Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Qupperneq 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 10.–12. desember 2013
SpilltuStu ríki heimS
S
ómalía, Norður-Kórea,
Afganistan, Súdan, Suður-
Súdan og Líbía eru spillt-
ustu ríki heims. Þetta er
niðurstaða Transparency
International, stofnunar sem í
tuttugu ár hefur safnað saman
upplýsingum um og unnið gegn
spillingu í stjórnmálum og við-
skiptum. Stofnunin hefur lagt
sérstaka áherslu á að uppræta
mútur og mútuþægni sem og aðr-
ar tegundir spillingar. Löndin
sem skrapa botninn á listanum,
sem í heildina telur 175 þjóðir,
eiga það öll sameiginlegt að glíma
við erfið leika af ýmsum toga, svo
sem fátækt eða stjórnleysi eins og
raunin er í Sómalíu.
Meirihluti ríkja heims glímir
við spillingu í ríkisstofnunum
ef marka má niðurstöður
Transparency International. Tveir
þriðju hlutar þeirra þjóða sem
skoðaðar voru fengu minna en 50
stig í úttektinni. 0 þýðir að innviðir
ríkis, svo sem ríkisstofnanir, séu
mjög spilltir en 100 þýðir að svo
gott sem engin spilling fyrirfinnist.
Danmörk og Nýja-Sjáland
fengu hæstu einkunnina, eða 91
stig af 100 mögulegum. DV skoðar
hér spilltustu ríki heims og leggur
mat á hvað það er sem gerir þau
spilltari en önnur ríki. n
n Ný skýrsla frá Transparency International n Sómalía, Norður-Kórea og Afganistan skrapa botninn n Ekkert Evrópuríki á listanum
Baldur Guðmundsson
og Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is / einar@dv.is
Tsjad
Stig: 19
Íbúafjöldi: 12,5 milljónir
Lífslíkur: 51 ár
Þjóðarleiðtogi: Idriss Déby
n Olíuríkið Tsjad er
á meðal spilltustu
landa heims – eins
og reyndin er oft
þegar olía leikur
lykilhlutverk í efna-
hagnum. Sagt er að
sífellt fleiri lands-
menn geri sér nú grein fyrir því að spillingin
standi efnahagslegum framförum fyrir
dyrum. Þeirri blekkingu er þó haldið að fólki
að olíuauðurinn muni hjálpa þeim fátæk-
ustu að brjótast til betra lífs. Það er ósatt
því ríkisstjórnin hirðir allan aurinn.
Haítí
Stig: 19
Íbúafjöldi: 10,2 milljónir
Lífslíkur: 63 ár
Þjóðhöfðingi: Michel Martelly
n Haítí er
spilltasta
landið í
gjörvallri Am-
eríku. Spilling
er rótgróin í
þessu fátæka
landi, sem
hefur mörg undanfarin ár komið afar
illa út úr helstu alþjóðlegum mæli-
kvörðum. Árið 2006 naut landið þess
vafasama heiðurs að teljast spilltasta
ríkis heims. Í landinu ríkir stjórnleysi
eftir nýlega uppreisn landsmanna
gegn forsetanum. Náttúruhamfarir
hafa farið illa með landið og íbúa
þess en skemmst er að minnast þess
að 300 þúsund manns slösuðust í
risajarðskjálfta sem varð í janúar 2010.
Íslendingar voru fyrstir til hjálpar.
16
Miðbaugs-Gínea
Stig: 19
Íbúafjöldi: 736 þúsund
Lífslíkur: 54 ára
Þjóðhöfðingi: Teodoro Obiang Nguema Mbasogo
n Smáríkið hefur lengi verið talið
á meðal þeirra spilltustu í heimi.
Forsetinn Obiang, sem hefur
stýrt landinu frá árinu 1979, hefur
orð á sér fyrir að vera einhver
harðsvíraðasti þjóðhöfðinginn
í Afríku. Hann hefur til dæmis
haldið því leyndu fyrir þjóð sinni
hvað hún fær miklar greiðslur fyrir gríðarstórar olíulindir
sínar. Það veit enginn nema hann og hans nánustu.
Óháðir aðilar hafa upplýst að fjölskylda forsetans hafi
þegið miklar fjárhæðir frá bandarískum olíufélögum.
Mannréttindi í landinu eru fótum troðin og fátækt
íbúanna mikil. Færri en fleiri hafa aðgang að hreinu
drykkjarvatni.
12–15
Minnst spilling
Sæti Þjóð Stig
1.–2. Danmörk 91
1.–2. Nýja Sjáland 91
3.–4. Finnland 89
3.–4. Svíþjóð 89
5.–6. Noregur 86
5.–6. Singapúr 86
7. Sviss 85
8. Holland 83
9.–10. Ástralía 81
9.–10. Kanada 81
11. Lúxemborg 80
12.–13. Þýskaland 78
12.–13. Ísland 78
14. Bretland 76
15.–17. Barbados 75
15.–17. Belgía 75
15.–17. Hong Kong 75
18. Japan 74
19.–20. Bandaríkin 73
19.–20. Úrúgvæ 73
Önnur spillt lönd
Sæti Þjóð Stig
160.–161. Erítrea 20
160.–161. Kambódía 20
157.–159. Simbabve 21
157.–159. Mjanmar 21
157.–159. Búrúndí 21
154.–156. Tadsjikistan 22
154.–156. Kongó 22
154.–156. Lýðveldið Kongó 22
153. Angóla 23
150.–152. Paragvæ 24
150.–152. Kirgisistan 24
150.–152. Gínea 24
143.–149. Úkraína 25
143.–149. Papúa-N. Gínea 25
143.–149. Nígería 25
143.–149. Íran 25
143.–149. M.-Afríkulýðveldið 25
143.–149. Kamerún 25
139.–142. Úganda 26
139.-142. Laos 26
139.–142. Kasakstan 26
139.–142. Hondúras 26
Sýrland
Stig: 17 stig
Íbúafjöldi: 22,4 milljónir
Lífslíkur: 75 ár
Þjóðhöfðingi: Bashar al-Assad
n Ástandið
í Sýrlandi
hefur varla
farið fram
hjá nokkrum
manni sem
fylgst hefur
með fréttum
undanfarin misseri. Upplausn hefur
ríkt í landinu frá því í apríl 2011, þegar
tiltölulega friðsöm mótmæli í anda
arabíska vorsins breyttust í mótmæli
gegn einræðisstjórn landsins. Öryggis-
sveitir ríkisstjórnarinnar brugðust við af
fullri hörku og tóku aðgerðasinna af lífi
í stórum stíl. Allar götur síðan hefur ríkt
borgarastyrjöld í landinu, sem er illa
leikið eftir átökin. Helstu bandamenn
Sýrlendinga eru Rússar.
Líbía
Stig: 15
Íbúafjöldi: 5,7 milljónir
Lífslíkur: 65 ár
Þjóðarleiðtogi: Ali Zeidan
n Eins og
flestum er
kunnugt
hefur hálfgerð
skálmöld ríkt í
Líbíu á undan-
förnum árum
sem náði
hámarki þegar Muammar Gaddafi var
veginn árið 2011. Spilling ríkti í Líbíu á
valdatíma Gaddafis og ástandið hefur
lítið batnað þótt hann sé farinn frá
völdum. Mútugreiðslur eru útbreitt
vandamál í Líbíu og virðast, þrátt fyrir
allt, oft leysa vandamál frekar en að
skapa þau.
Venesúela
Stig: 20
Íbúafjöldi: 30 milljónir
Lífslíkur: 75 ár
Þjóðarleiðtogi: Nicolas Maduro
n Venesúela er á
meðal spilltustu
ríkja heims, rétt eins
og sumar nágranna-
þjóðirnar. Frá því
olíuvinnsla hófst í
landinu snemma á
tuttugustu öldinni
hefur stjórnarfar í landinu versnað til
muna og aukið á spillingu. Herforinginn
Chavez stýrði landinu frá árinu 1999 allt til
dauðadags þann 5. mars síðastliðinn og
við tók Nicolas Maduro. Á valdatíma sínum
tókst Chavez ekki að uppræta spillingu,
eins og hann lofaði þegar hann tók við en
tíminn einn mun leiða í ljós hvort Maduro
takist það. Spilling er landlæg í Rómönsku-
Ameríku en þykir þó sýnu verst í Venesúela,
sem iðulega er líkt við Afríkuríki.
Gínea-
Bissá
Stig: 19
Íbúafjöldi: 1,6 milljónir
Lífslíkur: 50 ár
Þjóðarleiðtogi: Manuel Serifo
Nhamadjo
n Gínea-
Bissá er
lítið land á
vestur-
strönd
Afríku
þar sem
töluvert
ójafnvægi hefur ríkt undanfarin
ár. Valdarán var framið í landinu
í fyrra og þá er landið miðstöð
fíkniefnasmygls. Hátt settir
aðilar eru sagðir taka við mútum
fyrir þögn sína og halda hlífiskildi
yfir eiturlyfjasmyglurum. Ríkið
hlaut sjálfstæði árið 1974 og hefur
ójafnvægi í stjórnkerfinu skapað
ófá vandamál fyrir íbúa; gagnsæi
er lítið sem ekkert og glíma íbúar
við mikið óöryggi sem ekki sér
fyrir endann á.
12–15