Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 23
Vikublað 10.–12. desember 2013 Umræða Stjórnmál 23 Er þetta heimsmet? Skuldaaðgerðir stjórnvalda bornar saman við aðgerðir vinstristjórnarinnar S kuldaniðurfellingar ríkis- stjórnarinnar sem kynnt- ar voru 30. nóvember áttu, samkvæmt forsætisráð- herra, að vera stærstu að- gerðir í þágu skuldsettra heimila í sögunni. Er það svo? Svarið er ekki jafn einfalt og margir hefðu haldið því fyrst þarf að svara annarri: Hvað er skuldaniðurfelling? Sérfræðinganefndin sem Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra skipaði til að finna leiðir til að fella niður skuldir fór yfir þetta og skilgreindi fyrri að- gerðir stjórnvalda til að koma til móts við skuldara. Það er greiðslu- jöfnun einstaklinga hjá Íbúða- lánasjóði, greiðslufrestanir, sértæk skuldaaðlögun, 110% leiðin og sér- stök vaxtaniðurgreiðsla. Þessar að- gerðir koma til frádráttar boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar frá því fyrir mánaðamót. Samtals skiluðu þessar aðgerðir sér í 115.574 milljóna, eða tæplega 116 milljarða króna niður færslu eða niðurgreiðslu á skuldum einstaklinga. Ef almennar vaxta- bætur eru fráskildar, þar sem þær munu áfram greiðast til skuldara, nemur heildarupphæð aðgerða vinstristjórnarinnar 106.381 millj- ónum, eða rúmlega 106 milljörð- um, króna. Aðgerðirnar sem boðaðar hafa verið á næstu fjórum árum fela hins vegar í sér allt að 80 milljarða króna niðurfærslu á skuldum einstaklinga. Til viðbótar því ætlar ríkið að gefa þeim sem skulda í fasteign og þeim sem eru á leigu- markaði skattafslátt ef þeir nota séreignarlífeyrissparnaðinn sinn í að greiða niður skuldir eða greiða inn á sérstakan fasteignasparnað- arreikning. Skattafslátturinn á samtals að nema 40 milljörðum króna. Fyrir liggur að ekki nema hluti þessara 40 milljarða mun skila sér til skuldara en um 30 þúsund heimili á leigumarkaði geta nýtt sér þessa leið líka. Ómögulegt er að segja til um hlutfallslega skipt- ingu á milli leigjenda og skuldara vegna þessarar aðgerðar. Þá eru líka vísbendingar um, þó það liggi ekki nógu skýrt fyrir, að þeir sem halda áfram að greiða inn á séreignasjóði sína njóti sömu af- slátta. Ef þessir þrír hópar skipta skattafslættinum á milli sín í hlut- falli við stærð þýðir það að skuldar- arnir fá 23 milljarða í sinn hlut. Það færir heildaraðgerðir stjórnvalda í þágu skuldaranna upp í 102.950 milljónir, eða 103 milljarða. Ef beinar aðgerðir til skulda- niðurfellingar eru því skoðaðar sést að boðaðir 80 milljarðar sem ríkisstjórnin nú ætlar að setja í skuldir einstaklinga með fasteigna- lán kemst hvergi nærri þeim 106 milljörðum sem fyrri ríkisstjórn veitti í sama verkefni. n adalsteinn@dv.is Sandkorn Sáu brúnina Stjórnarmeirihlutinn hefur ákveðið að gefa aftur í á Landspítalanum eftir að hafa boðað heldur dapurleg fjárútlát til spítalans í fjárlagafrum- varpi 2014. Önnur um- ræða fjárlaga- frumvarpsins tafðist vegna ákvörðunar- innar en ljóst er að fleiri breytingar verða gerðar á frum- varpinu áður en það kemur til endanlegrar afgreiðslu. Til að mynda þarf að bæta verulega í bankaskattinn sem kynntur var þegar frumvarpið kom fram. Viðbrögð meirihlutans á þingi við hörðum viðbrögðum al- mennings vegna fyrirhugaðra fjárútláta til Landspítalans sýna að stjórnin er farin að sjá brún- ina sem hún má ekki ganga fram af í niðurskurðarhugmyndum sínum. Aðstoðarmaðurinn þagnaði Loforð Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar forsætisráðherra um að fella niður hundruð milljóna af verðtryggðum fasteingaskuld- um heimil- anna vefst fyrir sumum. Í aðdraganda kosning- anna talaði hann fyrst um 240 millj- arða niður- fellingar og síðan 300 milljarða niðurfell- ingar. Raunin er 80 milljarðar í niðurfellingar og svo 40 millj- arðar í skattaafslátt á næstu ára- tugum; samtals 120 milljarðar. Þetta benti bloggarinn Viktor Orri Valgarðsson á í færslu á DV.is og var aðstoðarmaður Sigmundar, Jóhannes Þór Skúlason, ekki lengi að svara og sagði Sigmund aldrei hafa lofað 300 milljónum. Eftir að annar sendi honum upptöku af viðtali við Sigmund á RÚV þar sem 300 milljarðarnir voru til umræðu hefur hann hins vegar ekki svarað. Jólatréð komið Þingmenn fagna eins og aðrir jólunum. Vinnustaðurinn er skreyttur jólaskrauti og er meira að segja búið að planta stærðarinn- ar jólatré inni í þinghúsinu. Þetta vekur að vonum gleði þingmanna sem takast á við ýmis erf- ið verkefni um þessar mundir eins og niðurskurð. Þó verður að teljast líklegt að formaður fjár- laganefndar, Vigdís Hauksdóttir, sé sérstaklega ánægð með að vera komin aftur í nánd við gróð- ur á vinnustað sínum en hún vann sem blómaskreytir áður en hún söðlaði um, fór í lögfræði og komst á þing. „Jólatréð komið í Kringluna,“ segir hún brosandi á Facebook-síðu sinni og birtir mynd af trénu. 110% leið 46.000 Sértæk skuldaaðlögun 7.313 Greiðslujöfnun hjá ÍLS 7.633 Greiðslufrestanir 33.139 Sérstök vaxtaniðurgreiðsla 12.296 Beinar niðurfærslur næstu fjögur árin 80.000 Samtals án vaxtabóta 107.941 TöLur Í miLLJónum krónA. HeimiLD SkýrSLA SérfræðinGA- HópS um HöfuðSTóLSLækkun HúSnæðiSLánA Skuldavandinn ekki leystur A ðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu þeirra sem skulda verðtryggð fasteignalán er ekki til þess fallin að bæta stöðu þeirra sem ekki geta staðið undir skuldum. Allar fyrri aðgerð- ir stjórnvalda dragast frá þessari nýju aðgerð sem á að vera almenn. Þetta þýðir í stuttu máli að þeir sem þurftu á aðstoð að halda á síðustu fjórum árum og eru enn í vanda verða ekki mikið betur settir eftir boðaðar aðgerðir. Helst geta þeir nýtt séreignarlíf- eyrisgreiðslur sínar til lækkun- ar á skuldunum, en þótt hámark greiðslunnar sé notað, samtals 1,5 milljónir á þremur árum, lækkar greiðslubyrðin ekki um nema nokkur þúsund krónur á mánuði. Vandinn er því enn til staðar; ýmist greiðsluvandinn eða skulda- vandinn. Eftir stendur að þau heimili sem glíma við of háar skuldir fá líklega ekki frekari aðstoð frá ríkinu til að takast á við þær. Embætti umboðs- manns skuldara hefur verið gert að draga saman seglin. Flest úrræði sem lagt var upp með á síðasta kjör- tímabili eru ýmist runnin út eða búið að nýta. Fyrir kosningar voru þó báðir flokkar sammála um að setja lykla- lög sem fela í sér að skuldari getur skilað fasteign sinni til kröfuhafa án þess að ganga burt frá þeim gjörn- ingi með skuldahala vegna sömu eignar. Ekkert var hins vegar minnst á lyklalög í stjórnarsáttmálanum. Aðalsteinn kjartansson adalsteinn@dv.is Könnun kæmi til greina hjá þér að kjósa framsóknarflokkinn ef þing- kosningar færu fram núna? Já 23,8% nei 75,4% óákveðin(n) 0,8% 601 ATkVæði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.