Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 60
60 Fólk Þ etta var mjög erfitt í byrjun,“ sagði leikkonan Megan Fox í viðtali við US Weekly um óléttuna. Megan eignaðist sitt fyrsta barn fyrir rétt tæp- lega einu og hálfu ári, dreng að nafni Noah Shannon, og á haustmánuðum var opinberað að hún væri barnshaf- andi á ný. „Til að byrja með reyndi óléttan mikið á mig. Með tímanum varð þetta hins vegar fínt.“ Aðspurð um muninn á þessum tveimur þungunum sagðist Megan ekki haft svigrúm til þess að velta því fyrir sér. „Ég hef ekki haft tíma til þess að hugsa um það. Ég er nú þegar með eins árs gamlan strák. Þegar þú ert auk þess að vinna hátt í 16 klukku- tíma á dag þá er enginn tími fyrir þig til þess að velta þér upp úr hlutun- um,“ sagði Megan. Leikkonan er 27 ára og giftist leikaranum Brian Austin Green árið 2010. Hún hefur vakið athygli fyrir leik sinn í mynd- unum Transformers og notið mikilla vinsælda. Skömmu eftir að hafa fætt sitt fyrsta barn fór hún aftur á vinnu- markaðinn og gat því ekki eytt mikl- um tíma með frumburði sínum. „Þegar ég var heima, þá var ég ekki að hvíla mig – ég var að reyna að njóta þess að vera með barninu mínu og eyða tíma með honum. Þetta var mjög erfitt tímabil,“ sagði Megan. n ingosig@dv.is Megan Fox vann mikið og eyddi litlum tíma með frumburði sínum Þungunin var erfið Helgarblað 6.–9. desember 2013 Vinsælustu slúðursíðurnar topp 5 1 Oh No They Didn't Blogg-síðan ONTD er uppfull af slúður- sögum um stjörnurnar vestanhafs. Það sem gerir síðuna jafn framúrskarandi og raun ber vitni er ótrúlegt tengslanet sem höfundar hennar hafa. Þarna kemur slúðrið fyrst. 2 Perez Hilton Allir Íslendingar þekkja Perez Hilton – þann sem kallar sjálfan sig Drottningu fjölmiðla. Hvort það er réttnefni skal ekki segja. Bloggsíða Hilton varð til á sínum tíma vegna þess að kappinn hafði lítið fyrir stafni og sér hann væntanlega ekki eftir þeirri ákvörðun. 3 Gawker Langar þig að vita hvað er að frétta í New York? Gawker er í innsta hring stjarnanna í New York og flytur fréttir af þeim á sinn einstaka hátt. Skemmtileg síða þar sem er nýtt efni í hvert sinn sem hún er heimsótt. 4 Dlisted Michael K. sér um bloggsíðuna Dlisted sem færir fjölmörgum lesendum sínum skemmtilegar slúðursögur af stjörnunum. Húmorinn er hafður að leiðarljósi og dregin er upp skemmtileg mynd af stjörnunum. 5 The Superficial Gríðarlega vinsæl bloggsíða um daglegt líf stjarnanna með ýmsum myndum sem hafa náðst af þeim. Ef þú ert hrifinn af myndaalbúmum, og þá sérstaklega frá verðlaunahátíðum, þá er The Superficial rétta síðan fyrir þig. Karlmenn sem kunna að klæða sig T ískutímarit heimsins keppast við að velja best klæddu karlmennina á árinu sem er senn á enda. DV tók saman þá menn sem flestar tilnefn- ingar fengu og eru svo sannarlega karlmenn sem kunna að klæða sig.  Klassískur Beckham Fyrrverandi knattspyrnustjarnan David Beckham er ekki aðeins þekktur fyrir afrek sín á vellinum. Hann hefur einstaklega næmt auga fyrir laglegum klæðaburði og hefur ýtt úr vör ýmsum vöru- merkjum sem bera nafn hans. Þar ber helst að nefna samstarf hans við verslunarkeðjuna H&M sem gefur út nærfatalínu í samvinnu við Beckham. Samstarfið hefur vakið mikla athygli og varð það til þess að önnur lína Beckhams kom í búðir í haust. Hér má sjá Beck- ham í stórglæsilegum bláum jakkafötum, í hvítri skyrtu með einföldu sniði og með grænt bindi með hvítum smáatriðum í. Klassískt yfirbragð.  Víkingaútlit upp á sitt besta Það segir enginn Johnny Depp fyrir verkum. Hann sér um sig sjálfur og er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir í klæðaburði. Stíll leikarans á sér fáar hlið- stæður og eru þeir teljandi á fingrum annarrar handar sem myndu þora að feta í fótspor hans. Til þess þarf hugrekki. Á þessari mynd skartar Johnny Depp „íslenska víkingaút- litinu“ sem er svo vinsælt um þessar mundir – síðu hári með góða skeggrót. Flottur jakki hans tónar skemmti- lega við smekklegan hatt kappans og dökk umgjörðin á gleraugum hans fullkomnar klæðaburðinn.  Töffaralegur tónlistarmaður Það hefur ekki farið framhjá aðdáendum tónlistarmannsins Justins Timberlake að þar er á ferð algjör töffari. Á þessari mynd sýnir Justin að hægt er að vera með töffaralegt yfirbragð þrátt fyrir ein- faldan klæðaburð. Svört leðurstígvél, gallabuxur, ljósblá skyrta og svört golla. Hann ber svartan hatt á höfði og meðferð- is er hann að sjálfsögðu með regnhlíf. Justin hefur slegið í gegn sem leikari undanfarin ár en tók nýverið upp á því að búa til tónlist að nýju. Allir fagna því og eru lög hans strax komin í efstu sæti vinsældalista um allan heim. Mynd ReuTeRs  Íslandsvinur upp á tíu Íslendingar eiga það til að kalla ýmsar stjörnur Íslandsvini, þrátt fyrir að þær hafi aðeins millilent í Keflavík með örstuttri viðkomu í Bláa lóninu. Það má hins vegar kalla Ryan Gosling Íslandsvin í orðsins fyllstu merkingu, en eins og alþjóð veit dvaldi hann hér á landi í allt sumar við vinnslu nýrrar myndar. Ryan er einstaklega vinsæll meðal kvenþjóðarinnar og stór ástæða þess er hvernig leikarinn klæðir sig. Hann kann það upp á tíu. Hér má sjá kappann mæta á kvikmyndahátíð í Toronto í þessum stórglæsilega brúna jakka með flottum smáatriðum. Innanundir er hann í hvítri skyrtu. ingosig@dv.is Hamingjusöm Megan Fox og Brian Austin Green eru yfir sig ástfangin. Sögusagnir fóru á flug eftir frá- fall leikarans Pauls Walker um að hann hafi ver- ið í kappakstri ásamt vini sínum þegar bílslysið átti sér stað. Vin- ur hans og ökumaður bílsins hét Roger Rodas og var frægur kappakstursbílstjóri. Lögreglan hefur gefið það út að engar vís- bendingar hafi fundist um að annar bíll hafi verið viðriðinn slysið. Vitni segja að þeir hafi ver- ið einir á ferð en óku hins vegar mjög hratt. Þegar slökkviliðið kom á slysstað voru þeir báðir látnir. Mikil sorg ríkir vestanhafs vegna fráfalls þeirra. Voru ekki í kappakstri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.