Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 4
4 Fréttir Vikublað 10.–12. desember 2013 Jólaþorpið í Hafnarfirði er opið allar aðventuhelgar kl. 12-17 19. og 20. desember kl. 16-21 Þorláksmessu kl. 16-21 Dagskrá, myndir o.fl. á Facebook Þingmaður fær ekkert afskrifað Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ætlaði að berjast fyrir þá sem skulda E lsa Lára Arnardóttir, þing­ maður Framsóknarflokks­ ins, mun líklega ekki fá krónu afskrifaða í boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinn­ ar. Ein helsta ástæðan fyrir því að hún settist á þing var til að berjast fyrir leiðréttingum þeirra sem væru með verðtryggðar skuldir. Leið­ réttingin, eins og áætlun ríkisstjórn­ ar Framsóknarflokks og Sjálfstæðis­ flokks heitir, gerir ráð fyrir því að færa niður verðtryggðar húsnæðis­ skuldir einstaklinga sem nemur verðbótum umfram 4,8 prósent á ári. Þá koma fyrri aðgerðir stjórn­ valda, þar á meðal sérstakar vaxta­ bætur og 110% leiðin, til frádráttar þeim rétti sem fólk á vegna nýju að­ gerðanna. Hefur þegar fengið afskrifað Elsa Lára kom fram í sjónvarps­ þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í lok ágúst og talaði opinskátt um skuldamál sín. Þar kom fram að hún og eiginmaður hennar hafi tekið 26 milljóna króna lán árið 2006 fyr­ ir fokheldri fasteign sem þau fluttu inn í rétt fyrir jól sama ár. Lánið stóð í 39 milljónum króna þegar viðtalið var tekið en á þeim tímapunkti hafði hún fengið 5,8 milljónir af­ skrifaðar vegna 110% leiðarinnar. Það kemur, eins og annað sem hún kann að hafa fengið afskrifað, til frádráttar þeim fjórum milljónum sem hún á mögulega rétt á vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Séreignarlífeyrissparnaðarleiðin stendur Elsu Láru og manninum hennar þó til boða. Sem þingmaður hefur hún tekjur sem tryggja henni fullan rétt til inngreiðslu sparnað­ ar á lánin og getur hún því sett hálfa milljón árlega inn í sjóðinn næstu þrjú árin; samtals 1,5 milljónir króna. Það gæti skilað henni lækk­ aðri greiðslubyrði en eins og fjallað var um í helgarblaði DV getur verð­ bólguskot étið upp þá inngreiðslu á stuttum tíma. Margir fá ekki fulla leiðréttingu Fyrri ríkisstjórn réðst í nokkrar að­ gerðir sem voru mismunandi að umfangi til að reyna að rétta hlut skuldara. Aðgerðirnar sem um ræðir eru áðurnefnd 110% leið, greiðslufrestanir, sérstök vaxta­ niðurgreiðsla, greiðslujöfnun einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði og sértæk skuldaaðlögun. Allar þær aðgerðir koma til frádráttar. Aðeins þeir sem ekki hafa skuldað nógu mikið og verið of tekjuháir til að eiga rétt á 110% leiðinni eða sérstakra vaxtabóta fá það sem ríkisstjórnin hefur metið sem sanngjarnar bætur fyrir verðbólguna frá desember 2007 til ágúst 2010. Samkvæmt yfirliti í kynningu sér­ fræðingahóps ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána hafa minnst 66 þúsund af þeim 70 þúsund heimilum sem skulda verð­ tryggð fasteignalán fengið einhvers konar leiðréttingu eða aðstoð vegna skulda sinna. Langflestir fengu sér­ stakar vaxtabætur árin 2011 og 2012. Það eru því margir í sömu stöðu og Elsa Lára og fá ekki það sem þeir eiga rétt á samkvæmt forsendum stjórnarinnar. n Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Íbúafundur vegna tíðra bilana Boðað hefur verið til íbúafundar á Akranesi á fimmtudag vegna ástands í hitaveitumálum. Að­ faranótt mánudags varð þriðja bilunin í aðveituæð hitaveitunn­ ar á skömmum tíma. Tíðar bilanir hafa valdið bæjarbúum nokkrum óþægindum og sagði Kjartan Kjartansson, framkvæmdastjóri hjúkrunar­ og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi, að nokkuð hafi kólnað innandyra. „Þetta var ekki alveg eins slæmt og það hefði get­ að orðið,“ sagði Kjartan við DV.is í síðustu viku þegar önnur bilun­ in varð. Í tilkynningu sem orku­ veitan sendi frá sér á þriðjudag kemur fram að ákveðið hafi ver­ ið að breyta framkvæmdaröð við endurbætur á hitaveitunni þannig að á næsta ári verði settur upp stærri miðlunargeymir fyrir heitt vatn í bænum. Með því munu fyrirsjáanlegar bilanir á lögninni hafa minni áhrif á afhendingarör­ yggi á heitu vatni í bænum. Geymirinn sem nú er í notkun rúmar tvö þúsund tonn af vatni en ráðgert er að byggja annan næsta sumar sem tekur fimm til sex þús­ und tonn. Skuldaði Elsa Lára steig fram í sumar og sagði frá eigin skulda- stöðu. Hún fékk aðstoð vegna skulda í 110% leiðinni og á því ekki rétt á frekari aðstoð. Fimm ákærðir báru vitni Skýrslur voru teknar af vitnum, sakborningum og fórnarlömbum í Stokkseyrarmálinu svokallaða fyrir dómi á mánudag. Þar komu fram lýsingar á fólskulegum lík­ amsmeiðingum og misþyrming­ um, sem stóðu yfir í hálfan sól­ arhring. Fimm einstaklingar eru ákærðir fyrir frelsissviptingu og grófar barsmíðar; Stefán Logi Sí­ varsson, Stefán Blackburn, Dav­ íð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnars­ son. Aðalmeðferð heldur áfram í dag, þriðjudag, en málinu verða gerð ítarleg skil í helgarblaði DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.