Fréttablaðið - 08.01.2016, Qupperneq 18
Í dag
19.00 KR - Stjarnan Sport 3
19.45 Exeter - Liverpool Sport
22.00 Körfuboltakvöld Sport
00.00 NBA: Wizards-Raptors Sport
Domino’s-deild karla:
18.30 Höttur - Njarðvík Egilsstaðir
19.15 KR - Stjarnan DHL-höllin
Munaði saMtals 9 stiguM
í síðustu þreMur leikjuM
kr og stjarnan mætast í kvöld í
lokaleik 12. umferðar Domino’s-
deildar karla í körfubolta en
stjarnan vann kr einmitt í fyrstu
umferðinni. stjörnumenn unnu
tvo af þremur leikjum liðanna á
árinu 2015 en hinn sigurinn kom í
sjálfum bikarúrslitaleiknum. það
munaði bara samtals 9 stigum á
liðunum í þessum þremur
leikjum og það má því
búast við mjög spenn-
andi leik í Vestur-
bænum í kvöld
en hann verður
sýndur beint
á stöð2
sport
3.
Nýjast
Fótbolti Viðburðaríkt ár hjá
íslenska karlalandsliðinu hefst
með þremur æfingaleikjum í
janúar en í gær var tilkynnt hvern-
ig hóparnir eru að stærstum hluta
skipaðir fyrir leikina tvo. ekki er
um alþjóðlega leikdaga að ræða
og því er liðið aðeins skipað leik-
mönnum liða sem nú eru í fríi. því
koma leikmenn landsliðsins frá
liðum á norðurlöndunum, rúss-
landi og kína.
Heimir Hallgrímsson, annar
landsliðsþjálfara íslands, sat fyrir
svörum á blaðamannafundi í gær
og meðal þess sem hann ræddi var
hversu annasamt ár er fram undan
– það umsvifamesta í sögu íslenska
karlalandsliðsins.
„Vinnan er þegar hafin og við
verðum að gæta þess að einbeita
okkur strax að því hvernig við vilj-
um haga öllum okkar undirbún-
ingi fyrir eM,“ sagði Heimir í sam-
tali við Fréttablaðið eftir fundinn
í gær. „en það má svo ekki heldur
gleyma því að strax í haust taka
við fjórir leikir í undankeppni HM
2018. það er helmingur allra leikja
í þeirri undan keppni. Við verðum
að gæta þess að mæta ekki til leiks
í haust eins og sprungnar blöðrur
eftir eM.“
Forsetaframbjóðandi á EM
Á fundinum í gær kom fram að 21
starfsmaður mun starfa í kringum
íslenska liðið á eM í Frakklandi
en á fundinum í gær var tilkynnt
hverjir muni fylgja leikmönnunum
23 sem spila fyrir hönd þjóðarinn-
ar á mótinu í sumar.
Heimir segir að íslenska starfs-
liðið sé helmingi fámennara en
það sem fylgi öðrum þjóðum á
mótinu. það verði því meira álag á
því en gengur og gerist. „það virðist
fylgja landsliðinu að allt það fólk
sem velst til starfa í kringum það
virðist vera duglegra en allir aðrir,“
segir þjálfarinn. „í þessum ferðum
vinna allir frá átta á morgnana til
miðnættis og það kvartar enginn.
þannig verðum við að vinna í
svona litlu sambandi eins og ksí.“
Meðal þeirra sem eru í teyminu
er þorgrímur þráinsson sem er titl-
aður sem „sálfræðingur“ liðsins.
Heimir segir að mikilvægi hans í
hópnum sé meira en margir telja.
„Hann talar við strákana og er
góður í því. svo hefur hann mikla
reynslu sjálfur sem leikmaður og
er ávallt reiðubúinn að hoppa í öll
störf hjá okkur,“ segir Heimir. þor-
grímur hefur ákveðið að bjóða sig
fram í embætti forseta í sumar en
kjörið fer fram 25. júní – þremur
dögum eftir leik íslands og austur-
ríkis í París.
„Við erum afar þakklát fyrir
að hann vilji taka sér tíma fyrir
íslenska landsliðið í öllu hans
amstri,“ segir þjálfarinn.
Ánægðir með andstæðingana
auk æfingaleikjanna þriggja í
janúar mun ísland spila tvo leiki í
mars og tvo í byrjun júní. aðeins
hefur verið tilkynnt að ísland muni
mæta grikklandi ytra í lok mars en
Heimir segir að það sé nánast frá-
gengið hvaða liðum ísland mætir
þar fyrir utan.
„það er nánast búið að negla
þessa leiki niður en ótímabært að
greina frá því hvaða lið þetta eru,“
segir Heimir, sem vill að ísland
mæti eins sterkum liðum í aðdrag-
anda eM og kostur er.
„það eru bara góð lið á eM og
því viljum við helst mæta slíkum
liðum. Við erum mjög ánægðir
með þá möguleika sem eru í stöð-
unni,“ segir Heimir.
eirikur@frettabladid.is
Enginn kvartar undan álagi
Árið 2016 verður annasamt hjá íslenska karlalandsliðinu og öllum sem því tengjast. Auk þess að spila á
sínu fyrsta stórmóti er viðbúið að það muni spila metfjölda leikja á árinu. Það kostar mikla vinnu fyrir KSÍ.
Framkonur hoppuðu upp um tvö sæti eftir sigur á Hlíðarenda
Fram upp fyrir Val og Hauka og í þriðja sætið Framkonan Sigurbjörg Jóhannsdóttir skorar hér eitt af sex mörkum sínum á móti Val í Valshöllinni á
Hlíðarenda í gærkvöldi. Eva Björk Hlöðversdóttir hefur misst hana fram hjá sér og Vigdís Birna Þorsteinsdóttir er aðeins of sein. Framkonan Stein-
unn Björnsdóttir fylgist síðan með úr fjarlægð. Framkonur eru tveimur stigum á eftir toppliði Gróttu eftir þennan góða útisigur. FRéttABLAðið/ERNiR
Vil vinna endalaust með Lars
Ummæli Heimis Hallgrímssonar í viðtali við
Áramótablað Viðskiptablaðsins hafa vakið
athygli. Þar sagði Heimir að hann væri ekki
viss um að hann myndi læra meira af því að
starfa með Lars Lagerbäck í tvö ár í viðbót.
Heimir útskýrði ummæli sín á blaðamanna-
fundinum í gær og gekkst við því að það hafi
verið mistök að tala ekki skýrar.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Lars og hef lært
mikið af honum. Það hef ég margsagt. Hann er í raun
einn af mínum bestu vinum í dag,“ útskýrði Heimir enn fremur. „Ég myndi
vilja vinna endalaust með honum eins og staðan er í dag.“
Heimir minntist á það í viðtalinu að hann væri með samning þess efnis
að hann tæki alfarið við sem landsliðsþjálfari eftir EM í sumar. En nú hefur
komið til tals að breyta því og að Lars Lagerbäck deili hlutverki landsliðs-
þjálfara áfram með Heimi fram yfir HM 2018.
„Ef Lars heldur áfram þarf ég eðlilega að setjast niður með mínum yfir-
mönnum og fara yfir minn samning. Það var það eina sem ég sagði í þessu
viðtali og það er engin kergja eða neitt slíkt sem er að skemma fyrir okkar
samstarfi. Við erum allir reiðubúnir að tala saman og komast að niður-
stöðu um þessi mál.“
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur áður sagt að von sé á svari frá
Lars Lagerbäck um framtíðina í næsta mánuði.
Við verðum að gæta
þess að mæta ekki
til leiks í haust eins og
sprungnar blöðrur eftir EM.
Heimir Hallgrímsson
A-landslið karla mun að
minnsta kosti spila fjórtán
landsleiki á þessu ári, sem er
nýtt met. Gamla metið er frá
1988 þegar Ísland spilaði alls
þrettán leiki.
Domino’s-deild karla
Keflavík - Þór Þorl. 91-83
Stigahæstir: Earl Brown Jr. 34/11 frák., Valur
Orri Valsson 25, Magnús Már Traustason 12,
Reggie Dupree 10 - Ragnar Örn Bragason 15,
Ragnar Ágúst Nathanaelsson 14/14 frák.,
Vance Michael Hall 14.
tindastóll - ÍR 79-68
Stigahæstir: Jerome Hill 25/12 frák., Darrel
Lewis 17, Pétur Birgisson 15/5 stoðs. - Jon-
athan Mitchell 26, Sveinbjörn Claessen 18
Snæfell - Haukar 79-65
Stigahæstir: Sherrod Wright 42/21 frák,
Austin Magnús Bracey 11 - Kári Jónsson 19,
Hjálmar Stefánsson 12, Emil Barja 10.
Grindavík - FSu 85-94
Stigahæstir: Þorleifur Ólafsson 22, Ómar
Örn Sævarsson 18/14 frák. - Christopher
Woods 26/20 frák., Cristopher Caird 21, Ari
Gylfason 15.
Efst
Keflavík 20
KR 18
Þór Þorl. 14
Stjarnan 14
Njarðvík 14
Haukar 14
Neðst
Tindastóll 14
Snæfell 10
Grindavík 8
ÍR 8
FSu 6
Höttur 0
Ísland - Portúgal 26-25
Mörk Íslands (Skot): Rúnar Kárason 7
(10), Arnór Atlason 5/3 (7/4), Ólafur Guð-
mundsson 4 (6), Arnór Þór Gunnarsson 3
(3), Guðmundur Árni Ólafsson 2 (3), Bjarki
Már Elísson 1 (1), Tandri Már Konráðsson
1 (1), Guðmundur Hólmar Helgason 1 (2),
Kári Kristján Kristjánsson 1 (2), Stefán Rafn
Sigurmannss. 1 (2), Róbert Aron Hostert (1).
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 9 (29/2,
31%), Stephen Nielsen 2 (7/1, 29%).
Aron Kristjánsson hvíldi lykilmenn í gær.
Björgvin Páll Gústavsson, Vignir Svavars-
son, Aron Pálmarsson, Ásgeir Örn Hall-
grímsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri
Steinn Guðjónsson, Alexander Petersson
og Róbert Gunnarsson voru ekki með.
Vináttulandsleikur í handbolta
olís-deild kvenna
Valur - Fram 27-28
Markahæstar: Gerður Arinbjarnar 7, Bryn-
dís Elín Wöhler 6, Sigurlaug Rúnarsdóttir
4/1 - Sigurbjörg Jóhannsdóttir 6/1, Hulda
Dagsdóttir 6, Ragnheiður Júlíusdóttir 6/2.
Framliðið komst upp fyrir Val og í 3. sæti.
8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S t U D a G U r18 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
0
7
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
1
8
-3
3
6
8
1
8
1
8
-3
2
2
C
1
8
1
8
-3
0
F
0
1
8
1
8
-2
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K