Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 36
Vikublað 10.–12. desember 201336 Fólk Leikarar með sítt hár 1 Brad Pitt Hann er dýrkaður og dáður um allan heim og var á sínum tíma með síða og stórglæsilega lokka. Í einni af frægustu myndum sínum, Troju, þar sem Brad brá sér í hlut­ verk Akkilesar, skartar kappinn einmitt þessu síða hári. 2 Chris Hemsworth Í stórmyndunum um Thor og The Aveng­ ers var Chris með rúmlega axlarsítt, ljóst hár. Það er engin furða að hann hafi slegið í gegn í myndun­ um, enda er víkingaútlitið svo sannarlega í tísku um þessar mundir. 3 Christian Bale Það skiptir Batman ekki máli hvort hann er með stutt eða sítt hár, alltaf er hann glæsilegur. Bale tók víkingaútlitið skrefinu lengra með því að safna myndarlegu alskeggi. Hann hefði þess vegna getað verið uppi á landnámsöld. 4 Viggo Mortensen Daninn og Íslands­ vinurinn Viggo Morten­ sen sló í gegn í hlutverki Aragorn í Hringadróttins­ sögu. Síðir, dökkir lokkar hans bræddu hugi og hjörtu aðdáenda myndarinnar. 5 Ashton Kutcher Ashton Kutcher er duglegur að breyta hárgreiðslu sinni. Hann hefur tekið upp á mörgu og á tímabili var hann með axlarsítt hár. Það þótti heppnast ágætlega og er hann af mörgum talinn einn sá myndarlegasti í Hollywood. topp 5 Drottning dulargervanna Hvar er Lady Gaga? Stundum hylur hún sig alveg. Fáklædd Hress á brjósta­ haldaranum. Lady Gaga er skrautlegt í klæðaburði Skrautleg Málmbrjóstahaldari er eitthvað sem ekki allir myndu klæðast. Þ að er óhætt að segja að fáir komist með tærnar þar sem Lady Gaga hefur hælana þegar kemur að skrautlegum klæðaburði. Ímynd söngkon- unnar byggist að miklu leyti upp á skemmtilega furðulegum búningum hennar og það er aldrei að vita hverju hún klæðist næst. Hún er svo sannar- lega drottning dulargervanna eins og sést á meðfylgjandi myndum. n viktoria@dv.is Hvað er þetta? Lady Gaga ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Blómleg Maður getur víst alltaf á sig blómum bætt. Frumlegt? Þetta er allavega dálítið sérstakt dress. Amanda komin úr meðferð Leikkonan unga stefnir á nám í tískuhönnun A manda Bynes hefur lokið fjögurra mánaða vist á meðferðarheimili vegna áfengis- og lyfjafíknar sinn- ar. Hún er flutt til foreldra sinna þar sem meðferðinni verður fylgt eftir. Amanda var komin á enda- stöð í neyslu og fékk alvarlegt taugaáfall á árinu. Hún var skilyrt af dómara í meðferð og svo virðist sem staða hennar hafi batnað um- talsvert. Amanda var títt í fréttum helstu slúðurmiðla vegna undar- legrar og hömlulausrar hegðunar sinnar. Hún var í mikilli neyslu og geðheilsan beið mikinn skaða af. Amanda hefur gert áætlanir um að snúa baki við leiklistar- og tón- listarferli sínum og stefnir á nám. TMZ-slúðursíðan greinir frá því að hún sé skráð í nám í fata- hönnun og markaðssetningu í Kaliforníu undir fölsku nafni og vilji láta reyna á nýtt upphaf. Amöndu verður fylgt í tíma í skólanum og heldur áfram í með- ferðinni utan meðferðarheim- ilisins fjóra tíma á viku. Heim- ildarmenn TMZ greina frá því að Amöndu gangi blessunarlega vel og það sé ekki langt í að hún geti orðið virkur og góður samfélags- þegn á ný, svo fremi að hún haldi áfram að taka lyfin sín sem koma í veg fyrir frekara geðrof. n Erfiðleikunum að ljúka Amanda Bynes er á réttri leið en þarf að halda áfram í stífri með­ ferð og taka inn geðlyf sem henni eru nauðsynleg. Ben lofar ís- lenska náttúru Ben Stiller var staddur í spjall- þætti hjá Ellen DeGeneres fyrir skömmu þar sem hann bar Ís- landi og íslenskri þjóð góða söguna. Ben dvaldist hér á landi um nokkra hríð við tökur myndarinnar The Secret Life of Walter Mitty og auðsýnilega lík- aði honum vel. Ben segir Ellen frá stórkostlegri náttúru lands- ins og hversu mikið ævintýri það hafi verið að vera við upptökur á landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.