Fréttablaðið - 27.01.2015, Blaðsíða 14
27. janúar 2015 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Enginn vill vera karlremba eða ráðast
með dónaskap á fólk af öðru þjóðerni.
Fólk fær fyrir hjartað ef það er sakað
um fordóma í garð kvenna, samkyn-
hneigðra eða útlendinga. En sama fólk
virðist ekki skilja fordóma gagnvart
eldra fólki, sem úir og grúir af í okkar
samfélagi. Þeirra verður vart á vinnu-
stöðum, þegar reynt er að bola út eldri
starfsmönnum til að yngja upp. Þeirra
verður vart þegar talað er niður til eldra
fólks og líka þegar horft er í gegnum
eldra fólk, eins og það sé ekki til.
Útbelgdir af aldursrembu
Þegar spurðist út að RÚV ætlaði að setja
á dagskrá umræðuþátt með stjórnendum
af eldri kynslóðinni brugðust marg-
ir ókvæða við. Umsjónarmönnunum
var líkt við steingervinga og risaeðlur.
„Hvar er unga fólkið?“ var spurt og einn
skrifaði á Facebook: „Það eru nokkur
hjúkrunarheimili aldraðra í Reykjavík.
Þar hefði eflaust mátt finna þáttastjórn-
endur fyrir RÚV.“ Þá var nýlega rætt
um það í fremur neikvæðum tón að sjón-
armið „sjötugra“ væru ráðandi í þjóð-
málaumræðunni.
Aldursfordómar sjálfsagðir
Menn hefði rekið í rogastans, ef þetta
hefði verið umræða um konur, samkyn-
hneigða eða útlendinga. En þegar eldra
fólk á í hlut, eru fordómar af þessu tagi
leyfilegir, jafnvel sjálfsagðir. Marg-
ir sem komnir eru um sextugt eða eru
jafnvel yngri, eiga erfitt með að fá starf
ef þeir einhverra hluta vegna missa
störfin sem þeir hafa verið í. Fæstir eru
til í að tjá sig um það opinberlega, enda
vilja þeir ekki eyðileggja fyrir sér í
atvinnuleitinni. Á sama tíma er rætt um
að hækka eftirlaunaaldurinn í landinu!
Þetta er áhyggjuefni, ekki síst vegna
þess að fólki sem er 55 ára og eldra mun
fjölga um 45% á næstu 15 árum. Þetta
er einnig mismunun, sóun á reynslu og
þekkingu þessa fólks og brot á mann-
réttindum þess.
Aldursfordómar á Íslandi
SAMFÉLAG
Erna
Indriðadóttir
ritstjóri vefritsins
Lifðu núna
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Í
sland er úr leik í heimsmeistaramótinu í Katar. Frammi-
staða Íslands var óvenju slök að þessu sinni. Liðið var
nokkuð langt frá því sem við eigum að venjast. Í áratuga-
raðir hefur landsliðið heillað okkur með framgöngu sinni.
Svo var ekki nú. Þeir sem léku fyrir okkar hönd gerðu
eflaust sitt besta nú, sem fyrr. Það var bara ekki nóg.
Það er eitt. Annað er umgjörð mótsins og hvar það var haldið.
Smáríkið Katar er ríkt land. Auðæfunum er hins vegar ein-
staklega illa skipt milli þegna landsins. Þar er að finna ömurlega
fátækt og fádæma ríkidæmi, bruðl og óhóf. Mannréttindi eru
ekki virt sem sést best á stöðu kvenna og fátækra. Ríku menn-
irnir í Katar eru gripnir einhvers konar dellu. Þeir keppast við
að halda hvert stórmótið á eftir
öðru. Þeir hafa næga peninga.
Þeir hafa marga fátæka
verkamenn, kannski á að segja
þræla, til að vinna að byggingu
íþróttamannvirkja. Þar sem
vinnuaðstæður eru bágbornar
og banaslys eru ekki fátíð.
Undir þessum kringumstæð-
um þiggja tuttugu og þrjár þjóðir að koma, taka þátt í sýningunni
og samþykkja þá um leið það fyrirkomulag sem ríkir í Katar.
Misskiptinguna, mannréttindabrotin og stöðu kvenna. Ísland var
meðal þessara þjóða.
Rök mæla með að ekki sé gott að blanda saman stjórnmálum
og íþróttum. Ef aðeins er horft til íþrótta og hefðar er margt sem
þarf að skoða betur.
Landslið Katar er skipað úrvalsleikmönnum héðan og þaðan
úr heiminum. Fæstir hafa nokkur tengsl við sitt nýja föðurland,
Katar. Þá helst til að leika einn og einn landsleik fyrir Katar og
þiggja áður óþekkt laun fyrir. Þessi framganga er eðlilega einstök
og vonandi fáum til eftirbreytni. Með þátttöku sinni hafa þjóðirn-
ar tuttugu og þrjár lýst stuðningi sínum við þessar aðfarir.
Segja má að Alþjóðahandknattleikssambandið og þátttöku-
þjóðirnar hafi sleppt fádæma góðu tækifæri til að láta til sín
taka, beina athyglinni að því sem var og er að gerast í Katar.
Sýna í verki að ekki sé unnt að gera hvað sem er ef aðeins nægir
peningar eru til staðar. Ekki má vera hægt að kaupa hvað sem er.
Heimsmeistaramót í handbolta er smátt í sniðum í samanburði
við heimsmeistaramót í fótbolta. Nú er unnið að einu slíku í
Katar. Spilling vellur um allt. Fáir en ofurríkir karlar í Katar
hafa náð sínu fram. Keypt til sín stærstu íþróttamótin. Enn er
fátækum verkamönnum fórnað. Þeir deyja við byggingu íþrótta-
mannvirkja sem fulltrúar okkar heimshluta munu síðan spranga
um á. Við munum samþykkja áframhald vitleysunnar.
Ísland og hinar þjóðirnar tuttugu og tvær, sem mættu til
Katar, voru hluti leiktjalda sem hafa enga þýðingu því allt
hugsandi fólk hefur skömm á því sem gert var og gert er í Katar
og íþróttamótin eru ríku mönnunum í Katar ekki til framdráttar.
Alls ekki.
Eftir stendur að vel upplýstar þjóðir samþykkja að vera leik-
föng spillta aðalsins í Katar.
Handboltamótið í Katar gat markað tímamót:
Ísland samþykkti
með þátttökunni
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
➜ Fólk fær fyrir hjartað ef það er
sakað um fordóma í garð kvenna,
samkynhneigðra eða útlendinga.
En sama fólk virðist ekki skilja for-
dóma gagnvart eldra fólki, sem úir
og grúir af í okkar samfélagi. Þeirra
verður vart á vinnustöðum, þegar
reynt er að bola út eldri starfs-
mönnum til að yngja upp.
Óheilbrigt samband
Ný könnun MMR sýnir að Sjálfstæðis-
flokkur mælist með 27,3% fylgi og er
stærstur á þingi, en Framsóknarflokkur
minnstur með 9,4% fylgi. Það er
ekkert óeðlilegt að stærsti og minnsti
flokkurinn myndi meirihluta sé þess
kostur. Það var hins vegar ekki svo nú,
flokkarnir hafa 19 þingmenn hvor. Ef
kannanir eru mælikvarði á heilbrigði
sambands tveggja stjórnarflokka þá er
erfitt að halda því fram að sambandið
sé gæfuríkt fyrir Framsóknarflokk. Að
hefja samstarf sem jafningjar er
eitt, en þegar annar aðilinn á
í miklum erfiðleikum með að
fóta sig og hinn styrkist á sama
tíma eða í það minnsta
heldur velli, er nokkuð
gefið að togstreita og
óeining geri vart við sig.
Gústafs-gate ómælt
Könnun MMR var gerð dagana 9.-14.
janúar, nokkru áður en fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík skipuðu
Gústaf Adolf Níelsson, sjálfskipaðan
verndara kristinna miðaldra manna, í
mannréttindaráð. Því verður áhugavert
að sjá hvort raunfylgi flokksins hafi
farið enn neðar eftir þann gjörning
eða hvort viðbrögð flokksforystunnar
hafi verið nógu afdráttarlaus til að
flokkurinn haldi sjó. Viðbrögðin voru
nokkuð afdráttarlaus og skjót,
sérstaklega samanborið við við-
brögðin við ummælum Svein-
bjargar Birnu Sveinbjörns-
dóttur, oddvita flokksins í
Reykjavík, í fyrravor um að
afturkalla ætti lóðaút-
hlutun vegna mosku í
Reykjavík.
Margflókin mál á dagskrá
Áhugavert er að fylgjast með
hvernig stjórnarflokkarnir ráða fram úr
flóknum og stórum hagsmunamálum
sem liggja fyrir vorþinginu. Frumvarp
um breytingar á fiskveiðistjórnun og
veiðigjöld, breytingar á rammaáætlun
og lög um náttúruvernd, náttúrupass-
inn, breytingar á húsnæðiskerfi og ný
tillaga um hvernig skuli draga aðild að
ESB til baka. Áframhaldandi ójafnvægi
milli þeirra í könnunum eykur varla
samstöðuna. Það fjarar undan
Framsókn þrátt fyrir skulda-
niðurfellingu á sama tíma og
Sjálfstæðisflokkurinn virðist
standa óhaggaður þrátt fyrir
Ásmund Friðriksson og Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur.
heidakristin@frettabladid.is
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
1
-4
2
9
8
1
7
F
1
-4
1
5
C
1
7
F
1
-4
0
2
0
1
7
F
1
-3
E
E
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K