Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 21
Umræða 21Vikublað 10.–12. desember 2013 Smáborgararlegt og hámark lágkúrunnar Ég er með Asperger Leiðist þér í sendiráðinu Julian? Linda Pétursdóttir um ævisögu Hemma Gunn. – Facebook Susan Boyle. – The Guardian Birgitta Jónsdóttir. – Facebook Þ egar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, var gert ráð fyrir því, að þeir yrðu viðbót við almannatryggingar. Laun­ þegar samþykktu að greiða ákveðið hlutfall launa sinna í líf­ eyrissjóð gegn ákveðnu mótfram­ lagi atvinnurekenda. Síðan áttu launþegar að fá lífeyrinn úr líf­ eyrissjóðnum greiddan að fullu, þegar þeir færu á eftirlaun. Þá áttu þeir að fá greiddan þennan við­ bótarlífeyri ásamt lífeyri almanna­ trygginga. Gerist þetta ekki svona? Nei, ekki aldeilis. Launþegi, sem hefur 70 þús. kr. á mánuði í lífeyri úr lífeyrissjóði, fær engan lífeyri úr almannatryggingum. Ríkisvaldið dregur af þessum eftirlaunamanni nákvæmlega jafnháa upphæð hjá Tryggingastofnun ríkisins eins og nemur lífeyri hans frá lífeyrissjóði. Launþeginn, sem samviskusam­ lega hefur greitt í lífeyrissjóð alla sína starfsævi, fær því ekkert hærri lífeyri alls frá almannatryggingum og lífeyrissjóði en sá, sem aldrei hefur greitt eina krónu í lífeyrissjóð. Það er líkast því sem lífeyrir þessa manns í lífeyrissjóðnum hafi verið gerður upptækur! Menn spyrja: Er þetta löglegt. Er þetta ekki eigna­ upptaka? Ég hallast að því, að svo sé. Lífeyrissjóðakerfið gæti sprungið! Það verður að stöðva þessa „eigna­ upptöku“ þegar í stað. Ríkisvaldið verður strax að stöðva það, að Tryggingastofnun ríkisins geti skert lífeyri þeirra eldri borgara, sem fá lífeyri úr lífeyrissjóði. Gerist það ekki, verður uppreisn gegn lífeyris­ sjóðakerfinu. Það er svo mikil óá­ nægja í dag með þessar skerðingar, að það er rétt með naumind­ um að launþegar fáist til þess að greiða iðgjöldin í lífeyrissjóðina. Launþegum finnst eins og það sé verið að blekkja þá, það sé verið að plata þá. Inn í þessa óánægju blandast óánægjan með stjórnar­ fyrirkomulag lífeyrissjóðanna. Sjóðfélagarnir sjálfir kjósa ekki stjórnarmenn lífeyrissjóða beinni kosningu heldur eru það ASÍ og SA, sem kjósa stjórnarmenn lífeyris­ sjóðanna. Þessu verður að breyta. Sjóðfélagar eiga sjálfir að kjósa stjórnarmennina, alla eða flesta. Ég er ekki viss um, að forusta að­ ila vinnumarkaðarins geri sér ljóst hve mikil óánægja er í dag með líf­ eyrissjóðakerfið. Mitt mat er það, að ef ekki verður strax brugðist við og skerðingar tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði stöðvað­ ar, geti lífeyrissjóðakerfið hæglega sprungið. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík ályktaði um mál þetta. Þar sagði svo: Jafnframt fer kjaranefndin fram á það, að ríkisstjórnin stöðvi þegar í stað skerðingu lífeyris aldraðra frá almannatryggingum vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Þessi skerðing er svo mikil í dag, að hún eyðir með öllu ávinningi margra ellilífeyrisþega af því að hafa greitt í lífeyrissjóð. Í þessu sambandi vís­ ar kjaranefndin í ályktun aðalfund­ ar FEB í Reykjavík á þessu ári um þetta efni. Það er einnig krafa eldri borgara, að hætt verði að skerða lífeyri aldr­ aðra frá almannatryggingum vegna atvinnutekna. Landsfundur LEB á þessu ári ályktaði, að atvinnutekjur 67 ára og eldri ættu ekki að skerða lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofn­ un. Það á ekki að refsa eldri borgur­ um fyrir að vinna. Loforðin við lífeyrisþega verði efnd Í aðdraganda þingkosninganna sl. vor gáfu núverandi stjórnarflokkar öldruðum og öryrkjum mjög ákveðin kosningaloforð. Stærsta kosninga­ loforðið var, að kjaragliðnunin, sem varð sl. 4 ár, skyldi leiðrétt strax. Með kjaragliðnun er átt við það, að kaup láglaunafólks hækkar mun meira en lífeyrir aldraðra og öryrkja. Lögum samkvæmt á lífeyrir að hækka í sam­ ræmi við hækkun lægstu launa og í samræmi við hækkun neysluverðs. En skorið var á þessi tengsl í krepp­ unni og lífeyrir aldraðra og öryrkja frystur. Til þess að leiðrétta þessa kjaragliðnun þarf að hækka lífeyrinn um 20% strax. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn lofuðu fyrir kosningar að framkvæma þessa leið­ réttingu. Það var ekki aðeins, að fram­ bjóðendur flokkanna gæfu þessi lof­ orð heldur var það einnig samþykkt á flokksþingum beggja flokkanna fyrir kosningar, að umrædd kjaragliðnun yrði leiðrétt strax, kæmust þessi flokk­ ar til valda. Nú er komið að skulda­ dögum. Aldraðir og öryrkjar geta ekki beðið. Þeir krefjast þess, að staðið verði við þessi loforð strax. n Eignaupptaka lífeyris verði stöðvuð strax Björgvin Guðmundsson form. kjaranefndar Félags eldri borgara Aðsent „Aldraðir og öryrkjar geta ekki beðið „Í nóvember 2008, í hruninu missti ég vinnuna, og hef ekki fengið vinnu síðan, ég er einn af um 10.000 sem missa vinnuna þá, og það hefur ekkert verið gert í að skapa hér störf sem töpuðust í hruninu. Í dag er ég að mæta stælum, ef ég sæki um vinnu, ég er einnig að mæta stælum ef ég óska eftir hjálp við að fá vinnu. Það greinilega á ekkert að viðurkenna hvernig ástandið er og hvernig komið er fyrir fólki vegna hrunsins.“ „Fötlun merkir einhvers konar skortur á áður skilgreindri getu. Má þá ekki segja að þegar stórt skarð var höggvið í ruv að um vissa fötlun sé að ræða? Mér finnst það rökrétt, án þess að fötlun sé hvorki jákvætt eða neikvætt, þá lýsir það getu eða getuleysi.“ „Úff hvað þetta er sorglegt, ég vona að þær komist heim.“ Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni 23 11 10 Gunnar S. Gylfason um Guðna Má Henningsson sem var sagt upp störfum hjá RÚV. Guðni lýsti því í viðtalinu að það hefði verið mjög erfitt að missa vinnuna. Þetta sagði Sigurbjörg Krist- mundsdóttir í athugasemd við frétt þar sem greint var frá óánægju Freyju Haraldsdóttur með notkun á hugtakinu fötlun. Tildrögin voru þau að Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti, sagði að Ríkisútvarpið „hefði fatlast“ svolítið. Guðlaug Gestsdóttir um dóm sem tvær íslenskar stúlkur hlutu í Tékklandi fyrir fíkni- efnasmygl. Í helgarblaði DV var viðtal við Gunnhildi Svövu Guðmundsdóttur sem var dæmd í sjö og hálfs árs fangelsi. 1 Handtekinn fyrir líkamsárás og brot á barni Klifurgarpurinn Aron Ralston missti stjórn á skapi sínu um helgina. 2 Minningarnar sækja á fórnarlambið Ákærðu í Stokkseyrarmálinu var gert að yfirgefa dómsal á meðan fórnarlamb vitnaði. 3 Krefst endurgreiðslu á milljóna-gjöf félags sem var tæmt IceCapital var eignamikið félag fyrir hrun en er nær eignalaust í dag. 4 „Lögreglan var að þvinga mig“ Hinrik Geir Gíslason neitar að hafa sagt að Stefán Logi og Stefán Blackburn hafi haft sig mest í frammi í Stokkseyrarmálinu. 5 Símaþjófur gengur laus í Reykjanesbæ „Það fór einhver í veskið mitt og stal öllu,“ segir Jóhanna Ósk Þorsteinsdóttir. 6 Drengur varð fyrir strætó Slysið varð við gatnamót Skaftahlíðar og Miklubrautar á mánudagsmorgun. Mest lesið á DV.is Myndin Hryssingslegt Það var heldur kuldalegt um að litast í Laugardalslauginni á mánudag. Sumir fengu sér sundsprett á meðan aðrir höfðu það náðugt í heita pottinum. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.