Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 22
Fólk| matur Við í Samtökum grænmetisæta á Íslandi stóðum fyrir Veganúar hér á landi í fyrra en Veganuary hófst á Englandi árið 2014. Við fundum fyrir mikilli jákvæðni gagnvart þessu og fjöldi Íslendinga er enn vegan eftir að hafa tekið þátt í fyrra,“ segir Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir en hún og Sigvaldi Ástríðarson standa fyrir Veganú- ar annað árið í röð, áskorun um að lifa vegan-lífi í einn mánuð. „Þetta er skemmtileg áskorun og í byrjun árs er algengt að fólk vilji prófa eitthvað nýtt,“ segir Sig- valdi. „Takmarkið er að gera enn betur í ár.“ HVað er Vegan-matargerð? „Það er bara ein regla í vegan-matargerð: Ekki nota hráefni úr dýraríkinu. Allt annað er leyfilegt,“ útskýrir Sæunn. „Þrátt fyrir að vegan-lífsstíllinn snúist að miklu leyti um mat þá snýst grundvallar- hugmyndafræðin um það að maðurinn hafi ekki til- kall til þess að hagnýta dýr að nokkru leyti. Margir gerast því vegan af siðferðisástæðum og einnig tileinkar fólk sér vegan-lífsstíl vegna umhverfis- verndarsjónarmiða. Enn aðrir af heilsutengdum ástæðum. Kostur vegan-matargerðar er hversu einfalt og fljótlegt er að matreiða úr lifandi hráefni. Margir tala líka um hversu mikill léttir það sé að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af smithættu af kjöti í eldhúsinu. Réttirnir eru flestir bæði auðmelt- ir og orkugefandi svo líðan margra breytist til hins betra. Ég finn hreinlega enga galla við það að elda vegan-mat, það er meira að segja ódýrara,“ segir Sæunn og Sigvaldi tekur í sama streng. „Ég lærði ekki að meta mat fyrr en ég varð græn- metisæta. Þá fyrst fór ég að njóta mín í eldhúsinu. Það er merkilegt hvað maður lærir með því að lesa sér til um innihald þess sem maður neytir. Það eru til dæmis ekki allir sem vita að ostahleypir í íslenskum osti inniheldur efni úr slátruðum dýrum og að hlaupnammi er bragðbætt og lituð blanda af fitu og beinum úr dýrum. Annars eru gallarnir við veganisma frekar hugrænir og þá helst í hugum þeirra sem ekki eru vegan. Það virðist nokkuð al- gengt að fólk breytist í næringarfræðinga og spyrji okkur spurninga um mataræðið og næringu sem það gæti ekki svarað sjálft,“ segir Sigvaldi. Leiðbeiningar og uppskriftir Þeir sem ætla sér að taka þátt í áskoruninni og lifa vegan lífi í einn mánuð geta fundið upplýsingar á síðunni veganuar.is. Þar er meðal annars að finna lista yfir íslenska vegan-bloggara, matarplön og upp- skriftir og upplýsingar um úrval vegan-vara á Íslandi og vegan-rétti á veitingastöðum. „Við erum einnig að vinna í að koma vefútgáfu í loftið. Um miðjan mánuð sýnum við heimildar- myndina Cowspiracy í Bíói Paradís en hún fjallar um umhverfisáhrif dýraframleiðslu og mun án efa koma mörgum á óvart hversu mengandi þessi iðnaður er,“ segir Sæunn. „Þá deila bæði gamalreynt veganfólk og nýgræðingar fróðleik á Veganúar-snappinu og í lok átaksins höldum við Pálínuboð þar sem allir þátttak- endur geta komið með vegan-rétti á hlaðborð.“ Vegan í mánuð mataræði Átakið Veganúar stendur út janúarmánuð. Það snýst um að lifa vegan-lífi í einn mánuð og standa Samtök grænmetisæta á Íslandi fyrir því. Vegan áskorun Sigvaldi Ástríðarson og Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir eru í Samtökum grænmetisæta á Íslandi og standa fyrir Veganúar, áskorun um að lifa vegan-lífi í mánuð. Mynd/SteFÁn Uppskrift að adUki-valhnetUhakki í boði hUgmynda að hollUstU – hUgmyndiradhollUstU.is 1 vorlaukur 2 hvítlauksrif Handfylli af niðurskornu bok choy eða kínakáli 1 dós af aduki-baunum 1 dl valhnetur 1 msk. tamari-sósa ¼ tsk. laukduft Smá cayenne-pipar Setjið valhnetur, tamari-sósu, laukduft og cayenne-pip- ar í blandara eða matvinnsluvél og púlsið nokkrum sinn- um svo  blandan verði að „hakki“. Ekki mauka alveg. Sett til hliðar. Saxið lauk og hvítlauk og mýkið í dálitlu vatni á pönnu. Bætið við káli og aduki-baunum og hitið í 2-3 mínútur. Blandið saman við valhnetuhakkið og berið fram með kasjúostasósu og e.t.v. spagettíi eða salati. kasjúostasósa: 1 dl kasjúhnetur ½ dl vatn 2 msk. næringarger 1 tsk. laukduft 1 tsk. hvítlauksduft 1-2 msk. lime-safi Salt Látið kasjúhneturnar liggja í bleyti í 2-3 tíma. Hellið vatn- inu af og maukið allt saman í blandara eða matvinnslu- vél. Bætið við vatni eins og þarf, þetta á að vera eins og mjög þykk sósa. aduki-VaLHnetuHakk Mynd/HugMyndIr að HolluStu Nýjung frá Tónagulli! Tónlistarnámskeið fyrir 4-5 ára á mánudögum 16:30-17:15 Nánari upplýsingar á www.tonagull.is Tryggðu þér pláss! BÖRN+UNGL. Skapandi dans 3ja ára Dans og hreyfing 4-5 ára Dans 7-9 & 10-13 ára Dans fyrir 14+ Break-dans Hip hop MJ Street Söngleikhús Afró – börn+foreldri Tónlistarleikhús Strákar dansa K V IK A Sími 551 5103 · kramhusid.is Kramhúsið ORKUSTÖÐ Í MIÐBÆNUM Ert þú líka á leið í Kramhúsið? Byrjum 11. janúar 2016 DANS Afró Magadans Bollywood Contemporary Kizomba Beyoncé dansar Tangó Balkan Flamenco ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ V V ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ V V V V V ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ ✷ ORKA Yoga Músíkleikfimi Pilates Zumba Jane Fonda Herra yoga Karlaleikfimi með Sóley GRÍN, HASAR OG RÓMANTÍK Á BÍÓSTÖÐINNI Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar sem boðið er upp á kvikmyndir allan sólarhringinn. Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM. 365.is | Sími 1817 BÍÓSTÖÐ IN ER Í SKEM MTI- PAKKAN UM 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 1 8 -1 A B 8 1 8 1 8 -1 9 7 C 1 8 1 8 -1 8 4 0 1 8 1 8 -1 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.