Fréttablaðið - 08.01.2016, Síða 10
Maður hefði
kannski átt að hafa
varann á þegar Norðmenn
eiga í hlut!
Föstudagsviðtalið
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Ég er búinn að vera ríkislög-reglustjóri í átján ár. Á ferl-inum hef ég ekki upplifað mörg spillingarmál. Það eru örfá mál þar sem lög-
reglumenn hafa misst tök á sjálfum
sér. Þau mál hafa yfirleitt komið
upp vegna innra eftirlits. Það eru
engir lögreglustjórar sem líða það
að spilling líðist innan síns emb-
ættis,“ segir Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri.
Í síðustu viku var reyndur lög-
reglumaður færður í gæsluvarð-
hald vegna gruns um að hafa brotið
alvarlega af sér í starfi. Hann hefur
starfað hjá fíkniefnadeild lögregl-
unnar í yfir áratug. Haraldur segir
slík mál afar sjaldgæf.
„Í það heila má segja að lögreglu-
menn séu eins og íslenska þjóðin,
heiðarlegt fólk. Ef það koma upp
mál þar sem lögreglumenn hafa
farið út af sporinu þá líður lögreglan
mest fyrir það. Ég held ég geti talað
fyrir alla lögreglumenn í landinu,
lögreglan sjálf vill að öll hennar
starfsemi sé algörlega yfir allan vafa
hafin í þeim efnum. Það hafa komið
upp á síðustu kannski 10 árum örfá
mál. Það eru undantekningar.“
Eru ekki fleiri mál sem komast
ekki upp á yfirborðið einmitt vegna
skorts á innra eftirliti? „Þetta er
eðlileg spurning. Hvort lögreglan
sé svo gegnsýrð af spillingu og þess
vegna komist þau ekki upp. Nei, það
er alls ekki svo. Það sem ég vil segja
í þessu máli, sem þið ræðið um hér,
er að við skulum varast að nota orð
eins og spillingarmál, mútumál og
því um líkt. Við skulum fyrst anda
með nefinu og sjá hvað rannsókn
mála leiðir í ljós áður en við förum
að gefa okkur niðurstöður. Það ber
að fara mjög varlega. Hins vegar þá
leiðir þetta hugann að því hvaða
varnagla við getum sett, hið opin-
bera, varðandi starfsemi lögreglu.“
Sérstakt eftirlit með lögreglu
Haraldur segir fyrirkomulagið
núna vera að lögreglustjórarnir
sjálfir, níu talsins, hafi eftirlit með
sinni starfsemi. ,,Síðan er innan
hvers lögregluliðs óformlegt innra
eftirlit með starfseminni. Svo eru
ríkisstofnanir sem fylgjast með,
Umboðsmaður Alþingis, kærunefnd
jafnréttismála, dómstólarnir, ráðu-
neytin, ríkissaksóknari og Alþingi.
Þetta eru þeir sem eiga, geta og
mega hafa eftirlit með störfum lög-
reglu. Það sem maður hlýtur samt
að velta fyrir sér er hvort það sé
hægt að fara eitthvað lengra með
þessa hugsun,“ útskýrir Haraldur.
Hann segist vel geta hugsað sér
að útfæra þetta eftirlitshlutverk
í stærra mengi. „Ég er að tala um
sérstakan aðila sem hefði beinlínis
þetta hlutverk, að fylgjast með því
að lögreglan væri að starfa með rétt-
um hætti, hvort hún sé að fara rétt
með upplýsingar og málaskráakerfi.
Ef þetta fyrirkomulag væri uppi
myndi það auka traust á starfsemi
lögreglunnar. Þá er ekki svo auðvelt
að búa til mýtur um að lögreglan sé
ekki að gera eitthvað sem hún ætti
að vera gera.“
Er breytinga að vænta í þessum
málum? ,,Ég held að það sé alveg
tímabært að taka umræðuna, velta
þessu fyrir sér af fullri alvöru. Það
kallar á lagabreytingar sem þyrftu
að koma frá Alþingi.“
Píratar hafa lagt fram þingsálykt-
un um þetta tiltekna mál. „Lög-
reglan hefur tekið þessari hugmynd
opnum örmum og kallað eftir því.“
Taldi byssurnar vera gjöf
Mikið hefur verið rætt um vopna-
væðingu íslensku lögreglunnar.
„Í grunninn er íslenska lögreglan
óvopnuð og vill hafa það þann-
ig. Flestir íslenskir lögreglumenn
vilja vera óvopnaðir við störf sín og
þegar ég tala um vopn þá er ég að
tala um byssur. Lögreglumenn eru
með ákveðin vopn í dag, kylfu og
meisbrúsa en þarna erum við að tala
um byssur. Það sem við höfum verið
að benda á er að það þurfi að endur-
nýja þau vopn sem lögreglan á fyrir.
Lögreglan á ógrynni af skotvopnum.
Sá búnaður er úreltur, ónýtur og
nýtist ekki. Þess vegna töldum við
á sínum tíma að það væri ágætt að
þiggja gjöf frá Norðmönnum. Sem
við töldum gjöf en síðar kom í ljós
að Norðmenn töldu að væri eitt-
hvað annað,“ segir hann.
Haraldur vísar í mál sem vakti tölu-
verða athygli árið 2014 þegar sagt
var frá því að íslenska lögreglan
hefði fengið 150 hríðskotabyssur
að gjöf frá Norðmönnum. Fljótlega
kom í ljós að byssurnar voru ekki
gjöf heldur átti að greiða fyrir þær.
Skotvopn lögreglu úrelt
„Mér voru boð borin um að hér
hefði verið einhver yfirhershöfð-
ingi Norðmanna staddur á Kefla-
víkurflugvelli. Hann heitir Harald
Sunde og hafði gefið þá yfirlýsingu
á Keflavíkurflugvelli að hann gæti
gefið íslenskum lögregluyfirvöld-
um vopn. Síðan var spurt hvort
við myndum þiggja þetta og svarið
var já, okkur skildist að þetta væri
okkur að kostnaðarlausu. Enda er
það yfirleitt þannig að ef þú gefur
einhverjum eitthvað þá þarf hann
ekki að borga fyrir það, en maður
hefði kannski átt að hafa varann
á þegar Norðmenn eiga í hlut!“
útskýrir hann.
„Svona byrjaði þetta. Svo vindur
þetta upp á sig og endar með því að
við skilum vopnunum. Vopnaburð-
ur, vopnakaup eða gjafir eru ekkert
leyndarmál. En þetta mál var orðið
að miklu fjölmiðlafári. Ég var kall-
aður fyrir Alþingi þar sem ég lýsti
því hvernig þetta bar að, sagði frá
því að þessi vopn hefðu verið gjöf
frá Norðmönnum. Ég stóð og stend
enn í þeirri trú að svo hafi verið.
Eftir að ég hafði verið í þinginu
þennan dag fór ég í viðtal þar sem
ég ræddi um þessa gjöf í góðri trú. Þá
hafði forstjóri Landhelgigæslunnar
samband við mig og sagði mér frá
því að það lægi fyrir samningur
milli LHG og norskra yfirvalda um
þessi vopn. Það kom mér mikið
Viljum að starfið sé hafið yfir allan vafa
Ríkislögreglustjóri segir spillingarmál innan lögreglunnar sjaldgæf. Hann vill setja upp sérstakt eftirlit með störfum lögreglu og segir
samskiptavanda lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hugsanlega hafa að gera með að Sigríður Björk situr í karllægu embætti.
↣
8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
0
7
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
1
8
-1
0
D
8
1
8
1
8
-0
F
9
C
1
8
1
8
-0
E
6
0
1
8
1
8
-0
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K