Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 62
Helgarblað 6.–9. desember 201362 Fólk
GusGus spilar
á Sónar
Tónlistarhátíðin Sónar var
haldin í fyrsta skipti á Íslandi í
febrúar síðastliðnum. Fjölmargir
sóttu hátíðina sem þótti afar vel
heppnuð. Einn af hápunktum
hátíðarinnar var þegar GusGus
tróð upp fyrir framan troðfullan
sal í Silfurbergi. Það braust því
út mikil gleði í vikunni þegar að
standendur Sónar tilkynntu að
Daníel Ágúst og félagar í GusGus
komi til með að leika á hátíð
inni á nýju ári. Sónar 2014 mun
standa yfir í Hörpu frá fimmtu
deginum 13. febrúar til laugar
dagsins 15. febrúar og er miða
salan komin á fullt flug.
Markmaður
bloggar um
tísku
Ásgeir Þór Magnússon, aðstoðar
verslunarstjóri Dressmann í
Smáralind og markmaður í
knattspyrnu, hefur opnað blogg
síðu þar sem hann skrifar um allt
á milli himins og jarðar. Áhuga
svið Ásgeirs nær að stórum hluta
yfir tísku og má finna nytsam
legar upplýsingar um nýjustu
tískustrauma hjá karlmönnum á
síðu hans. Í sumar vermdi hinn
22 ára Ásgeir varamannabekk
Vals í efstu deild og kom við sögu
í þremur leikjum. Undanfarið
hefur hann æft með liði Fram í
Safamýrinni. Skemmtileg tísku
ráð Ásgeirs má lesa á asgeirmag.
wordpress.com.
Ekki enn búinn að
fá draumastúlkuna
Tónlistarmaðurinn Steinar Baldursson segist ekki hafa orðið var við skítkast
M
örg lögin fjalla um eina
stelpu,“ segir Steinar
Baldursson, þekktur
sem Steinar, um um
fjöllunarefni nýútgefinn
ar plötu sinnar. Steinar er í miðjum
próflestri þegar blaðamaður slær
á þráðinn til hans. „Við erum ekki
saman í dag, því miður. Ég held að
hún viti ekki að lögin eru um hana.“
Eftir stutta umhugsun segir
Steinar hins vegar að það kæmi
honum ekki á óvart ef stelpuna sé
farið að gruna eitthvað.
„Hana er pottþétt farið að gruna
að það sé hún sem um ræðir,“ bætir
Steinar við. „Það er hins vegar ekki
þannig að öll lögin á plötunni séu
um hana.“
En hvernig er að afhjúpa sig með
þessum hætti gagnvart hlustendum
sínum?
„Ef ég vildi ekki að fólk heyrði
þetta þá væri ég náttúrulega að
spila þetta inni í herberginu mínu.
Mig langaði að tjá mig,“ segir
Steinar hugsi og segist hafa verið
ansi hrifinn af stúlkunni þegar
hann samdi lögin. Honum líður þó
ekki eins og hann hafi afhjúpað sig
fyrir alþjóð, kannski er það eitthvað
sem hann muni upplifa síðar.
Fór ekki sjálfur til Senu
„Í rauninni var það ekki ég sem
bankaði upp á hjá Senu,“ segir
Steinar um tilurð plötunnar. „Ég
fór upphaflega til Kristins Snæs
Agnarssonar [eins af stofnendum
Hjálma] sem ég hafði kynnst í gegn
um annan aðila. Ég ræddi við hann
um að mig langaði til að gera plötu.
Ég valdi því níu lög sem ég hafði
samið. Kristinn Snær þekkti aðeins
til í Senu og fór síðan með plötuna
til þeirra. Þeir höfðu síðan áhuga á
að gefa hana út,“ útskýrir Steinar en
platan, sem heitir Beginning, hefur
slegið í gegn í vetur.
„Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar. Ég hef að minnsta kosti
ekki séð mikið skítkast. Ég er ótrú
lega þakklátur fyrir hversu vel þetta
hefur gengið. Ég bjóst alls ekki við
því að fólk tæki svona vel í þetta,“
segir Steinar.
Mikil upplifun til að byrja með
Steinar er átján ára tónlistarmaður
sem skaust upp á stjörnuhimininn
fyrr í vetur. Fyrsta lag Steinars, Up,
hefur hljómað á útvarpsstöðvum
landsins og notið mikilla vinsælda.
Steinar gaf nýverið út sitt annað
lag, sem ber titilinn You Know, og
er jafnframt uppáhaldslagið hans á
plötunni.
„Ég er búinn að heyra lögin svo
oft,“ segir Steinar. „Þetta var frekar
mikil upplifun til að byrja með. Þá
var maður aðeins að hækka í græj
unum en núna er maður kannski
búinn að venjast þessu.“
Velgengni Steinars hefur orðið
til þess að hann er orðinn þekktur í
samfélaginu á skömmum tíma. Fólk
er farið að þekkja hann á förnum
vegi og vinabeiðnirnar á Facebook
hrannast inn. „Já, og pókin líka.“
Var búinn að gleyma að hægt
væri að „póka“
„Fólk var að hvísla í kringum mig
svo ég heyrði til,“ útskýrir Steinar.
„Ég fann fyrir því fljótlega eftir að
ég gaf út lagið. Ég er ekki enn bú
inn að átta mig á þessu, en þetta
er mjög skrítið og óvanalegt,“ bætir
tónlistar stirnið hógvært við. Hann
segist ekki hafa breyst eftir skyndi
legan frama sinn og að hann hagi
sér ekki öðruvísi. Enda engin
ástæða til.
„Vinabeiðnirnar eru byrjaðar að
raðast inn eftir að lagið kom út,“
viðurkennir Steinar. „Ég þarf að
fara að tékka á því hversu marga
vini ég á í dag. Ég hef samt aðallega
fengið skilaboð. Ég var líka búinn
að gleyma því að það væri hægt að
póka, en ég uppgötvaði það aftur
eftir að lagið kom út!“
Emmsjé Gauti vill samstarf
„Ég heyrði aðeins í Emmsjé Gauta
og hann vill endilega tékka á ein
hverju,“ svarar Steinar aðspurður
hvort einhverjir tónlistarmenn hafi
haft samband við hann og viðrað
hugmyndir um samstarf. „ Síðan
verð ég með tónleika með Jóni
Jónssyni 19. desember. Það verða
ekki beint jólatónleikar. Ég held að
þetta verði meira þannig að ég byrji
og hiti aðeins upp fyrir Jón. Planið
er að ég taki mín lög og Jón sín lög,
en hver veit nema jólaandinn svífi
yfir vötnum og taki völdin,“ segir
Steinar skáldlega.
Steinar segist vera með fullt af
efni í skúffunni. Hann er með mikið
af hugmyndum að lögum sem eru
þó enn á vinnslustigi. Steinar vonar
að með tíð og tíma geti tónlistin
orðið að lifibrauði hans.
„Þetta er mín ástríða og það sem
ég elska að gera,“ segir viðkunnan
legi tónlistarmaðurinn að lokum. n
ingosig@dv.is
Efnilegur
Steinar er í hópi
efnilegustu
tónlistarmanna
landsins.
Mynd SiGtryGGur Ari
E
ddu Sif Pálsdóttur, dóttur
útvarpsstjórans Páls Magn
ússonar, var vikið úr starfi
í síðustu viku sem íþrótta
fréttamaður Ríkisútvarps
ins. Edda skrifaði pistil á Facebook
síðu sína nokkrum dögum síðar
þar sem hún lýsti undrun á hörð
um viðbrögðum samfélagsins. Þar
sem engar fréttir bárust af því hvort
Edda hefði haldið starfi sínu eður
ei gerðu flestir ráð fyrir því að hún
starfaði áfram á RÚV. Margir jusu úr
skálum reiði sinnar og Edda sagðist
þurfa gjalda þess að vera dóttir
föður síns.
„Það sem ég hef hins vegar
mestar áhyggjur af er samfélags
umræðan,“ skrifaði Edda á Face
booksíðu sína. „Ég hef aldrei tek
ið hana nærri mér eða tjáð mig um
hana en í dag er mér ofboðið. Sér
staklega þegar ég áttaði mig á því að
ég hætti mér varla út fyrir hússins
dyr.“
Í jólablaði NUDE magazine
greinir Edda frá því að hún hyggist
verja hátíðunum í Svíþjóð. Hvort
það er til þess að fá að vera í ró og
næði fjarri dómshörðum Íslending
um kemur ekki fram.
„Þessi jólin verð ég í sumarhúsi
í Svíþjóð þar sem ég ætla að slappa
rækilega af,“ segir Edda í stuttu við
tali í blaðinu. Hún segir að jólin
gefi sér eitthvað til að hlakka til og
ætlar hún að njóta samverunnar
með fjölskyldu og vinum og borða
góðan mat. Ekki kemur fram hvort
Páll Magnússon, faðir hennar, verði
með í för. n
ingosig@dv.is
Edda í Svíþjóð um hátíðarnar
Hætti sér varla út fyrir hússins dyr meðan á uppsögnum stóð
rekin frá rÚV Edda
skrifaði pistil á Facebook í
síðustu viku. Mynd SiGtryGGur AriSorg Vigdísar
„Bróðir minn drukknaði um
verslunarmannahelgi í Hreða
vatni og hans var lengi leit
að. Þetta var gríðarlegt áfall. En
seinna sem fullorðin manneskja
þá hefur mér verið ákveðinn
styrkur að vita af honum. Við
vorum svo miklir vinir,“ segir
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver
andi forseti lýðveldisins í viðtali í
nýjasta tölublaði MAN magasín.
Hún segir að sorgin fyrnist ekki
þó maður læri að lifa með henni.
„Hún er þarna og því verður ekki
breytt. Maður verður að halda
áfram.“