Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Qupperneq 2
2 Fréttir Vikublað 10.–12. desember 2013 Lögðu hald á dóp og sverð Talsvert af amfetamíni fannst við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum framkvæmdi um helgina. Í tilkynningu frá lög- reglunni á Suðurnesjum kem- ur fram að þegar lögreglumenn mættu á staðinn hafi mikil kannabislykt verið í umræddri íbúð. Þar voru fyrir karlmaður og kona sem bæði voru í annar- legu ástandi. Þau voru færð á lögreglustöð þar sem maðurinn viðurkenndi að eiga efnin. Jafn- framt var haldlagt sverð í hans eigu, sem fannst við húsleitina. Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkni- efna. Hann viðurkenndi neyslu og sýnatökur á lögreglustöð stað- festu að hann hefði neytt kanna- bisefna. Þrír farþegar voru í bif- reiðinni og afhenti einn þeirra lögreglumönnum kannabis- blandaðan tóbaksvafning. Ann- ar farþegi framvísaði smáræði af kannabis sem hann var með í krukku í úlpuvasa sínum. Lögreglan minnir á fíkni- efnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkni- efnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í barátt- unni við fíkniefnavandann. Söfnuðu 22 milljónum Leikmenn í tölvuleiknum Eve On- line, sem íslenska leikjafyrirtækið CCP bjó til, söfnuðu 22 milljónum króna fyrir íbúa Filippseyja í söfn- unarátaki sem lauk um helgina. Peningarnir sem söfnuðust verða afhentir Rauða krossi Íslands. Þetta er í fimmta skipti sem CCP ýtir úr vör söfnunarátaki sem þessu til að safna fé til mannúðar- mála. Áður hafa leikmenn í Eve Online stutt við fórnarlömb flóða í Pakistan, fellibyljarins Sandy í Bandaríkjunum, jarðskjálftans á Haítí og kjarnorkuslyssins í Fukos- hima í Japan. Aldrei fyrr hefur jafn mikið fé safnast og að þessu sinni og fór söfnunin fór langt fram úr væntingum að sögn CCP. 830 ökumenn voru stöðvaðir Átta hundruð og þrjátíu öku- menn voru stöðvaðir á höfuð- borgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fimm ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til við- bótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Við umferðar- eftirlitið um helgina naut lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá emb- ætti ríkislögreglustjóra. Yfirmaður íþrótta býr frítt í íbúð RÚV n Er staðarhaldari á Vatnsendahæð n Fylgist með dóti RÚV og vararafstöð K ristín Harpa Hálfdánar- dóttir, yfirmaður íþrótta- frétta hjá Ríkisútvarpinu, býr frítt í húsi RÚV á Vatns- endahæð. Húsið er í eigu ríkissjóðs en RÚV hefur umráða- og ráðstöfunarrétt yfir því. „Ég er staðarhaldari,“ segir Kristín Harpa en húsvörður RÚV bjó áður í íbúð- inni sem er í húsinu. Kristín Harpa býr í húsinu ásamt manni sínum og tveimur dætrum. Hún hefur búið í húsinu í meira en þrjú ár eða síðan húsvörðurinn flutti það- an út eftir að hafa látið af störfum hjá RÚV. Þegar Kristín Harpa er spurð hvort hún greiði leigu segir hún „nei“. Kristín Harpa segir að íbúðin sé ekki stór. „Nei, þetta er frekar lítil íbúð en húsið er stórt […] Þetta er engin höll.“ Hún segir að hún hafi verið beðin um að taka að sér að vera staðarhaldari í húsinu. „Ég veit eiginlega ekkert annað um þetta en það að ég er staðarhaldari […] Ég veit lítið annað um þetta en hvað ég geri þarna.“ Að búa frítt er líklega ágætis búbót fyrir flesta en slíkur ráðahagur þýðir að viðkom- andi getur haldið eftir þeim fjár- munum sem annars færu í greiðslu á húsnæði, leigu eða afborganir af lánum, í hverjum mánuði. Ljóst er að húsnæðiskostnaður er stærsti einstaki útgjaldaliður flestra heim- ila á Íslandi. Kristín Harpa tók við stöðu yfir- manns íþróttadeildar RÚV árið 2010 eftir að hafa áður starfað sem bókhaldari innan stofnunarinnar. Passar dót og vararafstöð Aðspurð segir Kristín Harpa að staðarhaldara þurfi í húsinu út af „öryggishlutverki“. „Það er bara að fylgjast með stórum sal sem er þarna, sem er fullur af dóti frá RÚV, það þarf að fylgjast með öryggis- kerfinu og brunakerfinu og svo er þarna dísilvél, sem þarf að fylgj- ast með og starta reglulega, sem er vararafstöð fyrir RÚV,“ segir Kristín Harpa en hún flutti inn í íbúðina eftir að húsvörðurinn lét af störf- um hjá RÚV, líkt og áður segir. Hvorki Kristín Harpa né eiginmað- ur hennar eru hins vegar starfandi húsverðir hjá RÚV og hún segir að þau fái engin laun greidd fyrir að vera staðarhaldarar, umfram það að fá að búa frítt í húsinu. Skráð annars staðar Kristín Harpa er hins vegar ekki skráð til heimilis í húsinu á Vatns- endahæð heldur er hún skráð, ásamt fjölskyldu sinni, í húsi hjá foreldrum sínum í Álfkonuhvarfi, sem er gata í nágrenni við Vatns- endahæðina. „Það er vegna þess að það er ekki borinn út póstur þangað. Það var þægilegra að fá póstinn bara til foreldranna.“ Ekkert í opinberum upplýsing- um, til dæmis símaskránni eða þjóðskrá, tengir Kristínu Hörpu beint við húsið. Að sama skapi er ekkert í opinberum upplýsingum um húsið sem segir til um hversu stórt það er í fermetrum og Kristín Harpa veit ekki hversu stór íbúð- in sem hún býr í er. Samkvæmt fasteignamati hússins er það hins vegar rúmlega 231,5 milljóna króna virði. Íbúðin er hins vegar aðeins lítill hluti af húsinu. Kristín Harpa segist hafa undirritað samning við rekstrar- svið RÚV áður en hún og fjölskylda hennar fluttu í húsið. Adolf Ingi í mál Nafn Kristínar Hörpu hefur komið upp í fjölmiðlum síðustu daga vegna umræðu um meint ein- eltismál sem sagt er að tengist Adolf Inga Erlingssyni, fyrrverandi íþróttamanni RÚV, en honum var sagt upp störfum í fjöldauppsögn á RÚV í þar síðustu viku. Á frétta- vefnum Vísi.is á föstudaginn var frétt um að Adolf Ingi hefði sætt einelti í starfi. Komið hefur fram að Adolf Ingi ætli sér að höfða mál gegn RÚV út af eineltinu. Orðrétt sagði í fréttinni: „ Vísir hefur talað við ýmsa sem til þekkja, fyrrverandi samstarfs- menn Adolfs Inga og fleiri, sem ekki vilja koma fram undir nafni, og öllum ber saman um að fljót- lega eftir Kristín H. Hálfdánar- dóttir tók við stöðu íþróttastjóra deildarinnar, um 2010, hafi mjög verið að honum þrengt. Verkefn- um hans fór að fækka. Adolf Ingi lýsti til að mynda fáum leikjum á HM 2010 og hann hefur ekki lýst leikjum karlalandsliðsins í hand- knattleik frá árinu 2010, að sögn eins heimildarmanna Vísis, og hefur það vakið athygli út fyrir veggi útvarpshússins.“ Tvö mál Á netmiðlinum Pressunni á þriðjudaginn kom svo fram í við- tali við Adolf Inga að hann hefði vilja hlífa fjölskyldunni sinni við eineltinu á meðan hann vann hjá RÚV en að hann gæti ekki annað en farið í mál: „Vegna þess að ég er ekkert einsdæmi. Þetta er mjög alvarlegt. Þetta er eitthvað sem hefur verið leyft að grassera þarna. Inni á fréttastofunni eru tilvik sem er ekki hægt að kalla neitt annað en einelti. Og fólki hefur liðið mjög illa. Það er mikilvægt að fólk sé tilbúið að ræða þessi mál og ég hef fengið mikil viðbrögð frá gömlum vinnufélögum sem hvetja mig og ýmist segja að þeir sjálfir hafi lent í einelti eða viti af því hjá öðrum,“ sagði Adolf Ingi við Pressuna. Nú hefur nafn Kristínar Hörpu komið aftur upp í tengslum við annað mál hjá RÚV. DV gerði fjölda tilrauna til að ná tali af Eyjólfi Valdimarssyni, forstöðu- manni þróunarsviðs hjá RÚV, á mánudaginn en blaðið náði ekki tali af honum. Erindi DV við Eyjólf var að spyrja hann út í hvernig og af hverju það kom til að Kristín var beðin um að vera staðarhaldari í húsinu á Vatnsendahæð. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Býr frítt Kristín Harpa Hálfdánardóttir býr í íbúð RÚV á Vatnsendahæð. Myndin er tekin þar sem Kristín reyndi að koma ljósmyndara Fréttablaðsins út af vellinum á handa- boltaleik sem RÚV hafði sýningarleyfi á. Mynd HIlMAr Þór GuðMundSSon „Öryggishlutverk“ Kristín segist meðal annars hafa það hlutverk að fylgjast með öryggis- og brunakerfinu. Mynd SIGTryGGur ArI Á Vatnsendahæð Hér sést húsið á Vatnsendahæð sem Kristín býr í sem er í eigu RÚV. Í mál Adolf Ingi Erlingsson ætlar í mál við RÚV út af einelti sem hann segist hafa orðið fyrir. Nafn Kristínar Hörpu hefur komið upp í þeirri umræðu. Mynd SIGTryGGur ArI „Þetta er engin höll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.