Fréttablaðið - 27.01.2015, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 201510
Ég hef verið í slökkviliðinu í sjö ár. Ein af inntökukröf-unum er að vera með meira-
próf en fyrstu þrjú árin fer maður
lítið í aksturinn. Eftir það keyr-
um við alla bílana, slökkvibíl,
körfubíl og sjúkrabíl. Slökkvilið-
ið er einnig með gámabíla sem
við notum til að flytja björgunar-
gáma milli staða,“ segir Birna
Björnsdóttir slökkviliðsmaður
þegar hún er spurð út í tækin sem
hún stjórni í vinnunni.
„Körfubíllinn er stærstur og
mest krefjandi að vinna á. Það
þarf sérstakt próf á hann sem
allir fara í eftir þrjú ár í starfi. Við
æfum okkur á bílinn með reynd-
ari starfsmönnum og tökum svo
prófið hér innanhúss. Það þarf að
kunna að stýra honum, reisa körf-
una og framkvæma fleiri kúnst-
ir,“ útskýrir Birna og segir að þó
ákveðna lagni þurfi á svo stór
tæki sé það æfingin sem skipti
öllu máli.
„Helst þarf bara að gera sér
grein fyrir að bílarnir eru stór-
ir og langir. Það þarf að æfa sig í
að keyra og fá þannig tilfinningu
fyrir bílnum og hvernig hann
bregst við í akstri.
Ekki er alltaf þörf á körfubíln-
um í útkalli og þá höldum við
okkur við með því að fara út þegar
tími gefst, reisum bílinn og æfum
okkur á hann. Það er alltaf einn
skráður á körfubílinn á hverri
vakt, stundum ég og stundum
ekki.“
Er samkeppni í liðinu?
„Jú, jú, menn hafa auðvitað allt-
af metnað til að gera vel,“ segir
Birna sposk.
„En kerfið rúllar samt þannig
að hver maður í liðinu er ekki allt-
af að gera það sama. Það fá allir
að gera allt, sem er skemmtilegt
og alltaf áskorun,“ segir Birna.
Hún segir starfið fyrir vikið
fjölbreytt og áhugavert en ekkert
endilega taugatrekkjandi.
„Slökkviliðið sinnir sjúkra-
f lutningum og einnig eiturefn-
um, köfun og utanvegabjörgun
eins og á fjöllum. Auðvitað er allt-
af spenna í kringum þessa vinnu
og þannig fólk velst í þetta starf.
Ég veit aldrei hvað ég er að fara
að gera þegar ég mæti í vinnuna.
Ég er bara alltaf tilbúin í allt. Það
er ákveðinn sjarmi yfir því, finnst
mér. Ég hafði lengi haft áhuga á
þessu starfi þegar ég sótti loks
um. Slökkviliðið er óneitanlega
svolítið karlaveldi og eins og er
er ég eina konan í útkallsliðinu,
en það hefur aldrei skipt neinu
máli. Það væri samt gaman ef
f leiri konur kæmu í liðið.“
Körfubíllinn er
stærstur og mest
krefjandi að vinna á. Það
þarf sérstakt próf á hann
sem allir fara í eftir þrjú
ár í starfi.”
„Það hefur orðið mikil aukning
í sölu sendi- og vörubíla undan-
farna mánuði. Sérstaklega mikil
eftirspurn hefur verið eftir Iveco-
atvinnubílum og Komatsu-vinnu-
vélum. Salan hér innanhúss hefur
margfaldast á milli ára. Við finnum
einnig fyrir mikilli aukningu í jarð-
vinnugeiranum,“ segir Viktor Karl
Ævarsson, sölustjóri hjá Kraftvél-
um. „Iveco-sendibílar eru til í miklu
úrvali. Við getum boðið sendibíl,
allt frá þremur og hálfu tonni, en
ekki þarf meirapróf til að aka þeim,
upp í stærstu tegund dráttar- eða
flutningabíla. Þessir bílar eru þægi-
legir í akstri og búnir öllum þægind-
um. Iveco Daily-sendibíllinn var
nýlega kosinn sendibíll ársins 2015
í sínum flokki. Við erum stoltir af
því,“ segir Viktor. „Þessi bíll hent-
ar vel fyrir smærri fyrirtæki, iðnað-
armenn og alla þá sem þurfa frá sjö
og upp í tuttugu rúmmetra farang-
ursrými. Við erum með þennan bíl
á staðnum í prufuakstur og eigum
hann alltaf til á lager,“ segir Viktor.
„Við höfum verið að selja Iveco-
vörubíla til margra fyrirtækja,
svo sem Eimskips, Ölgerðarinn-
ar, Reykjavíkurborgar, Olíudreif-
ingar, Hafnarfjarðarbæjar, Orku-
veitu Reykjavíkur og Hjálparsveit-
ar skáta í Kópavogi svo eitthvað sé
nefnt. Við bjóðum upp á þjónustu-
samning sem fyrirtæki hafa verið
ánægð með. Þá er greidd ákveð-
in upphæð fyrir hvern ekinn kíló-
metra og í staðinn er 5 ára ábyrgð
með bílnum.“
Kraftvélar eru til húsa að Dal-
vegi 6-8 í Kópavogi. Frekari upp-
lýsingar á heimasíðunni kraftvel-
ar.is
Sendibíll ársins
Mikil aukning hefur verið í sölu vörubíla og
vinnuvéla undanfarið. Kraftvélar bjóða mikið
úrval, meðal annars Iveco-vörubíla sem hafa verið
mjög eftirsóttir og Komatsu-vinnuvélar.
Óskar Sig-
mundsson
sölufulltrúi
með nýjum
Iveco-vöru-
bílum.
MYND/GVA
Slökkviliðsstarfið
áskorun alla daga
Birna Björnsdóttir slökkviliðsmaður segir æfinguna skapa meistarann við
stjórn stórra slökkvi- og körfubíla. Starfið sjálft sé fjölbreytt og krefjandi og
engir tveir dagar eru eins. Hún veit aldrei hvað bíður hennar þegar hún mætir
á vakt, hún mætir einfaldlega alltaf tilbúin, í allt.
Birna Björnsdóttir slökkviliðsmaður segir engan dag eins í vinnunni. Starfið sé fyrir vikið
áhugavert og krefjandi. MYND/GVA
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
1
-9
B
7
8
1
7
F
1
-9
A
3
C
1
7
F
1
-9
9
0
0
1
7
F
1
-9
7
C
4
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K