Fréttablaðið - 27.01.2015, Síða 10
27. janúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
GRIKKLAND Alexis Tsipras sór
embættiseið sinn sem forsætis-
ráðherra Grikklands í gær, dag-
inn eftir þingkosningar sem
skiluðu SYRIZA-flokknum hans
nærri helmingi þingsæta.
SYRIZA fékk 149 þingsæti
á 300 manna þjóðþingi Grikk-
lands, og vantaði því aðeins tvo
þingmenn upp á hreinan meiri-
hluta. Þingflokkur Óháðra
Grikkja, sem hlaut 13 þingmenn,
féllst á stjórnar samstarf. Flokk-
arnir tveir eiga það sameigin-
legt að hafa verið á móti hinum
ströngu aðhaldsaðgerðum og
stórfelldum niðurgreiðslum rík-
isskulda samkvæmt skilmálum
Evrópusambandsins og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.
SYRIZA og Óháðir Grikkir
eru hins vegar andstæðingar í
flestum öðrum málum, þar sem
Óháðir Grikkir eru þjóðernis-
sinnar á hægri vængnum, en
SYRIZA er vinstra megin í póli-
tíkinni.
Þjóðverjar standa enn harð-
ir gegn því að gefa Grikkjum
minnsta afslátt á kröfunum.
„Það þarf að standa við þær
skuldbindingar sem Grikkland
hefur gengist undir,“ sagði Stef-
fen Seibert, talsmaður Angelu
Merkel kanslara.
Christine Lagarde, fram-
kvæmda stjóri Alþjóðagjald-
eyris sjóðsins, segir ekki koma
til greina að Grikkir fái neina
sérmeðferð. „Það þarf að virða
innri reglur evrusvæðisins,“
hafði franska dagblaðið Le
Monde eftir henni. „Við getum
ekki sett eitt land í sérflokk.“
Hún sagði einnig nauðsynlegt
að Grikkir gerðu kerfisbreyting-
ar í stjórnsýslunni: „Það snýst
ekki um aðhaldsaðgerðir, heldur
er hér um að ræða grundvallar-
endurbætur sem enn á eftir að
gera.“
François Hollande Frakk-
landsforseti óskaði SYRIZA hins
vegar til hamingju með sigur-
inn, og Alexander Stubb, for-
sætisráðherra Finnlands, virðist
ekki lengur jafn stífur gagnvart
Grikkjum og hann hefur verið
til þessa, heldur segir hann nú
vel koma til greina að semja við
Grikki um framhaldið: „Byrj-
unar reglan er sú að við munum
ekki gefa eftir neinar skuldir, en
við erum reiðubúin til að ræða
breytingar á skilmálum og leng-
ingu lánstíma,“ sagði Stubb, og
bætti því við að hann væri sann-
færður um að fundist geti lausn
sem hægt verði að sætta sig við.
Þá sagði fjármálaráðherra
Belgíu einnig vera svigrúm til
þess að ræða skilmálabreyting-
ar til að auðvelda Grikkjum að
greiða niður skuldirnar.
Enn er hins vegar allt óljóst
um framhaldið. Nýja stjórnin í
Grikklandi ætlar sér að draga
úr niðurskurði og knýja fram
skuldbreytingar. Viðsemjend-
urnir í Evrópusambandinu og hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verða
augljóslega tregir til samninga.
Almenningur í Grikklandi situr
uppi með útkomuna.
gudsteinn@frettabladid.is
Snöggir að
mynda stjórn
Alexis Tsipras, hinn vinstri sinnaði sigurvegari grísku
þingkosninganna, ætlar að mynda ríkisstjórn með
hægri þjóðernissinnum. Stefnt á samninga við ESB.
PANOS KAMMENOS OG ALEXIS TSIPRAS Leiðtogar Óháðra Grikkja og SYRIZA voru
snöggir að mynda ríkisstjórn í gærmorgun, daginn eftir þingkosningar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYKJAVÍKURBORG „Markmið sam-
takanna Stelpur rokka er að leið-
rétta kynjahalla í íslensku tón-
listarlífi og verða leiðandi afl
í jafnréttismiðuðu tómstunda-
starfi,“ segir í samningi samtak-
anna við Reykja víkur borg.
„Kjarni starfseminnar er rokk-
sumarbúðir fyrir tólf til sextán ára
stúlkur þar sem þær læra á hljóð-
færi, spila í hljómsveit og semja,“
segir í samningnum. „Á öllu kynn-
ingarefni félagasamtakanna Stelp-
ur rokka, jafnt innan lands sem
utan, komi fram að verkefnið sé
styrkt af Reykjavíkurborg.“
Borgarráð samþykkti að veita
samtals 7,5 milljónir króna til
verkefnisins á næstu þremur
árum.
Verkefnið er sagt falla vel að
mannréttindastefnu borgarinnar
sem meðal annars „kveður á um
að börnum og unglingum sé veitt
hvatning til að rækta hæfileika
sína og persónuþroska án haml-
andi áhrifa hefðbundinna kynja-
mynda“. - gar
Borgarráð jafnar kynjahalla og styrkir tónlistarsumarbúðir fyrir stúlkur:
Stelpur rokka og fá 7,5 milljónir
VILJA BREYTINGU Samtökin Stelpur
rokka vilja auka vægi kvenna í rokk-
tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Veit á vandaða lausn
Heil máltíð í flösku
Næringardrykkur fyrir vannærða
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Næringavörur
falla undir
ákvæði SÍ
SPURÐU
UM DRYKKINN
Í NÆSTA
APÓTEKI
www.apotekarinn.is
Sól í hjarta og sinni...
en því miður hvorki
úti né inni.
afsláttur af vítamínum til 12. feb.20%
PIP
AR
\T
BW
A
•
SÍ
A
Þangað til sú gula fer að skína aftur af fullum krafti
mælir Apótekarinn með daglegum skammti af
D-vítamíni.
Kommúnista-
fl okkurinn:
Elsti stjórn-
málafl okkurinn
Nýtt lýðræði:
Gamli
íhalds-
fl okkurinn
PASOK:
Gamli
sósíalista-
fl okkurinn
Óháðir Grikkir:
hægri þjóðernissinnar
To Potami:
Splunkunýr
miðju-
fl okkur
Gyllt
dögun:
Nýnasista-
fl okkur
SYRIZA:
róttækur vinstrifl okkur
FLOKKASKIPAN NÝJA GRÍSKA ÞJÓÐÞINGSINS
149
171512 16 78
13
Við munum ekki gefa
eftir neinar skuldir, en við
erum reiðubúin til að
ræða breytingar á skil-
málum og lengingu
lánstíma.
Alexander Stubb,
forsætisráðherra Finnlands.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
2
-9
7
4
8
1
7
F
2
-9
6
0
C
1
7
F
2
-9
4
D
0
1
7
F
2
-9
3
9
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K