Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 52
52 Menning H ljómsveitin Mammút var stofnuð árið 2003 en með­ limir hennar eru þau Katrína Mogensen, Alex­ andra Baldursdóttir, Arnar Pétursson, Vilborg Ása Dýradóttir og Andri Bjartur Jakobsson. Sveitin sigraði í Músíktilraunum árið 2004 og sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 2006. Önnur platan, Karkari, kom út árið 2008 og naut vinsælda en lög eins og Svefnsýkt og Rauðilækur slógu í gegn. Platan þótti kraftmik­ il og náði hinum eftirsótta gullplötu­ titli. Nú fyrir skömmu sendi Mammút frá sér sína þriðju breiðskífu en hún heitir Komdu til mín svarta systir og er alls ólík Karkari. Kröftug framkoma þeirra á tónleikum vekur strax athygli, söngkonan Katrína Mogensen, teygir raddsviðið á óhefð­ bundinn máta í anda Bjarkar og stíg­ ur á svið hulin svartri andlitsmáln­ ingu undir áhrifum ljóða Davíðs Stefánssonar. Undir áhrifum „Hún er búin að spila nokkrum sinn­ um svona svartmáluð. Viðbrögðin eru góð. Augun og svipbrigðin kalla svo mikið fram. Titillinn er einmitt sprottinn út frá línu úr ljóði Davíðs Stefánssonar,“ útskýrir Alexandra Baldursdóttir, gítarleikari sveitarinn­ ar. „Komdu til mín svarta systir er brot úr ljóði eftir skáldið, það er að­ allega söngkonan Kata sem sökkti sér ofan í ljóðin, sem fjalla mörg um þroska og breytingar, það var ekk­ ert ákveðið fyrr en við vorum kom­ in með plötuna í hendurnar. Nafnið þótti okkur viðeigandi því það er í sama anda og platan og margt í text­ anum sem vísar í þessa stemningu.“ Lífið breytist hratt Platan hefur verið nokkuð lengi í fæðingu en fimm ár eru liðin frá því að sveitin sendi síðast frá sér plötu. Upptökur á plötunni hófust sumarið 2011 í Kóngsbakka. „Við tókum okk­ ur góðan tíma í að nostra við plötuna, vorum í heila viku í Kóngsbakka og tókum þar upp efni. Eftir það unnum við efni á plötuna í skorpum, í Orgel­ smiðjunni þar sem Magnús Øder var með yfirumsjón með upptökum ásamt því að hljóðblanda plötuna. Ástæðan fyrir því er bara lífið og allar þær breytingar sem við höfum verið að ganga í gegnum,“ segir Alexandra. „Platan er þyngri en annað efni sem við höfum gefið út. Við leituðum meira inn á við. Þegar við gáfum út hina plötuna þá vorum við bara unglingar. Núna erum við á tímabili í lífi okkar þar sem allt gerist hratt. Við erum í námi, mörg búin að lúka námi. Ég er í grafískri hönnun, einn er orðinn húsgagna­ smiður, Andri trommari er að læra að verða kennari. Kata er að útskrif­ ast í myndlist og Ása er myndlistar­ kona. Við höfum af þessum ástæðum, einnig hent miklu af efni. Það hefur úrelst á meðan vegna hraðans.“ Leiddist á Laugarnesinu Mammút var upphaflega stofnuð sem stúlknatríó árið 2003 undir nafninu ROK. Mammút nafnið var þó tekið upp fljótlega og bættust strákarnir í hópinn. Sveitin tók þátt í Músík tilraunum 2004 og fór með sigur af hólmi og sló rækilega í gegn hjá tónlistarunnendum. „Við vorum þrjár stelpur sem byrjuðum, 14 ára vinkonur úr Laugarnesinu sem vorum í sama grunnskóla. Við stelpurnar hugs­ uðum þetta aldrei svona á stelpu­ forsendum. Þessi bransi er karllæg­ ur, en við vorum ekkert að spá í þetta. Við ætluðum ekki að sigra heiminn, við vorum bara aktífir unglingar sem vantaði eitthvað að gera. Við vorum ekki í íþróttum eða neinu svoleiðis en í Laugarnesinu var mikið af íþrótta­ starfi. Okkur leiddist, við vorum í leit að einhverju að gera og vorum allar með brjálaðan áhuga á tónlist.“ Hrökkva eða stökkva Það má segja að sveitin eigi tíu ára starfsafmæli nú í desember enda voru þær enn á barnsaldri þegar þær byrjuðu að spila. Sigurinn í Músík­ tilraunum árið 2003 kom þeim á kortið en nú árið 2013 virðist lán­ ið ætla að leika við sveitarmeðlimi enda hefur platan nýja fengið góð­ ar viðtökur. Nú þegar hafa tvö lög af plötunni fengið töluverða spil­ un, Salt og Blóðberg, og verður ekki annað sagt en að þau gefi fögur fyrir­ heit um verkið í heild sinni. Alex­ andra segir að nú sé það að hrökkva eða stökkva. „Við getum eiginlega ekki lengur verið að bíða og sjá. Við erum að keyra á þetta, sjá hvert við komumst með þetta. Erum spennt og fáum góð viðbrögð úr öllum átt­ um. Okkur langar í tónleikaferðalag og það er ákveðið markmið að kom­ ast með þetta sem lengst. Við erum mjög ánægð með út­ komuna. Þroskinn hefur skilað okkur lengra. Við höfum ekki tekið okkur of alvarlega og ég held að það skili sér.“ n Helgarblað 6.–9. desember 2013 Hljómsveitin Mammút kemur á óvart með dimmri og kröftugri plötu Lífið á ógnarhraða Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is „Þroskinn hefur skilað okkur lengra“ Alexandra segir nýju plötuna hafa tekið langan tíma í vinnslu, að hluta til vegna þess hversu miklar breytingar sveitarmeðlimir voru að ganga í gegnum. Platan endurspeglar breytingarnar. Kraftmikið Söngkonan Katrín er svartmáluð og undir áhrifum ljóða Davíðs Stefánssonar. Ung Hér eru meðlimir Mammút frá árdögum sveitarinnar. Þau fagna tíu ára afmæli í desember. Leita inn á við Nýja platan hefur vakið eftirtekt, hún er dimmari og þyngri en annað útgefið efni sveitarinnar. „Við höfum ekki tekið okkur of alvarlega og ég held að það skili sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.