Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 42
42 Lífsstíll Helgarblað 6.–9. desember 2013 B láa húsið var það stundum nefnt eftir litnum á því. En í mínum huga bar það nafnið Heim. Við félagarnir bjugg- um þar um nokkurt skeið og var sú upplifun einstök að mörgu leyti. Ég kom þar fyrst árið 2003 að ég held og tók mér búseturétt í einu herbergi af mörgum, þó ekki fasta strax, heldur kom þar af og til, en var orðinn nokkuð rótgróinn ári seinna. Að búa í frystihúsi Það gat verið ansi skrautlegur hópur sem dvaldi þar, flestir komu einu sinn eða tvisvar en svo rættist úr þeirra búsetu á annan hátt. Enda var þetta hús ekki hannað til búsetu og eins vorum við ekki velkomnir af eigend- um eða þeim sem þóttust þar ráða ríkjum. Lýsti það sér aðallega í óstöð- ugu rafmagni og hita. Var þá brugð- ið á það ráð að tengjast landrafmagni sem var að finna við höfnina og not- aðir til þess rafkaplar sem einhver hafði skilið eftir við slippinn. Leyst- um við þar með vanda sem fylgir því að vera ekki með slíkan munað sem er nánast nauðsynlegur ekki hvað síst þeim sem í frystihúsi búa. Sá galli var þó á að það varð að rjúfa straum áður en menn fóru á stjá og ekki ráðlagt að tengja fyrr en dimmt var orðið. Líkt var farið að með þvottaaðstöðu, til að leysa það mál tengdum við affall af hitaveitu, sem var að finna við verslunina Ell- ingsen, með slöngum upp á aðra hæð í „bláa húsinu“ þar sem við vor- um búin að koma þúsund lítra fiski- keri sem stöðugt rann í mátulega heitt vatn. Voru mikil þægindi af því. Útsýnið úr fiskikarinu Minning sem tengist þessu kari er eitthvað á þessa leið: Ég lá í karinu snemma morguns og var að dást að Esjunni, hversu formfögur hún væri. Sólin var nýkomin upp og baðaði suðurhlíðar Esjunnar sem glampaði í höfninni sem á sinntu æðarfugl og mávur. Ég naut kyrrðar- innar í morgunsárið til fulls þegar skyndilega fyllist allt af ungu fólki með myndatökuvélar og alls kyns annan útbúnað. Lét ég fara eins lítið fyrir mér sem kostur var enda voru föt mín smá spöl frá karinu sem stóð eitt og sér við veggjabrot og í nokkru skjóli fyrir umferð. Tók liðið til við að mynda fyrirsætur sem stilltu sér upp þannig að höfnin var í bakgrunni og naut ég bætts útsýnis frá keri mínu. Svona leið dágóð stund eða allt þar til að ég missti þolinmæðina og steig upp og gekk í átt að klæðum mínum. Þá brutust út mikil ólæti í þessu fólki sem vissi ekkert um mig á staðnum fyrr en að ég skaust nakinn yfir sviðið í átt að fötunum. Þustu þau þá að og vildu vita hvernig stæði á minni veru þarna en þau kváðust vera nemar í listaskóla og hafa feng- ið leyfi hjá yfirvöldum til að nota þessar húsarústir til myndatöku. Gerði ég hvað ég gat til að skýra út veru mína þarna en er ekki viss um að allt hafi skilist rétt en þetta fólk var frá Frakklandi. Bauð þeim síð- an til stofu þar sem við sátum fram eftir degi, reyktum hass og drukkum vín. Var að þessu hin mesta skemmt- un og góð tilbreyting í grámyglunni. Ekki veit ég hvort þessar mynd- ir birtust nokkurn tímann á prenti en þau ætluðu að senda mér kópíur sem reyndar komu aldrei. Hætti ég að nota þetta fiskikar til líkamsþvotta eftir að lífvana rotta flaut hjá í einni baðferðinni. Bagalegt þegar stiginn fór En salernisaðstaða var slæm og ekki fyrir pempíur, það er nú einu sinni svo að þegar er verið að brjóta utan af manni húsið, þá má alltaf finna stað fyrir hratið í niðurbrotnum veggjum og gólfum. En að það skyldi vera búið að taka stigann sem lá úr kjallaranum, þar sem við komumst inn, upp á fyrstu hæð var bagalegt og hreinlega hættulegt því ekki voru all- ir sem komu við undir það búnir að fara eftir brattri rennu, sem var ætl- uð fyrir lyftara – og búið að brjóta vegginn sem hún studdist við þannig að engan stuðning var að fá. Oft var ástandið þannig að menn biðu niðri eftir að einhver kæmi sem rataði og hægt var að styðja sig við og vissi hvar vasaljósið var geymt. En niðamyrkur var alls staðar nema þar sem við vorum búin að koma okkur fyrir. En við notuðum reynd- ar mjög lítið ljós, nema kerti, það bauð bara upp á ónæði af lögreglu eða húshafa. En rafmagnið nýttist vel til að halda hita og eins var kom- in kæliskápur og sjónvarp sem Gat- an gaf okkur til styrktar, sem og svo margt annað. En götur Reykjavíkur sáu okkur nánast fyrir öllum nauð- þurftum. Mat og klæði. Magaveiki nær óþekkt Það háttar þannig til að við Mýrar- götuna er 10–11 verslun og þar var oftast hægt að fara á bak við og í gám sem var fullur að hágæðavöru sem var oft og tíðum ný, en stundum hafði einhver annar komið og fleytt rjómann ofan af og sátum við þá eftir með fullþroska vöru sem ekki kom að sök ef ostur var. Sá kostur fylgir því að borða útrunnin mat- væli að magaveiki er nánast óþekkt og þakka ég það hinum mikla fjölda gerla sem eru búnir að brjóta mat- inn niður að hluta áður en hans er neytt. Fórum við í 10-11 til að kaupa síga rettur og alltaf eitthvað smávegis af öðrum vörum, þannig að við vor- um orðnir þekktir af þeim sem þar unnu, og lét það fólk þannig að ef við vorum auralitlir þá var það eitt- hvað annað að bjástra er við löbbuð- um fram hjá „kardó rekkanum“. Ég held að það hafi verið skipun frá verslunarstjóra að hafa þann hátt á til að hjálpa okkur við daglegt streð, því að ef eitthvað annað var tekið ófrjálsri hendi þá varð úr því lög- reglumál. Lenti ég aldrei í því sjálf- ur enda var mín veiðislóð annars staðar. Þessa leið til að afla mat- væla hafði ég lært árið 2000 þegar ég kynntist fólki í Rockwell sem aflaði matar fyrir heimilið á þann hátt og tók ég fljótlega þátt í því. Það varð að fara hljóðlega um það því ekki þótti gott að það spurðist út að sá háttur væri hafður á. Eins vorum við búin að finna nokkra staði sem gáfu vel af sér í dósasöfnun, þannig að oft voru komnar tvö til þrjú hundruð dósir og gler, það var nóg til að brúa bilið þangað til eitthvað fór að koma inn af klinki eða seðlum eftir því hvernig gekk hjá hverjum og einum. En oft þurftum við að hvíla stað- inn og ekki ósjaldan var búið að leggja allt í rúst er við snérum til baka, var það bæði slítandi og ekki hvað síður svekkjandi að þurfa að koma sér fyrir aftur og aftur. En við vorum fjórir eða sex sem höfðum ekkert annað húsnæði í að hlaupa nema stund og stund. Reyndar má segja það um okkur flesta að við gát- um svo sem verið annars staðar en það hentar ekki öllum að búa við ör- yggi og hlýju. Stóð í ljósum logum Ekki fær maður ráðið við náttúru- öflin. Eitt sinn vorum við á leiðinni heim þegar þustu hjá slökkvibílar og lögregla. Þegar við komum vest- ur eftir sáum við hvar helmingur- inn af húsinu stóð í ljósum logum og var mikill manngrúi fyrir utan að fylgjast með slökkvistarfi. Ekki er ljóst hvernig kviknaði í en einn af okkur fannst sofandi þar inni og grunar menn að hann hafi verið að elda á hlóðum sem við vorum með í næsta herbergi við það sem við bjuggum í. En eldstæði þetta hafði einn af okkur hlaðið úr múrsteinum og notaði útikerti, sem ólánssamir verslunareigendur höfðu til skrauts við inngang að sínum húsum, sem ylgjafa. Var þeim safnað saman og kertin notuð til kyndingar þegar búið var að loka fyrir hita. Þá slóg- um við upp tjaldi inni í herberginu og nutum ljóss og hita af kertunum. Þessi eldsvoði var eiginlega rot- högg á búsetu manna í þessu merka húsi. Þarna var áður Hraðfrystistöð Reykjavíkur til húsa og byrjaði ég vinnu þar árið 1979; vann þar um nokkurn tíma við loðnufrystingu. Eitthvað reyndum við þó að bjástra áfram í húsinu en það var vart hægt sökum múrbrots og annars skarkala. Var ég farin þaðan norður um vorið 2006 en aðrir brös- uðu þar eitthvað áfram þangað til að aftur brann og múrbrot fór vaxandi. Þá yfirgáfu þeir húsið sem eftir voru, en tveir voru fallnir frá. Huggun Þórðar Það er samt svo að ég minnist þess tíma sem ég var á Mýrargötunni með dálitlum söknuði þó að oft og tíðum hafi það verið erfitt að taka á móti nýjum degi með bjartsýni sér- staklega ef maður var einn en þá er maður mun veikari fyrir því að detta í eitthvert hugarvíl og sjálfs- vorkunn. Leitaði ég þá oft huggun- ar í þá lífsreynslu Þórðar frá Dag- verðará er hann hékk í skipsreiða í átján klukkutíma eftir að skipið sem hann svaf um borð í slitnaði upp frá festum og rak upp í Ólafsvíkurenni og strandaði í norðan stórviðri með gaddi og ofankomu. Þegar hann var spurður um þessa lífsreynslu svaraði hann því til að við þetta hafi runnið af honum öll smámunasemi. n Höfundur er fyrrverandi útigangsmaður „Heimilið“ brann Frystihúsið brann 25. apríl 2005. Það tók reykkafara talsverðan tíma að leita af sér allan grun um að menn væru í húsinu en einum var bjargað út. Mynd FréttABlAðið„Það hentar ekki öllum að búa við öryggi og hlýu „Hætti ég að nota þetta fiskikar til líkamsþvotta eftir að lífvana rotta flaut hjá í einni baðferðinni. Sofið í frystihúsi Hans Alfreð Kristjánsson bjó um tíma á götunni í Reykjavík. Hann var einn þeirra útigangs- manna sem héldu til í gamla frystihúsinu við Mýrar- götu 26 í Reykjavík. Hér á eftir lýsir hann daglegu lífi í þessu yfirgefna húsi; hvernig íbúarnir böðuðu sig í gömlu fiskikari og urðu sér úti um rafmagn og mat. Í dag er Hans Alfreð á betri stað í lífinu. Höfundurinn Hans Alfreð hefur í dag vinnu á heimaslóðum og þak yfir höfuðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.