Fréttablaðið - 27.01.2015, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 201516
Vinnueftirlitið hefur umsjón með verklegum vinnuvéla-prófum og útgáfu vinnuvéla-
skírteina í samræmi við Reglur um
réttindi til að stjórna vinnuvélum
(198/1983). Til að öðlast vinnuvéla-
réttindi verður að uppfylla nokkur
skilyrði að sögn Guðmundar Þórs
Sigurðssonar, verkefnastjóra upp-
lýsinga- og fræðsludeildar, og Magn-
úsar Guðmundssonar, deildarstjóra
vinnuvéladeildar Vinnueftirlitsins.
„Fyrst ber að nefna aldur en til að
fá vinnuvélaréttindi verður maður
að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.
Þó er 16 ára aldurstakmark til að sitja
bóklegt vinnuvélanámskeið. Þrem-
ur mánuðum fyrir 17 ára afmælis-
dag getur viðkomandi farið að æfa
sig á tæki undir leiðsögn einstaklings
sem hefur kennararéttindi á vinnu-
vélina,“ segir Guðmundur.
Áður en verkleg þjálfun hefst
skulu nemendur sitja bóklegt vinnu-
vélanámskeið og verða að standast
próf að því loknu bætir Magnús við.
„Bókleg námskeið eru til bæði fyrir
einstaka flokka vinnuvéla eða fyrir
marga flokka vinnuvéla til dæmis
frumnámskeið, sem Vinnueftirlitið
heldur.“
Verkleg þjálfun
Þegar bóklegu námskeiði er lokið
tekur við verkleg þjálfun sem verð-
ur að vara í að minnsta kosti sex tán
klukkustundur á hvern flokk véla
sem menn ætla að fá réttindi fyrir.
„Verkþjálfun skal fara fram undir
leiðsögn leiðbeinanda sem hefur
réttindi til kennslu og þar sem ekki
er margt fólk eða slysahætta til stað-
ar.“
Þegar nemandi er kominn með
staðfestingu á að hafa lokið a.m.k. 16
stunda verklegri þjálfun óskar hann
eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu
og fer í verklegt próf. „Standist nem-
andi prófið fær hann staðfestingu á
því hjá prófdómara sem hann fram-
vísar hjá Vinnueftirlitinu um leið og
hann sækir um vinnuvélaskírteini
fyrir viðkomandi vél eða vélar.”
Til að fá réttindi til að stjórna
krana þarf viðkomandi auk þess að
framvísa læknisvottorði sem sam-
svarar vottorði til að fá aukin öku-
réttindi.
Það er Vinnueftirlitið og ákveðn-
ir ökuskólar sem halda bóklegu
vinnuvélanámskeiðin. Vinnueftirlið
heldur stutt bókleg námskeið (frum-
námskeið) sem gilda aðallega fyrir
minni vinnuvélar og krana.
„Ökuskólarnir halda síðan 80
kennslustunda bókleg námskeið
sem heita Grunnnámskeið. Þau
veita rétt til að þreyta verkleg próf á
allar gerðir og stærðir vinnuvéla hjá
prófdómara frá Vinnueftirlitinu.“
Mætingarskylda
Vinnueftirlitið heldur frumnám-
skeið og byggingakrananámskeið
en önnur námskeið eru haldin í sam-
vinnu við atvinnurekendur á hverj-
um tíma, til dæmis dráttarvélanám-
skeið og lyftaranámskeið. „Stunda-
skrár eru kynntar við upphaf kennslu
og nefna má að það er alltaf 100%
mætingarskylda á námskeið Vinnu-
eftirlitsins. Fyrir endurtöku á nám-
skeiði greiðist 75% af námskeiðs-
gjaldi eins og það er á hverjum tíma.“
Frumnámskeið er 27 kennslustundir
og er kennt á þremur dögum. Fyrsti
dagur á frumnámskeiði kallast for-
nám og fjallar um vinnuverndar-
mál, eðlisfræði, vökvafræði, vélfræði,
rafgeyma og öryggi við skurðgröft.
„Dagar tvö og þrjú fjalla um einstaka
flokka vinnuvéla og fleira þeim tengt.
Frumnámskeiði líkur með skriflegu
krossaprófi.“
Allar nánari upplýsingar um
vinnuvélanámskeið og vinnuvéla-
réttindi má finna á www.vinnueft-
irlit.is
Vinnuvélanámskeið og réttindi
Verkleg vinnuvélapróf og útgáfa vinnuvélaskírteina eru í höndum Vinnueftirlitsins. Nemendur þurfa fyrst að ljúka bóklegu
vinnuvélanámskeiði áður en verkleg þjálfun hefst. Auk Vinnueftirlitsins halda ákveðnir ökuskólar bóklegu vinnuvélanámskeiðin.
Til að öðlast vinnuvélaréttindi verður að uppfylla nokkur skilyrði að sögn Magnúsar Guðmundssonar, deildarstjóra vinnuvéladeildar og Guð-
mundar Þórs Sigurðssonar, verkefnastjóra upplýsinga- og fræðsludeildar Vinnueftirlitsins. MYND/GVA
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
1
-C
7
E
8
1
7
F
1
-C
6
A
C
1
7
F
1
-C
5
7
0
1
7
F
1
-C
4
3
4
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K