Fréttablaðið - 27.01.2015, Side 22
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 20152
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512-5429 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Sonax-vörumerkið, sem kom fyrst fram árið 1950, er þekkt fyrir mikil gæði og framúr-
stefnulega vöruþróun byggða á
hátæknilegum aðferðum,“ segir
Sverrir Ögmundsson, sölumaður
hjá Ásbirni Ólafssyni sem flytur
inn gæðavörurnar frá Sonax. Hann
segir margar vörurnar henta mjög
vel fyrir vinnuvélar og vörubíla.
„Í það minnsta eru mjög margir
atvinnubílstjórar sem kjósa vör-
urnar frá okkur.“
Þrífa skít en ekki smurningu
Sverrir segir fjölmargar sápur frá
Sonax henta vel til þrifa á vinnu-
vélum og tækjum. Hann getur þess
að allar vörurnar frá Sonax lúti
þeim reglum um umhverfisvernd
sem gildi í Evrópusambandinu.
„Við erum með sterkar sápur
sem henta vel fyrirtækjum sem eru
með mörg tæki eða bíla. Þær eru
fituleysandi, alkalískar með háu
PH-gildi. Þær eru gæddar þeim
eiginleikum að þær leysa vel upp
fitu og óhreinindi en eru ekki með
upplausnarefnum. Þannig leysa
þær ekki upp tjöru, olíu, glussa
og smurningu sem vinnuvélar og
traktorar þurfa til að virka,“ lýsir
Sverrir.
Sem dæmi um þess konar sápur
nefnir hann Sonax Dirt Dissolver
og Sonax Ultra Power.
Sverrir segir fólk geta valið á
milli háfreyðandi og lágfreyðandi
sápu. „Það er misjafnt hvað hent-
ar en froðan mýkir vatnið, færir
óhreinindi frá fletinum og fækkar
þannig rispum,“ segir hann.
Bónið verndar
Mikilvægt er að bóna öll tæki
reglulega til að minnka líkur á
ryði. „Öll umhirða og þrif verða
auðveldari ef þú bónar, ending-
in eykst auk þess sem það hækk-
ar endur söluverðið þegar tækin
líta vel út,“ segir Sverrir og mælir
sérstaklega með Hard Wax-bón-
inu. „Það er mjög þægilegt að nota
á stórar vinnuvélar, fljótlegt og má
nota á alla fleti.“
Sonax framleiðir bón sem vinna
má með á handvirkan máta með
því að úða yfir bílana með úða-
brúsa, nudda með þvottakústi og
skola af. Það bón er einungis selt í
25 lítra brúsum enda er það aðal-
lega notað á þvottastöðvum,“ lýsir
Sverrir og bendir á að slíkt bón
henti vel fyrir f lutningabíla og
rútur enda afar fljótleg leið til að
bóna.
Hreint og fínt vinnurými
Það skiptir marga máli að vinna
í hreinu og snyrtilegu umhverfi.
Sonax býður upp á fjölbreytt úrval
af efnum til þrifa á innanrými. „Við
erum með heilmikið af áhöldum,
svömpum, míkrófíberklútum,
sköfum og slíku til að þrífa bílana
að innan sem utan. Þá er hægt að
fá gluggahreinsiefni, sérstök efni
til að hreinsa sæti, hurðaspjöld og
mælaborð. Að auki má fá efni með
vínylgljáa og önnur sem fríska upp
á gúmmí,“ telur Sverrir upp. Hann
áréttar að efnið sem spreyja má á
mottur sé stamt og því ekki hætta
á að sólar á skóm verði sleipir.
Flugur og kalk
Vöruúrvalið frá Sonax er mjög fjöl-
breytt og þar kennir ýmissa grasa.
„Á sumrin lenda margir í vand-
ræðum með flugur og skordýr sem
festast á húddi og grilli. Við erum
með sérstök efni sem má úða á
slík óhreinindi. Þetta er hátækni-
vara sem mýkir upp óhreinind-
in sem síðan er hægt að skola af,“
segir Sverrir en einnig er hægt að
fá sérstaka svampa til að þrífa slík
óhreinindi.
Sverrir bendir einnig á að sumar
sápur megi nota til margra hluta.
„Við erum með sápur sem inni-
halda sýrur sem leysa vel upp
steinefni og kalk. Slíkar sápur
henta einkar vel við þrif á f lísa-
lögðum gólfum verkstæða og við
þrif á steypubílum og tækjum sem
notuð eru við steypuvinnu“.
Hann bendir einnig á að Sonax
bjóði upp á alls konar slípimassa
og efni til að slípa upp gamalt og
veðrað lakk.
Bón og bílasápur fyrir vélar og vörubíla
Heildverslunin Ásbjörn Ólafsson ehf. hefur um áratugaskeið flutt inn bón- og bílhreinsivörur frá þýska framleiðandanum Sonax.
Margar þeirra henta vel fyrir vinnuvélar og vörubíla. Sonax-vörur eru söluhæstu bílhreinsivörurnar á íslenskum markaði.
Sverrir Ögmundsson, sölumaður hjá Ásbirni Ólafssyni, hjá hluta af því úrvali af bóni og
bílasápum frá Sonax sem henta vel fyrir vinnuvélar og tæki. MYND/GVA
Vörurnar frá SONAX fást á mörgum
útsölustöðum um allt land.
HARD WAX - HREINSAR OG VERNDAR
FÆST E
INNIG
Í
5 LÍTR
A DUN
KUM
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
2
-7
4
B
8
1
7
F
2
-7
3
7
C
1
7
F
2
-7
2
4
0
1
7
F
2
-7
1
0
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K