Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 3
Fréttir 3Vikublað 10.–12. desember 2013 Iðnbúð 2, Garðabæ | Strikinu 3, Garðabæ | Sími 565 8070 | www.okkarbakari.is Jólabrauðin eru komin Vestfirsk jólabrauð Ítölsk jólabrauð Þ ú og þið standið ekki með auðlindinni sem er fólkið sem vinnur „á gólfinu“. Þú sem MANNAUÐSSTJÓRI ættir að skammast þín,“ sagði tæknimaður á RÚV í svari við tölvupósti starfsmannastjóra stofn- unarinnar í síðustu viku. Tæknimað- urinn brást þar við tölvupósti frá starfsmannastjóranum, Berglindi Bergþórsdóttur, þar sem hún hafði rakið ástæður fjöldauppsagnanna hjá stofnuninni í þar síðustu viku. Pósturinn vakti hörð viðbrögð nokkurra starfsmanna stofnunar- innar sem létu í sér heyra í svari til Berglindar og annarra starfsmanna sem fengið höfðu fjöldapóstinn, líkt og DV greindi frá í síðustu viku. Meðal annars var um að ræða þau Ævar Kjartansson, Unu Margréti Jónsdóttur, Jórunni Sigurðardóttur og Elísabetu Indru Ragnarsdóttur. Beðinn um að halda áfram Tæknimaðurinn lagði þessi orð í belg á eftir hinum starfsmönnunum sem nefndir eru hér að framan. Athygli vekur að hann var einn af þeim starfsmönnum RÚV sem sagt var upp störfum hjá RÚV í fjölda- uppsögnunum en hann var beðinn um að halda áfram störfum hjá stofnuninni vegna skorts á tækni- mönnum og vinnur því út upp- sagnarfrest sinn. Ekki er vitað til þess að þessi orð hans hafi breytt neinu þar um enda eru þeir starfsmenn sem gagnrýndu réttlætingu starfs- mannastjórans ennþá allir starfandi hjá stofnuninni. Fjölmargir núver- andi starfsmenn RÚV eru hins vegar mjög ósáttir með fjöldauppsagnirn- ar og hvernig staðið var að þeim. Á suðupunkti Ástandið innan RÚV eftir að upp- sagnirnar voru tilkynntar er alls ekki gott, líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum. Eiginlega má segja að ákveðið upplausnarástand ríki þar sem stjórnendur stofnunarinnar eru vændir um að stjórna með „pólitísk- um klækjabrögðum“ til að reyna að lægja öldur innan stofnunarinnar. Hörð gagnrýni hefur komið fram á stjórnendur RÚV frá fyrrverandi og núverandi starfsmönnum, bæði opinberlega og eins í tölvupóstun- um sem um ræðir hér. Fullyrða má að í ár hafi aldrei skapast viðlíka ástand innan veggja ríkisfjölmiðilsins og sáust víglínurnar ágætlega í þeirri stað- reynd að á samstöðufundi um RÚV í síðustu viku voru meira en þús- und manns mættir til að sýna sam- stöðu með hinum brottreknu og ræða um vanda og hlutverk stofn- unarinnar. n „Þú ættir að skammast þín“ n Tæknimaður hjólar í mannauðsstjóra RÚV n Upplausnarástand Gagnrýndi starfs- mannastjórann Ástandið á RÚV er við suðumark þessa dag- ana og gagnrýndi tæknimaður starfsmannastjóra fyrirtækisins harkalega í tölvupósti. Framtíð Páls Magnússonar sem útvarps- stjóra mun skýrast á næstu vikum. Mynd SiGtryGGur Ari „Sæl öll Spurningar hafa vaknað um þá aðferð sem valin var í hópuppsögninni í síðustu viku. Það kemur ekki á óvart að margir séu hugsi eftir þessa ömurlegu upp- sagnarhrinu og það er sjálfsagt að skýra hvernig þessi niðurstaða var fengin. Áhersla var lögð á að sama regla gilti fyrir alla sem áttu í hlut. Því var lokað fyrir aðgang að húsnæði og tölvukerfum samdægurs. Með þessu var ekki verið að lýsa yfir vantrausti á einn né neinn, heldur þurfti að taka tillit til umfangs aðgerðar- innar og þeirra öryggisferla sem unnið er eftir. Einnig hafa vaknað spurningar um hvers vegna fólki gafst ekki kostur á að vinna uppsagnarfrestinn. Þar gildir hið sama, þ.e. að vegna umfangs aðgerðar- innar varð eitt yfir alla að ganga. Það þótti verri kostur gagnvart öllum hlutað- eigandi að nær fjörutíu starfsmenn sem sagt var upp ynnu út uppsagnarfrestinn. Lokað var á netföng þeirra sem sagt var upp. Ætlunin var að starfsmenn fengju lesaðgang að tölvupóstinum sínum en þeir gætu ekki sent tölvupóst. Því miður er sá möguleiki ekki fyrir hendi. Þeir sem látið hafa af störfum hafa hins vegar, í samráði við næsta yfirmann, aðgang að sínum pósti og geta jafnframt sett inn upplýsingar um sitt eigið netfang. Að lokum og þessu tengt þá hefur skap- ast umræða um Facebook-síðu RÚVara, tilgang hennar og tilurð. Síðan var opnuð með það að markmiði að styrkja tengsl starfsfólks og bæta upplýsingaflæðið hér innanhúss. Raunin hefur orðið sú að þarna skiptist fólk á skoðunum og gjarnan um vinnutengd málefni. Frá byrjun hefur aðgangur að síðunni fallið niður við starfslok, enda ýmislegt sem þarna kemur fram sem varðar eingöngu starfsemi RÚV. Í gegnum þetta erfiða ferli hefur það verið leiðarljós allra sem komu að undirbún- ingnum að vanda hann eins og mögulegt er og gera hlutina eins fagmannlega og nokkur kostur var. Vel má vera að eitthvað hefði mátt gera öðruvísi eða jafnvel betur og er það þá miður. Í svona stórum aðgerðum er eflaust erfitt að gera allt rétt, enda útséð að útkoman yrði því miður alltaf áfall fyrir okkur öll. Með kveðju, Berglind.“ ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Tölvupósturinn umdeildi frá starfsmannastjóra RÚV „Þú og þið standið ekki með auð- lindinni sem er fólkið sem vinnur „á gólfinu“. Flestir treysta gæslunni 82 prósent landsmanna bera mikið traust til Landhelgisgæsl- unnar samkvæmt niðurstöðum könnunar sem MMR fram- kvæmdi á dögunum á trausti almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála. Í ljós kom að traust til flestra stofnana sem könnunin náði til minnkaði frá síðustu könnun í nóvember 2012. Traust á dómskerfinu í heild hefur dregist nokkuð saman og sögðust 38,1 prósent bera mik- ið traust til þess, samanborið við 44,5 prósent í fyrra. Ríkis- lögreglustjóri nýtur trausts 55,1 prósents landsmanna saman- borið við 64,9 prósenta í fyrra. Þá nýtur sérstakur saksóknari trausts 64,9 prósenta lands- manna. Þeim fækkar nokk- uð sem segjast bera traust til Útlendingastofnunar. 36,1 pró- sent sögðust nú bera lítið traust til stofnunarinnar saman borið við 26,3 prósent í nóvember í fyrra. 963 svöruðu könnun MMR sem framkvæmd var dagana 26. til 28. nóvember síðastliðinn. n Er staðarhaldari á Vatnsendahæð n Fylgist með dóti RÚV og vararafstöð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.