Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 41
Helgarblað 6.–9. desember 2013 Lífsstíll 41
Hættu að
„snúsa“
Í skammdeginu freistar að ýta
á svokallaðan „snús“-takka
þegar vekjaraklukkan glymur
í morgunsárið. Þú finnur fyrir
þreytu og þegar þú lætur það eftir
þér að ýta á takkann streymir um
þig vellíðunartilfinning í sama
mund og þú fellur aftur í vær-
an svefn. Því miður gerir „snús-
ið“ þér engan greiða til lengri
tíma litið. Það hefur slæm áhrif
á líkams klukkuna og riðlar inn-
byggðu kerfi líkamans. Auk þess
finnur þú fyrir mun meiri þreytu
heldur en þegar þú ferð á fætur á
sama tíma, dag eftir dag. Vaknaðu
og hættu þessum leiðindasið.
H U G V E K J A
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf
fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði til
starfs í þeirra þágu.
Sölutímabil 5. – 19. desember
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð
Gallerí i8 – Tryggvagötu
Hafnarborg - Hafnarfirði
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Around Iceland – Laugavegi
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun - www.kaerleikskulan.is
D
r. Eric Schweiger húðlæknir
hefur tekið saman algeng-
ustu mistök sem fólk á öll-
um aldri gerir í meðferð
húðar. Hann segir algeng-
ustu mistökin almenn og bendir á að
bæði konur og karlar geri þau. Fólk
getur haft ama af bólum fram á full-
orðinsaldur og samkvæmt dr. Eric er
ýmislegt að varast.
1 Að nota rangar hreinsivörur
Sumir nota hreinsiefni á húðina sem
innihalda efni á borð við salicylic
acid til þess að koma í veg fyrir bólur
til viðbótar við önnur krem með
svipaða virkni. Dr. Eric bendir á að
það sé of mikið af því góða og húðin
líði fyrir það. Of mikið af efnum með
virkum efnum sem eiga að vinna bug
á bólum eykur hættuna á bólgum í
húð. Notið fremur mild hreinsiefni
á húðina sem að þurrkar hana ekki
um of.
2 Of lítill rakiSamkvæmt dr. Eric gleyma
konur á tvítugs- og þrítugsaldri að
nota rakakrem á húðina. Húðin
verður þá of þurr og framleiðir þess
vegna umframolíu. Umframolían
eykur hættu á bólum. Leitið að raka-
kremi sem er án olíu og forðist mjög
rakagefandi krem nema um hávetur
eða ef húðin er virkilega þurr.
3 Breyttu um aðferðStærstu mistök kvenna á
þrítugs- og fertugsaldri eru að nota
sömu vörur og á tvítugsaldri. Það er
ekki sniðugt að halda áfram að nota
húðhreinsiefni sem henta ungu fólki.
Konur átta sig ekki á að ávaxtasýru-
krem getur haft góð áhrif á öldrun
húðar og á bólur og bólgur.
3 Of lítið vatnÞeir sem þjást af húðvanda-
málum eiga það oft sameiginlegt að
drekka of lítið af vökva á hverjum
degi. Húðin líður fyrir það og varn-
irnar falla. Þeir sem huga að því að
drekka nóg af vatni geta bætt mikið
úr vandanum.
4 Óstöðugt og lélegt mataræði
Lélegt mataræði, ofnæmi og óþol
geta ýtt undir húðvandamál. Sumir
fá bólur af osti eða lakkrís, aðrir af
rauðvíni eða salti. Prófaðu að breyta
mataræðinu og borðaðu mat sem
dregur úr bólgum. Ef húðvandinn
er mikill skaltu íhuga listann hér fyr-
ir neðan yfir mat og krydd sem á að
hafa góð áhrif á húðina. n
ritstjorn@dv.is
Burt með bólurnar
n 3 algengustu mistökin í húðumhirðu n Mikilvægt að drekka vatn
Túrmerik Túrmerik er skærgult krydd
sem hefur verið notað í lækningaskyni víða
í Asíu gegn hinum ýmsu meinum. Virka
efnið í túrmerik heitir curcumin, og hefur
það töluvert verið rannsakað sambandi við
liðagigt. Curcumin hefur bólgueyðandi áhrif
og getur gagnast vel í baráttunni við bólur.
Hægt er að nota kryddið í mat en einnig
fæst það í hylkjum í heilsuvörubúðum.
Omega 3 fitusýrur Omega 3 fitusýrur
hafa góð bólguminnkandi og mýkja fitu
í fitukirtlunum. Því er sjálfsagt að taka
fitusýrur eða lýsi daglega.
Grófar trefjar Mikið af góðum trefjum í
fæðu hefur afar góð áhrif á húðina.
Grænt te Í grænu tei eru bæði
andoxunarefni og A-vítamín sem hvort
tveggja gagnast gegn bólum. Það dregur úr
uppþembu og inniheldur efni sem draga úr
öldrun húðarinnar. Prófið að leggja kalda
tepoka beint á húðina til þess að draga úr
bólgum og þrota.
Andoxunarefni og íslenskir
heilsutómatar Tómatar innihalda
andoxunarefni á borð við lycopene sem
er samkvæmt rannsóknum eitt öflug-
asta andoxunarefnið. Það ver húðina
fyrir sólarskemmdum og dregur úr líkum
á t.d. krabbameini og hjartasjúkdómum.
Lycopene nýtist líkamanum betur þegar
búið er að elda tómatinn þannig að þá er
tilvalið að fá sér einn grillaðan, steiktan eða
bakaðan tómat með kvöldmatnum.
Rautt kjöt Fitusnautt og hreint rautt
kjöt inniheldur mikið magn próteins og
járns. Próteinið í rauðu kjöti inniheldur mikið
magn glycine og proline en þau efni auka
framleiðslu kollagens í húðinni. Nýlegar
rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að rautt
kjöt getur haft góð áhrif á óhreina og
bólótta húð.
Zink og selen Þeir sem þjást af bólum
geta prófað að taka inn sink og selen sem
bætiefni, hvort tveggja vinnur gegn bólgu-
myndun í húð.
Matur og krydd sem
hefur góð áhrif á húðina
Almenn og út-
breidd mistök Dr.
Erik segir algengustu
mistökin almenn og
bendir á að bæði konur
og karlar geri þau.
Kamillute og
lofnarblóm
Þeir sem glíma við kvíða ættu að
reyna að fá sér kamillute til að
slá á angistina. Teið þykir virka
afar róandi og ekki skemma fyrir
góð áhrif á maga. Svo virðist sem
virk efni kamillublómahnapp-
anna bæti virkni þarmanna og
rói magann.
Lofnarblómið er annað blóm
sem hefur sefandi áhrif og er
bólgueyðandi. Grísk rannsókn
leiddi í ljós að sjúklingar á tann-
læknastofu reyndust rólegri
ef biðstofan ilmaði af olíu úr
lofnarblómi (lavender).
Margfalt fleiri
með elliglöp
Fjöldi fólks með elliglöp með þre-
faldast áður en árið 2050 geng-
ur í garð. Þetta segja öldrunarsér-
fræðingar en upplýsingarnar voru
gefnar út í aðdraganda ráðstefnu
G8-ríkjanna, stærstu iðnríkja heims,
sem haldin verður í næstu viku.
Elliglöp geta verið af mörgum
toga en algengasta tegund þeirra
er hinn alræmdi Alzheimers-sjúk-
dómur. Engin lyf eru til sem geta
spornað við elliglöpum en þó eru til
lyf sem geta létt fólki lífið sem þjást
af þessari tegund hrörnunar.
Sem fyrr segir er Alzheimers-
sjúkdómurinn algengasta tegund
elliglapa. Auknar lífslíkur fólks, sam-
hliða auknum lífsgæðum, mun gera
það að verkum að þrefalt fleiri munu
þjást af elliglöpum árið 2050 miðað
við stöðuna í dag ef fram heldur sem
horfir.