er engin díva, en það er stuttur þráðurinn í mér samt. Ég geri sömu kröfu til mín og fólksins í kringum mig. Ég er alltaf að reyna að meika það hjá sjálfum mér. Þar er ég sko að reyna að meika það,“ seg- ir hann og leggur áherslu á orð sín. „Svo er ég með frábæra söngvara og hljóðfæraleikara, landsliðið að mínu viti, og við erum alltaf að reyna að gera okkar besta.“ Alsannur gaflari Talið berst að móður Björgvins, Sig- ríði Þorleifsdóttur. Hún er orðin 92 ára og býr enn í húsi sínu á Álfa- skeiði. „Yngri systir mín býr með henni.Hún vill ekki fara á elliheimili og verður á sínu heimili eins og hún vill. Hún er mjög hress, orðin svolítið þreytt í fót- unum en með allt á hreinu.“ „Yngri systir mín býr með henni. Hún vill ekki fara á elliheimili og verður á sínu heimili eins og hún vill. Hún er mjög hress, orðin svolítið þreytt í fótunum en með fullu viti.“ Björgvin er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og státar sig af því að vera alsannur gaflari. Ég er gaflari, eins og við Hafn- firðingar montum okkur af. Ég er sannur gaflari, af því ég fæddist heima hjá mér í Álfaskeiðinu. Það er æðsta stigið,“ segir hann og glottir. Saga Björgvins sæfara Faðir Björgvins var Halldór Baldvins- son, sjómaður og skipstjóri. Hann lést árið 1999. „Pabbi var sjómaður, skipstjóri og stýrimaður. Hann var alltaf á sjónum. Ég sigldi með honum þegar ég var strákur. Þá fékk ég að fara nokkra túra. Ætli ég hafi verði ellefu eða tólf ára þegar ég fór í fyrsta sinn. Þetta var svona ritjúal sem all- ir bræður mínir gengu í gegnum líka. Ég fór með honum á togara. Það er svolítið gaman að því að hann skrifaði sögu Björgvins sæfara í þessum túr. Hann hélt litla dagbók þar sem hann skrifaði um mig. Hvenær ég vaknaði, hvort ég var sjóveikur og hvert ég fór í höfn. Þetta var æðislega gam- an. Hann var sniðugur og ritfær hann pabbi..“ Tónlistin mallaði undir niðri Björgvin er miðjubarn og á heim- ili hans var ástin á tónlist flestu yfir- sterkari. „Það var mikil músík heima. For- eldrar mínir hlustuðu mikið á tónlist og við hlustuðum líka á Kanann og svona og eldri systkinin héldu partí og við yngri hlustuðum á tónlistina. Þetta lá ekki beint fyrir mér, en undir niðri bjó þetta kannski alltaf í mér án þess að ég vissi af því.“ Lendir í hljómsveit Tónlistin verður hlutskipti hans á unglingsárum. Í Hafnarfirði á ung- lingsárum Björgvins var tónlistarlíf- ið í bænum líflegt. Þar hóf hann feril sinn með hafnfirsku hljómsveitinni Bendix. Í Flensborg steig hann fyrst á svið með þeim og söng bítlalagið Penny Lane. Þar með var tónninn sleginn. „Ég var í Flensborg og við töffararnir í bænum vorum að fara á dans æfingar í Alþýðuhúsinu og Flensborg. Þar var hljómsveit oft að spila sem hét Bendix. Ég lendi eigin- lega í henni. Ég byrja að taka upp fyr- ir þá texta og svoleiðis og fer fljót- lega að finna eitthvað að söngnum hjá þeim. Þeir sögðu mér þá bara að syngja sjálfur og buðu mér svo í bandið. Ég var í þessari hljómsveit í tvö til þrjú ár. Kynnist þá Jónasi R. Jónssyni. Pabbi hans var með sport- vöruverslun hér í bænum sem hét Sportval. Hann var eiginlega læri- faðir minn, var í hljómsveit sem hét Five Pence og ég fékk svona að hanga með.“ Sætir strákar syngja cover-lög Bendix þótti ansi efnileg og Björgvin vakti athygli. Vinur hans Jónas varð söngvari í Flowers en þegar aðrir meðlimir sveitarinnar heyrðu í Björgvini var Jónasi skipt út. „Írónískt var það svo að mér var boðið að ganga til liðs við Flowers. Flowers og Hljómar voru aðalböndin á Íslandi á þessum tíma. Jónas yfirgaf Flowers og ég settur inn í staðinn. Við vorum og erum perluvinir þrátt fyrir þetta.“ Sveitirnar tvær, Flowers og Hljómar, sameinuðust og burða- rásarnir í hvorri sveit stofnuðu Ég er engin díva Björgvin Halldórsson á stundum erfitt með skapið. Það er stuttur í honum þráðurinn og hann á það til að skeyta skapi sínu á öðrum. En hann segist engin díva. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Björg- vin um eldheita ást, lífið og tónlistar ferilinn. Björgvin segir frá gæfunni í lífi sínu og fullkomnunaráráttunni, syninum sem hann eignaðist tvítugur að aldri og tóm- leikatilfinningunni sem hann fyllist um áramót. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is „Ég svaf einn í rúminu með öllum fjórum „Ef ég sé eftir ein- hverju þá er það hversu erfitt ég á með skapið í mér. Á brúðkaupsafmæli í næstu viku Björgvin er hamingjusamlega giftur Ragnheiði Björk Reynisdóttur. Þau eru enn jafn ástfangin og þegar þau hittust fyrst og í næstu viku fagna þau 35 ára brúðkaupsafmæli. Mynd SiGTryGGur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.