Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Qupperneq 11
Vikublað 10.–12. desember 2013 Fréttir 11
Auðmenn Kópavogs
1
25
7
10
1 Sigurður Sigurgeirsson 50 ára
Eignir: 3,2 milljarðar kr.
n Ríkasti Kópavogsbúinn
er verktakinn Sigurður
Sigurgeirsson. Sigurður
átti verktakafyrirtækið JB
Byggingarfélag sem hann
seldi um sumarið 2007 á
3,5 milljarða. Sigurður hafði
byggt fyrirtækið upp á um
20 ára tímabili og hann var einn
stærsti verktakinn í uppbyggingu
Kópavogs.
3 Ingi Guðjónsson 54 ára
Eignir: 1,4 milljarðar kr.
n Lyfjafræðingur og
einn af stofnend-
um lyfjaversl-
unarkeðjunnar
Lyfju árið 1996.
Hann hefur
reglulega verið
með þeim efstu
á lista yfir hæstu
skattgreiður landsins.
Ingi gegndi starfi framkvæmdastjóra
hjá Lyfju allt til ársins 2006 þegar
hann lét af störfum, tíu árum eftir
stofnun fyrirtækisins. Hann hefur
einnig hagnast á fjárfestingum. Í
fyrra seldi félag í eigu Inga húsnæðið
sem heilsugæslan í Álfheimum er
í. Hagnaður af þeirri sölu hljóp á
tugum milljóna.
7 Friðrik Guðmundsson 59 ára
Eignir: 740 milljónir kr.
n Friðrik Guðmunds-
son er fyrrverandi
útgerðarmaður
frá Þorlákshöfn og
var skattkóngur
á Suðurlandi árið
2008. Hann býr ásamt
eiginkonu sinni, Gitte
Jakobsen, í Fagraþingi.
„Lykillinn að að minni velgengni var salan á
fyrirtækinu Hafnarnesi. Ég get nú ekki sagt
að þetta hafi breytt miklu í mínu lífi eða mér
sjálfum,“ sagði Friðrik í samtali við DV.
4 Vilborg Björk Hjaltested 51 árs
Eignir: 1,3 milljarðar kr.
n Vilborg Björk er systir
Þorsteins Hjaltested og
rekja má auðæfi hennar
til Vatnsenda, þar
sem bróðir hennar býr.
Vilborg er lífeinda-
fræðingur með sýkla-
og veirufræði sem sem
sérgrein en hún útskrifaðist
frá Tækniskóla Íslands árið 1986.
Hún starfar sem heilsumarkþjálfi.
2 Þorsteinn Hjaltested 53 ára
Eignir: 2,7 milljarðar kr.
n Árið 2011 var Þorsteinn
skattkóngur Íslands,
en hann býr að Vatns-
enda sem miklar
deilur hafa staðið um.
Hæstiréttur staðfesti
í vor þann dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur að
jörðin tilheyrði dánarbúi
Sigurðar Kristjáns Hjaltested
en ekki Þorsteini, sem hafði erft jörðina
eftir föður sinni Magnús. Þorsteinn er þó
enn þinglýstur eigandi hennar og það var
staðfest í Hæstarétti nýverið.
5 Kristrún Ólöf Jónsdóttir 70 ára
Eignir: 1 milljarður kr.
n Móðir Vilborgar og Þorsteins Hjaltested
og ekkja Magnúsar Hjaltested óðalsbónda.
Kristrún Ólöf er skráð fyrir einbýlishúsi á Vatns-
enda, sem metið er á 60 milljónir.
4