Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Síða 37
Vikublað 10.–12. desember 2013 Fólk 37
Páll Óskar
og Monika
uppgefin
Poppkóngurinn Páll Óskar
Hjálmtýsson stendur yfirleitt í
ströngu og þá sérstaklega yfir
hátíðarnar. Undanfarið hefur
Páll Óskar haldið tónleika ásamt
hörpuleikaranum Moniku
Abendroth. Á Facebook-síðu
Páls má sjá skemmtilega mynd
af þeim þar sem þau liggja upp-
gefin í kirkju.
„Ég og Monika fokking búin
á því eftir tónleika gærkvöldsins.
Síðustu 10 daga er ég búinn
að massa 6 jólatónleika og hef
áritað 787 geisladiska á sama
tíma. Boxin uppseld af lagern-
um. Slurkur eftir í búðum. Merrí
poppins krissmass. Páll Óskar,“
skrifaði Páll Óskar við myndina,
sem má sjá hér að ofan.
Eignaðist dóttur
Fréttakonan skelegga, María
Sigrún Hilmarsdóttir, eignaðist
dóttur á laugardaginn. Þetta er
annað barn Maríu Sigrúnar og
eiginmanns hennar, Péturs Árna
Jónssonar, eiganda Viðskipta-
blaðsins. Fyrir eiga þau soninn
Hilmar Árna sem er rúmlega eins
og hálfs árs. Það verður því nóg að
gera hjá fjölskyldunni á næstunni
með tvö lítil börn á heimilinu.
Emilíana
ruglaðist
og hló
Emilíana Torrini hélt tvenna
tónleika á föstudagskvöld í Eld-
borgarsalnum í Hörpu. Skemmti-
legt atvik átti sér stað á fyrri tón-
leikunum þegar Emilíana og
félagar hennar rugluðust í miðju
lagi. Mikið var hlegið að upp-
ákomunni og var Emilíana þar
fremst í flokki. Eftir hlátrasköllin
héldu þau tónleikunum áfram og
í lok þeirra söng Emilíana lagið
sem misheppnaðist og gerði það
með glæsibrag. Emilíana sendi
frá sér sína fjórðu plötu, Tookah,
í september og hefur lagið Speed
of Dark notið mikilla vinsælda á
útvarpsstöðvum landsins upp á
síðkastið. Þetta var fyrsta plata
söngkonunnar í fimm ár.
Sigrar á hverjum degi
Augu Everts Víglundssonar, þjálfara Biggest Loser, opnuðust gagnvart mikilvægi andlegrar heilsu
Þ
etta gekk mjög vel,“ segir
Evert Víglundsson, einn af
eigendum CrossFit Reykja-
vík, þegar blaðamaður
heyrði í honum hljóðið.
Evert var annar tveggja þjálfara í
þáttaröðinni Biggest Loser sem
hefur göngu sína á Skjá Einum á
nýju ári. „Við vorum mjög ánægð
með útkomuna.“
Evert var í hópi stofnanda
CrossFit Reykjavík sem uppruna-
lega var komið á koppinn í litlum
bílskúr í Mosfellsbæ síðla árs 2009.
Frá þeim tíma hefur umfjöllun um
crossfit á Íslandi aukist til muna og
eru sífellt fleiri sem stunda þrauta-
hringinn. Fyrirtækið hefur því
stækkað ört frá stofnun þess. Í dag
er CrossFit Reykjavík með aðstöðu
í Faxafeni.
Í þeirra höndum
Ásamt því að vera einn af eigend-
um fyrirtækisins er Evert einnig
yfirþjálfari þess og þjálfar fjölda
fólks frá morgni til kvölds. Evert
þótti því tilvalinn sem þjálfari fyrir
keppendurna í Biggest Loser og
hélt hann þeim rækilega við efnið
meðan á tökum stóð. Nú er hins
vegar ábyrgðin þeirra.
„Núna eru þau sjálf að vinna
úr því sem við kenndum þeim og
verða að því fram að lokaþættin-
um sem verður í byrjun apríl,“
segir Evert. „Þetta er því núna í
þeirra eigin höndum.“
Gera eins vel og þau geta
Evert segir að það skipti máli að
vera með góðan þjálfara sem get-
ur kennt skjólstæðingum sínum
hvernig eigi að hugsa um lík-
amann, borða og tileinka sér heil-
brigðan lífsstíl. Evert segist þó
ekki vera vanur að þjálfa fólk sem
á í jafn miklum vandræðum með
þyngd sína og raun ber vitni.
„Nei, ég get ekki sagt að ég sé
vanur því,“ segir Evert. „Það eru
alltaf þó nokkrir í yfirþyngd sem
slæðast inn í þjálfun hjá manni.
Ég er búinn að þjálfa fleiri þúsund
manns og hjálpa í gegnum grunn-
atriðin í crossfit. Þeir sem eru í yfir-
þyngd vinna eins og hinir – gera
eins vel og þeir geta. Flestir þeirra
hafa náð mjög góðum árangri.“
Sálarástandið slæmt
Aðspurður hvort það sé erfiðara
viðfangs að þjálfa fólk sem er í yfir-
þyngd svarar Evert að svo sé ekki.
Hins vegar eigi það frekar í vand-
ræðum með sjálfstraustið; það er
lítið og þau eru jafnvel með brotna
sjálfsmynd.
„Það sem kom mér mest á
óvart var sálarástandið hjá fólki,“
útskýrir Evert. „Það er ekki erf-
iðara að þjálfa fólk í yfirþyngd af
því að það er þungt. Það hefur ekk-
ert með það að gera. Oft og tíðum
er sjálfstraustið hrunið og þau eru
niðurbrotin. Það er í rauninni oft
verið að vinna meira í sálfræði-
þættinum en í líkamsrækt.“
Má búast við skemmtun
Evert segist hafa lært mikið í
mannlegum samskiptum við að
taka þetta starf að sér. Það komi
til með að gera honum gott. Evert
segir að hann hafi fengið sjónar-
horn frá hópi fólks sem er á þver-
öfugum stað í lífinu en hann sjálf-
ur og það hafi orðið þess valdandi
að hann hafi opnað augun fyrir
andlega þættinum.
„Það kom vel í ljós þarna að
andlegi þátturinn var mjög brot-
hættur,“ segir Evert.
En hverju má búast við í þáttun-
um Biggest Loser?
„Það má búast við mikilli
skemmtun,“ segir Evert. „Það
verður erfitt að horfa ekki á þessa
þætti. Það er svo margt mannlegt í
þeim. Fólk opnar sig af því að það
er komið á þann stað að það verð-
ur að snúa við blaðinu, annars er
það þess vegna komið á grafar-
bakkann. Það verður mikill sárs-
auki og líka mikil gleði. Það eru
líka sigrar á hverjum degi.“ n
Ingólfur Sigurðsson
ingosig@dv.is
Öflugt tvíeyki
Guðríður Erla Torfa-
dóttir þjálfaði einnig
keppendum í Biggest
Loser. Mynd Sr-photoS.coM
Keppendur opinberaðir Biggest Loser birti á Facebook-síðu sinni stiklu úr þáttunum. Mynd SKjáSKot youtubE„Núna eru þau sjálf
að vinna úr því
sem við kenndum þeim
og verða að því fram að
lokaþættinum sem verð-
ur í byrjun apríl.
Fótbolti, föt og fasteignir
Magnús Már skipuleggur sig vel til að sinna þremur ólíkum störfum
M
ér hefur alltaf þótt fast-
eignamarkaðurinn
spennandi og ákvað því
að slá til,“ sagði Magnús
Már Lúðvíksson, knattspyrnu- og
athafnamaður, í samtali við DV.
Magnús hóf störf sem sölufulltrúi
hjá RE/MAX Lind í Kópavogi ný-
verið og líkar vel.
Ásamt nýja starfinu er Magnús
annar tveggja eigenda fatabúðar-
innar Suzie Q við Ingólfsstræti en
hann opnaði búðina fyrir tæpum
tveimur árum ásamt kærustu
sinni, Guðlaugu Elísu Einars-
dóttur. 264 manns hafa lýst dálæti
sínu á fasteignasíðu Magnúsar á
Facebook sem var stofnuð fyrir
skömmu.
Magnús er kunnur knattspyrnu-
maður en hann sló í gegn hjá KR
sumarið 2011 og var lykilmaður
í liðinu sem tryggði sér bæði Ís-
lands- og bikarmeistaratitilinn. Í
fyrravetur söðlaði Magnús um og
gekk til liðs við erkifjendur sína
í Val. Magnús er hvergi banginn
þrátt fyrir að hafa í mörg horn að
líta.
„Það hefur bara gengið mjög
vel,“ segir Magnús. „Maður verður
bara að skipuleggja sig vel. Konan
mín sér að mestu leyti um Suzie Q,
en ég reyni að hjálpa til eins og ég
get,“ bætir Magnús við, en hann
sló rækilega í gegn á Hlíðarenda í
sumar. n
Knattspyrnumaður
selur fasteignir Magnús
Már lék vel í liði Vals í sumar.
Mynd FótboltI.nEt
Gengur vel Magnúsi líkar
lífið í nýju starfi.