Fréttablaðið - 08.01.2016, Side 16

Fréttablaðið - 08.01.2016, Side 16
Lágkúran sem Ríkissjónvarpið bauð upp á þegar hljóðupptaka með Sigurði Einarssyni, fyrrver- andi stjórnarformanni Kaupþings, var leikin undir sprelli í áramótaskaupinu gefur tilefni til að staldra við og hug- leiða á hvaða vegferð við erum í upp- gjöri okkar við fall einkabankanna haustið 2008. Nú um áramót hafði Sérstakur sak- sóknari sent samtals 50 mál tengd falli bankanna í ákærumeðferð. Enn eru um sex mál til rannsóknar. Þegar hefur verið ákært í 28 málum og því bíða önnur 28 mál ákærumeðferðar. Telji einhver að nú fari að sjá fyrir endann á svokölluðum hrunmálum fyrir dómstólum er það rangt, við erum rétt að byrja – um tvö mál af hverjum þremur eru eftir. Þegar hafa 17 bankamenn hlotið fangelsisdóma vegna starfa sinna en út frá þeim málum, sem eiga eftir að fara fyrir dómstóla, má ætla að yfir 40 bankamenn muni hljóta fangelsis- dóma. Líklegt er að síðustu dómarnir falli árin 2019-2020 og síðustu afplán- unum ljúki árið 2024, en þá verða 15-16 ár liðin frá falli bankanna. Hinir dæmdu eru, utan einnar konu, fjölskyldumenn, karlmenn sem flestir eru fæddir á árunum 1966 til 1976. Margir þeirra voru afburða- námsmenn og sammerkt er með þeim öllum að þeir voru með hreina saka- skrá þegar meint brot voru framin, flest sömu dagana haustið 2008. Að því best er vitað hafa þeir heldur ekki brotið af sér þau átta ár sem eru liðin frá hruni. Bankastjórar bankanna dæmdir Bankastjórar allra viðskiptabankanna (Kaupþings, Landsbanka, Glitnis, og MP banka) hafa verið dæmdir í fang- elsi, að undanskildum Halldóri J. Kristjánssyni, bankastjóra Landsbank- ans og fyrrverandi ráðuneytisstjóra, sem hefur sloppið við allar ákærur. Meðbankastjóri Halldórs, hinn margákærði Sigurjón Þ. Árnason, hlaut hins vegar nýverið fangelsisdóm í Hæstarétti fyrir að hafa í störfum sínum brotið ótilgreindar óskráðar reglur. Slíkt dómsorð á að vekja ugg á meðal réttsýnna manna enda sýnir sagan glögglega að fátt er um varnir þegar vilji er til að dæma fólk í fangelsi eftir óskráðum reglum. Eftir átta ára rannsóknir fæst ekki Lágkúruleg grimmd séð að neinn grunur sé um að hinir ákærðu og dæmdu bankamenn hafi skotið undan fjármunum. Ákærurnar og dómarnir hafa flestir snúið að umboðssvikum. Það lagaákvæði, sem tekið er inn í íslensk lög úr dönskum lögum, er gamalt og hefur eftir banka- hrunið verið túlkað með miklum mun rýmri hætti af íslenskum dómstólum heldur en þekkist í danskri réttarfram- kvæmd. Fullyrða danskir lögspeking- ar, meðal annars Erik Werlauff, sem er höfundur kennslubóka sem íslenskir laganemar lesa, að samskonar dómar yfir bankamönnum væru óhugsandi í Danmörku. Einstætt uppgjör á heimsvísu Uppgjörið hér á landi við banka- mennina er einstætt á heimsvísu. Engin önnur þjóð tók jafn hart eða jafn grimmilega á eftirmálum alþjóðlegu fjármálakreppunnar og Íslendingar. Dagskipunin hér var þessi: „Við reynum að hundelta þessa gaura [bankamennina],“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra í útvarpsviðtali 8. apríl 2011 og eftir handtökur bankamanna sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra á blaðamannafundi 7. maí 2010, að þær væru „stór liður í því að við getum náð sáttum í þessu samfélagi …“ Í Danmörku, þar sem einkabankar féllu líka, hafa tveir bankastjórar hlotið smávægilega dóma. Fáeinir forsvarsmenn bresku bankanna, sem þurfti að bjarga með gríðarlegum tilkostnaði, fengu sektir og atvinnu- bönn. Í Bandaríkjunum hefur einkum sektum verið beitt, enda er almennt mat fræðimanna nú að ekki sé hægt að kenna einstaklingum um lánsfjár- kreppuna, sem þó átti upptök sín þar í landi, heldur hafi verið um kerfis- lægan vanda að ræða. Skipulögð aðför? Sammerkt er með þessum dæmdu einstaklingum, og eflaust þeim sem á eftir að dæma, að þeir telja sig ekkert rangt hafa gert í störfum sínum hjá bönkunum. Engum ætti að koma á óvart að þessi hópur muni ekki sætta sig við þessa fangelsisdóma og meðferðina sem hann hefur fengið innan réttar- kerfisins. Í raun hljóta þeir einnig, sem hópur, að komast að þeirri einu rök- réttu niðurstöðu að þeir séu fórnar- lömb skipulegrar aðfarar. Ef til vill hefur stemningin í réttar- kerfinu verið svipaðs eðlis og hjá spaugurum Ríkissjónvarpsins í Efsta- leiti, enda „megum við ekki gleyma því að dómstólarnir eru sprottnir upp úr okkar eigin samfélagi og eiga að endurspegla viðhorf okkar til málefna líðandi stundar,“ eins og Símon Sig- valdason, formaður dómstólaráðs og héraðsdómari í Reykjavík, orðaði það nýlega í útvarpsviðtali. Þessi ummæli ættu að öllu jöfnu að hringja viðvör- unarbjöllum en fanga í raun einkar vel þá stemningu sem hér hefur ríkt. Jónas Sigurgeirsson fyrrverandi bankamaður Engum ætti að koma á óvart að þessi hópur muni ekki sætta sig við þessa fangelsis- dóma og meðferðina sem hann hefur fengið innan réttarkerfisins. Um áramótin veitti Viðskipta-blað Fréttablaðsins verðlaun fyrir viðskiptaafrek liðins árs og að sama skapi voru tilnefnd verstu viðskipti ársins. Ríkisstjórnin fékk hin jákvæðu verðlaun fyrir samkomulag við kröfu- hafa þrotabúa bankanna en Arion banki og Síminn ehf. skammarút- nefningu fyrir sölu á hlutabréfum í Símanum þar sem bæði bankinn og Síminn féllu á siðgæðisprófi. Hin fyrri verðlaun læt ég að sinni liggja á milli hluta að öðru leyti en því að áhöld þykja mér vera um það hvort ekki hefði verið nær að sæma hrægammana verðlaunum fyrir hag- stæðustu viðskipti ársins fremur en ríkisstjórnina. Það er hins vegar skammarútnefn- ingin sem ég staðnæmist við. Í stað þess að Arion banki léti hlutabréf sín á opinn markað var byrjað á því, að hætti 2007, að heimila nákomnum og vildarvinum að komast yfir bréf á lægra verði en sýnt var að öðrum myndi bjóðast á markaði. Sú varð og raunin. Á opnum markaði var gengið orðið hærra og þar með virði bréf- anna. Hinir nákomnu þurfa ekki lengi að sitja á feng sínum því fljótlega geta þeir selt á markaði og hagnast vel. Dæmafá óskammfeilni Af Símans hálfu vakti athygli að stjórnendur þar á bæ voru í hópi kaupenda. Þar ber ekki síst að horfa til stjórnenda Mílu, sem á að vera fyrir- tæki aðskilið Símanum þótt hann sé undir sömu regnhlíf. Með sölunni var Síminn hins vegar nú kominn að hluta til í persónulega eign stjórn- enda Mílu! Þessu var að vísu snúið til baka enda dæmafá óskammfeilni. Eftir stendur að í fjárfestingahópi í kringum forstjóra Símans högnuðust menn persónulega á braskinu. Fjármálaráðherra lýsti því opin- berlega að hann teldi þessa sölu hafa verið „klúður“ og einn dómnefndar- maður Viðskiptablaðsins spurði „hvort hægt væri að klúðra málum meira“. Og bætti við, að „helstu leik- endur virðast ætla að sleppa vel frá þessum ótrúlega gjörningi en líklega verður einhver skúringakonan rekin enda verður alltaf einhver að axla ábyrgð.“ Spurning er hvort hugtakið klúður sé ekki heldur kurteist hugtak yfir þetta ferli sem fyrst og fremst skrifast náttúrlega á Arion banka sem stjórn- aði sölunni. En fram hjá ábyrgð stjórnenda Sím- ans verður ekki litið og þar með eig- enda hans. Lífeyrissjóðirnir eru lang- stærstu eigendur Símans og fara þar með vald sem lögbundinn sparnaðar launafólks hefur fært þeim í hendur. Ekki hef ég orðið var við að stjórn Símans hafi verið krafin sagna um þetta mál. Enda ekki skúringakona. Hitt þykir mér sýnt að lífeyris- sjóðirnir þurfa að taka upp gagnrýna umræðu um hvernig farið er með það vald sem eitt hundrað milljarða fjár- festingargeta á ári veitir. Almennt tel ég að lífeyrissjóðirnir hafi farið vel með vald sitt. En er svo í öllum tilvikum? Þetta mál þyrfti að verða tilefni til gagnrýninnar umræðu um það hvort svo er. Þeir sem vilja líf- eyrissjóðunum vel hljóta að verða hvatamenn að slíkri umræðu. Hvað segja eigendur Símans um skammarverðlaunin? Ögmundur Jónasson alþingismaður En fram hjá ábyrgð stjórn- enda Símans verður ekki litið og þar með eigenda hans. Líf- eyrissjóðirnir eru langstærstu eigendur Símans og fara þar með vald sem lögbundinn sparnaðar launafólks hefur fært þeim í hendur. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni. l Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja l Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein l Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna l Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna l Úthlutun mun liggja fyrir í mars/apríl 2016 Hverjir geta sótt um? l Háskólanemar í grunn- og meistaranámi l Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir Umsóknir eru rafrænar og skal sækja um á www.rannis.is. Þar er jafnframt að finna reglur og leiðbeiningar varðandi sjóðinn. Nánari upplýsingar veitir Ægir Þór Þórsson, aegir.thor.thorsson@rannis.is, sími 515 5819. H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Nýsköpunarsjóður námsmanna Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2016 kl.16.00 Sumarvinna við sjálfstæðar rannsóknir 8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r16 S k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 1 8 -1 F A 8 1 8 1 8 -1 E 6 C 1 8 1 8 -1 D 3 0 1 8 1 8 -1 B F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.