Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 32
Vikublað 10.–12. desember 201332 Menning Huggulegur jóla-Bubbi É g vissi ekki við hverju ætti að búast þegar ég fékk nýja jóla- plötu Bubba Morthens, Æsku minnar jól, í hendurnar. Plat- an saman stendur af tíu frumsömdum lögum auk þess sem Bubbi spreytir sig á Hátíð í bæ. Plat- an kom mér skemmtilega á óvart þó hún sé kannski jafn klofin og upplifun mín af henni. Það er ekki auðvelt verkefni að frumsemja jólalög og leggja inn í sömu gömlu klisjuhringekju jóla- laga sem rúlla sinn stutta hring fyrir hver jól. Það má eiginlega segja að Bubbi hafi farið ákveðinn milliveg. Samið jólaplötu sem maður upplif- ir kannski ekki sem jólaplötu nema sá gállinn sé á manni. Það er eilítið skrýtið að dæma jólaplötu og vita samt ekki hvar maður á að stað- setja hana. Mér finnst Bubba takast best upp í rólegu og eilítið hátíðlegri lögum plötunnar. Í þeim snart hann einhvern tilfinningastreng hjá meyrum hlustanda. Ég fékk t.a.m. gæsahúð þegar ég heyrði Gleðileg jól í fyrsta skipti. Í félagi við lögin Ljós og fagur og Logn og kyrrð eru það lögin sem standa upp úr fyrir mér. Hlý og falleg lög. Við fyrsta rennsli veitir maður því strax athygli hversu mikill bræðingur áhrifa úr öllum áttum er í gangi á plötunni. Það er engin ein lína sem lögð er í gegnum hana en þessi fjölbreytileiki þarf ekki að vera af hinu slæma, þó Bubbi rokki úr hugljúfum kassagítar og strengj- um yfir í uppsveiflu stórhljóm- sveitarfílings milli laga. Lögin Snjór og Gjöfin í ár (Pakkakvíði), fanga ágætlega ein- hverja fyrirjólastemmingu. Lög sem gætu hljómað í bakgrunninum meðan keyrt er út jólakortum á að- fangadagsmorgun eða meðan lokahönd er lögð á gjafakaup þann 23. desember. Lagið Gleym mér ei er þjóðlegt og grípandi þó ekk- ert sérstaklega jólalegt sem slíkt og gæti búið á hefðbundinni Bubba- plötu. Ég minnist þín er óður Bubba til móður sinnar sálugrar. Textinn er tregafullur, einlægur og falleg minning þó manni finnist hann kannski ekki endilega passa við áð- urnefnda uppsveiflu í laginu sjálfu. Allur hljóðfæraleikur er vand- aður eins og við má búast en sér- staklega ber að hrósa hversu vel út- færðir strengirnir eru á plötunni. Hvorki yfirdrifnir né tilgerðarlegir og líkt og kórútsetningarnar gefa þeir hátíðlegan blæ þar sem við á. Þó það sé kannski aukaatriði þá verð ég nefna hversu billegt um- slag plötunnar er. Falleg forsíðu- mynd, líklega af Bubba sjálfum í æsku, líður fyrir metnaðarlaust umbrot og frágang á kreppulegu umslaginu. Þá sakna ég þess að fá ekki einu sinni textabækling. Og ef ég hefði átt að ráðleggja Bubba þá hefðu minnst tvö lög mátt missa sín á plötunni. Jóla, jóla- sveinn og Grýla er hætt að borða börn. Tökulagið Hátíð í bæ finnst mér ekki ganga upp og þá er ein- hver endurvinnslubragur á laginu Jólarósin þó það sé annars fallegur óður til Aþenu, dóttur Bubba. Mín upplifun var sú að ef ég handlék jólalegt umslagið meðan ég hlustaði var ég meðvitaður um að ég væri að hlusta á jólaplötu. Þegar ég sat í strætó, starði út um gluggann og hlustaði leið hún áfram í bakgrunninum án þess að ég færi í einhverjar sérstakar há- tíðarstellingar. Það er svolítið háð þínum eigin aðstæðum og stemm- ingu hversu mikinn jólafíling þú upplifir á Æsku minnar jól. Hún er klofin. Heilt yfir finnst mér Bubba þó takast ágætlega upp á plötunni, það eru enn smá töfrar eftir í kallin- um þó platan verði seint talin ein af hans bestu. Hún skilar því sem hún á að gera. Þetta eru jólalög Bubba, samin af honum og það ber að taka þeim samanburðarlaust sem slík- um. Það er kannski enginn slagari þarna sem mun toppa vinsælda- lista en þessi plata má alveg eiga stað í jólaplötusafni landsmanna þó ég setji spurningarmerki við endingartíma hennar. Fyrir þessi jól er hún hugguleg og á stundum hrífandi. n Jólaplata sem er jólaleg eftir atvikum Æsku minnar jól Höfundur: Bubbi Morthens Útgefandi: Sena Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Tónlist Þægileg plata Bubba tekst best upp í rólegu lögunum á jólaplötunni Æsku minnar jól. Mynd eyÞór árnaSon Maður, land og skepnur n Ljósmyndabókin Fjallaland eftir Ragnar Axelsson gefur einstaka sýn á göngur og fjárleitir R agnar Axelsson ljósmyndari hefur löngu komið sér fyrir inni í sjálfsmynd þjóðarinnar. Hann hefur um langt árabil verið sá ljósmyndari sem hef- ur túlkað íslenska náttúru og baráttu manna og kvenna við hana með hvað skýrustum hætti í fréttaljósmyndum Morgunblaðsins. Ragnar hefur nú sent frá sér ljós- myndabókina Fjallaland. Bókin er afrakstur fjölda ferða í fjárleitir inn á Landmannaafrétt á meira en 25 ára tímabili. Ragnar er oftast í slagtogi með Þórði Guðnasyni frá Þverlæk og fjallar bókin öðrum þræði um hann. Bókin er 184 blaðsíður. Crymogea gefur út. ólík viðfangsefni Fjallaland á margt skylt með hinni mögnuðu bók Veiðimenn norðursins, sem kom út árið 2010, jafnvel þótt við- fangsefnið sé harla ólíkt. Skyldleikinn liggur í nálgun ljósmyndarans, þraut- seigjunni sem felst í því að koma aft- ur og aftur að sama viðfangsefninu, ár eftir ár, að því er virðist með hógvær- um væntingum. Ragnar hefur í það minnsta ekki farið sér geyst í að gefa út bækur. Hann lýsti því reyndar sjálfur í viðtali við DV í janúar 2011, hvernig hann fór aftur og aftur til Grænlands, aðeins til að svala metnaði sínum við það að taka góða ljósmynd, eina í einu. Það hafi ekki verið fyrr en löngu seinna sem hann hafi áttað sig á sam- henginu sem finna mátti í myndun- um. Fæstar þeirra höfðu enda birst áður. Fjölmiðlar höfðu líka fyrir löngu misst áhugann á svarthvítri ljós- myndun. Mesta ævintýri Og varlega má því gera ráð fyrir að bókin Fjallaland hafi orðið til með svipuðum hætti. Ragnar ferðast með Þórði vini sínum og samferðamönn- um hans um hálendið að Fjallabaki og verður þátttakandi í ævintýrun- um, kynnist fólkinu, yfirvinnur helstu hindranir og skrásetur allan tímann með myndavélinni. Bókin sjálf er hið mesta ævin- týri. Í henni má sjá eina og eina eftir- minnilega fréttamynd ásamt öðrum myndum sem sumar hverjar láta lítið yfir sér í fyrstu, en öðlast dýpt í sam- hengi hlutanna. Myndirnar í bókinni eru svarthvítar. Ragnar velur í bókina myndir með dökkblæ sem gefa tilf- inningu fyrir vályndum haustveðrum og baráttu manns við land og skepnur. Bókin er í senn mikilvæg skrásetn- ing á íslenskum veruleika sem mörg- um er hulinn ásamt því að vera frá- bær ljósmyndabók. Fjallaland Höfundur: Ragnar Axelsson Útgefandi: CRYMOGEA Sigtryggur ari Jóhannsson sigtryggur@dv.is Bækur Belgar í blíðu og stríðu Myndin er á köflum óþægilega rómantísk Þ að er ekki oft sem maður sér hér belgískar myndir í bíó, en til allrar hamingju hefur Bíó Paradís bætt þar úr og sýnt fram á að Brussel er ekki bara heimaborg ESB, Nató og barna- níðinga. Myndin er á köflum nánast óþægilega rómantísk, svo minnir á Bitter Moon Polanskis, og maður getur ekki annað en hrifist með og orðið skotinn í söguhetjunum. En rétt eins og í mynd Polanski end- ar myndin ekki þar sem allt leikur í lyndi, heldur fáum við að sjá hvað gerist síðan. Í Bitter Moon dofnar ástarbrím- inn smám saman og við fylgjumst með því sem gerist þegar sögu- hetjurnar neita að sætta sig við það. Hér eru það veikindi barns sem reyna mjög á sambandið, og eins og söguhetjan segir, þá hafði hún varla trú á því að lífið gæti verið jafn fullkomið og það í fyrstu virtist. Myndin færist fram og til baka í tíma, sem er herbragð sem er vandmeðfarið en virkar hér vel, maður fær betri tilfinningu fyrir lífshlaupi fólks þegar hamingj- an og sorgin eru slitin úr eðli- legri tímaröð en tengjast samt. Aðdáun á kántrítónlist er síðan límið sem heldur öllu saman og myndin er ljúfsár eins og tónlist- arstefna þessi, þetta er Walk the Line venjulega fólksins. Persónur dást í fyrstu að Bandaríkjunum úr fjarlægð, en á valdatíma Bush fer allt til verri vegar og bann hans gegn frumurannsóknum hefur bein áhrif á heilsu fjölskyldunn- ar. Þannig tengist hið stórpólitíska og hið persónulega á sama hátt og það gerði í meistaraverki Arcands, Decline of the American Empire. The Broken Circle Breakdown Líparíthryggir Átta mynda röð af líparíthryggjum og jökulvötnum í upphafi bókarinnar er sérstaklega athyglisverð. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir The Broken Circle Breakdown Leikstjóri: Felix van Groeningen aðalhlutverk: Johan Heldenbergh og Veerle Baetens Byggt á leikriti eftir Heldenbergh og Mieke Dobbels

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.