Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 25
Vikublað 10.–12. desember 2013 Neytendur 25 Hagkaup - Heilsuver Frjarðarkaup - Heimkaup Auður Alfífa Ketilsdóttir fifa@dv.is Aldrei aftur kyn- þokkafull nærföt n Jólakaupæði víti til varnaðar n Aðventan hefur slæm áhrif á dómgreindina Ú tgjöld í desember hafa til- hneigingu til að verða alltaf meiri en gert er ráð fyrir. Einhverra hluta vegna virð- ist fólk spóla sig upp í neysl- unni og það er alveg sama hversu fögur fyrirheitin voru í upphafi að- ventu, alltaf bætast fleiri bráð- nauðsynlegir hlutir á innkaupa- listann þótt stundum virðist erfitt að skilja hversu nauðsynlegir þeir voru þegar aðventubrjálæðið bráir af fólki. DV heyrði í nokkrum sem höfðu reynslu af því að fara fram úr sér í innkaupum á aðventunni. n Óttar M. Norðfjörð Ljót jakkaföt„Ég keypti einu sinni jólajakkaföt á um 20 þúsund krónur sem verða að teljast ágætis kaup. Ég held hins vegar að ég hafi bara notað þau einu sinni því eftir að ég keypti þau fattaði ég að mér fannst þau eiginlega frekar ljót.“ Sigríður Guðmarsdóttir Gaf jólagjafirnar til Eþíópíu„Einu sinni tilkynnti ég stórfjölskyldu minni að ég hefði gefið andvirði allra jólagjafa þeirra í söfnun Hjálparstarfs kirkj- unnar fyrir hungraða í Eþíópíu. Þetta var þegar lagið Hjálp- um þeim kom út jólin 1985. Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna sem ég uppgötvaði að kannski hefði verið ólíkt siðlegra að biðja þau að sleppa því að gefa mér jólagjafir en að gefa þeirra jólagjafir í söfnunina. Fín leið til að losna við jólastressið og fá mjög fínar jólagjafir líka.“ Lára Ómarsdóttir Aldrei aftur nærklæði„Ég á í rauninni mjög erfitt með að finna einhverja góða sögu því ég er frekar skynsöm í fjármálum. En ég man reyndar eftir einu og maðurinn minn líka því það var gjöfin til hans. Þá lét ég plata mig til að kaupa ofboðslega kynþokkafull nærklæði, ég veit eiginlega ekki hvað á að kalla þetta annað, þetta er svona samfella fyrir karlmenn. Hún er alveg flott en maður þarf helst að vera eins og David Beckham til að geta verið í þessu og hann hefur aldrei farið í þetta. Svo var hún of lítil líka. Þetta var keypt í einhverri svona fínni herrafataverslun og kostaði alveg sæmilega upphæð. Ég á þetta ennþá til en ég mun aldrei aftur gefa honum nærklæði í jólagjöf.“ Bjarni Fritzson Læstir spilarar„Ég lét kaupa fyrir mig glæsilega ferðadvdspilara í Bandaríkjunum fyrir strákana mína sem átti að vera mjög auðvelt að aflæsa. Þeir eru enn uppi í hillu hér nokkrum árum síðar, harðlæstir og spila enga DVD-diska sem er til hérlendis. Seinna lét ég kaupa fartölvu úti í Bandaríkjunum sem ég gaf konunni minni í jólagjöf. Vildi ekki betur til en svo að þegar frúin ætlaði að kveikja á henni þá gerðist ekki neitt. Við fórum við með hana í viðgerð þar sem kom í ljós að hún var gölluð og í raun ónýt. Trygginga- vesenið sem kom í framhaldinu var frekar langdregið og leiðinlegt eins og trygginga- vesenum er einum lagið. Ég veit að margir hafa gert góð kaup í Bandaríkjunum en ég lét þessi tvö tilvik duga og mun aldrei fara í svona ævintýra jólakaup aftur.“ Edda Björgvinsdóttir Gerði upp eldhús„Við höfðum keypt gamalt hús á Óðins- götunni og vorum að gera það upp um haustið og rétt fyrir jólin var ákveðið að ráðast í eldhúsið með hroðalegum af- leiðingum. Smið- irnir hrökkluðust úr rétt rúmlega sex á aðfanga- dagskvöld og þá átti eftir að þrífa allt. Svo reyndist nýi ofninn bilaður svo jólasteikinni var troðið hrárri á pönnu, þið getið ímyndað ykkur hamborgarhrygg í tætlum á teflonpönnu. Við foreldrarnir höfðum falið allar klukkur og tekið símann úr sambandi svo um klukkan tvö um nóttina voru börnin að taka upp jólagjafirnar. Sem sagt: aldrei gera upp eldhús rétt fyrir jól!“ Mynd Sigtryggur Ari Leikið á jólaköttinn n nóg að fá nærbuxur n Skoðaðu fataskápinn áður en þú verslar Þeir fara í jólaköttinn sem ekki fá nýja flík fyrir jólin en sokkar eða nærbuxur eru nóg til þess að sleppa undan jólakettinum. Það er algjör óþarfi að kaupa nýjan alklæðnað fyrir jólin, og sérstaklega blóðugt að eyða stórfé í nýja flík sem er bara búið að nota einu sinni þegar hún lækkar um helming í verði á janúarútsölum. Hér eru nokkur ráð til að spara sér innkaup á jólafatnaði. 1 Byrjaðu á að taka til í fataskápn-um. Þar er örugglega fullt af flíkum sem ekki passa, eru löngu dottnar úr tísku eða virkuðu aldrei til að byrja með. Settu þau í sér poka og farðu með þau beint í söfnunargáma Rauða krossins. Dýrari flíkur er hægt að selja á Facebook eða Barna- landi. 2 Mátaðu það sem þú hefur ekki notað lengi og sjáðu hvort þar leynist nokkuð jólafötin í ár. 3 Áður en þú ferð í gáminn með pokann er ráð að athuga hvort vinir séu tilbúnir að gera það sama og halda fataskiptapartí eða markað þar sem eini aðgangseyririnn er notuð föt. 4 Kauptu fylgihluti. Þó rándýr hönnunarkjóll í hlébarðamynstri sé líklegur til að slá í gegn í jóla- og áramóta- boðunum getur fallegur kjóll úr skápnum gert nákvæmlega það sama með fallegum nýjum fylgihlut með sama mynstri, eða til dæmis hlébarðasokkabuxum. Einfaldur kjóll úr fataskápnum verður eins og nýr með ævintýralegri hálsfesti. Karlar geta keypt nýja skyrtu eða fallega peysu eða hálstau og notað eldri spariföt áfram. 5 Ekki kaupa það sem þig langar í heldur það sem þig vantar. Þá er líklegt að þú lendir ekki aftur í sömu vandræðum. 6 Ef þig bráðnauðsynlega vantar nýja flík, leitaðu þá á útsöluslánni. Flest notum við falleg föt í nokkur ár svo enginn þarf að vera feiminn við nokkra mánuði á útsöluslánni. 7 Leitaðu á nokkrum stöðum, út-söluslá í einni verslun getur verið mun dýrari en glænýjar vörur í annarri. Bragðgóð og ódýr súpa Ég borða yfirleitt ekki núðlur, mér finnast þær ekki neitt sérstaklega góðar en taílenska núðlusúpan frá Noodle Station er undantekning frá þeirri reglu og er oftar á kvöld- matarborðinu hjá mér en ég kæri mig um að viðurkenna. Það er ekki mikið lagt upp úr innréttingum á staðnum en há borð og stólar eru til staðar fyrir þá sem vilja borða þar. Mér finnst handskrifuð merking í glugganum skemmtileg en gufan innandyra, sem gerir það m.a. að verkum að dyrnar eru alltaf í hálfa gátt, gerir það þó að verkum að ég tek matinn yfirleitt með mér – og sú staðreynd að ég bý á næsta horni. Matseðillinn er mjög stuttur, það er boðið upp á núðlusúpu með kjúklingi, núðlusúpu með nautakjöti eða núðlusúpu með grænmeti. Grænmetissúpan kostar 820 krónur en hinar 1.190 krónur. Ég pantaði súpu með nauta- kjöti. Eftir að búið er að panta og greiða taka starfsmennirnir til við að útbúa súpuna úr stórum pott- um, taka núðlur úr einum, kjöt úr öðrum, soð úr þriðja og svo bauna- spírur og lauk að auki. Þá er súpan krydduð og bragðbætt með steikt- um hvítlauk, ediki, sykri fyrir þá sem það vilja, chili og sósu sem gæti verið sojasósa, úr stórri flösku yfir allt saman. Starfsmenn spyrja hvort súpan eigi að vera sterk og ég svaraði venju samkvæmt: „bara meðal.“ Út á starfsfólkið er ekkert hægt að setja. Súpan reyndist einstaklega bragðgóð, mér finnst einmitt mátulegt magn af núðlum í súp- unni og gleðilegt hversu mikið er af kjöti. Kjötið var hins vegar frekar seigt og olli nokkrum von- brigðum því kjúklingabitarnir eru bæði mjúkir og bragðgóðir. Von- andi var þetta einsdæmi en varð þó til þess að ég á eftir að hugsa mig um tvisvar áður en ég vík út af kjúklingareglunni aftur. Auður Alfífa Ketilsdóttir fifa@dv.is Matur Noodle Station Klapparstíg 21a í Reykjavík og Bæjarhrauni 4 í Hafnarfirði„Sem sagt: aldrei gera upp eldhús rétt fyrir jól!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.