Fréttablaðið - 27.01.2015, Page 44

Fréttablaðið - 27.01.2015, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 201524 Stórar vagnalestir keyra um langan veg Íslendingar eru ekki vanir því að sjá vörubíla með fleiri en einn tengivagn á þjóðvegum landsins. Lengstu vagnalestirn- ar úti í heimi geta þó innihald- ið nokkra tengivagna en flestar eru þær starfræktar í dreifbýlum stærri landa á borð við Ástral- íu, Argentínu, Kanada, Mexíkó og Bandaríkin þar sem vega- lengdir milli staða eru iðulega mjög langar. Enska orðið „road train“ er gjarnan notað yfir slík- ar vagnlestir sem samanstanda alltaf af tveimur tengivögnum eða fleiri, allt upp í sex tengi- vagna. Langar vagnalestir hafa löngum verið þekktar í Ástralíu sem er mjög stórt land og strjál- býlt. Algeng stærð á vagnalestum þar í landi eru 3-4 tengivagnar og getur slík lest náð tæpum 55 metrum að lengd. Sem dæmi um vegalengd sem bílstjóri slíkrar lestar þarf að keyra er vegalengd- in frá hafnar borginni Darwin í norðri suður til Alice Springs, sem er nálægt miðju landsins, um 1.290 km. Til samanburðar er vegalengdin milli Reykjavík- ur og Akureyrar 388 km. Lengsta vagnalest heims samanstend- ur af vörubíl og sjö tengivögn- um. Hún er notuð við námu- vinnslu í granítnámum í Nort- hern Territory í Ástralíu þar sem mjög langt er á milli námunnar og næstu hafnar. Slík vagnalest getur f lutt um 190 tonn og líkleg- ast best að forðast hana á þjóð- vegum landsins. TÍU JARÐGÖNG Á ÍSLANDI Á Íslandi eru tíu jarðgöng í notkun. Lengstu jarðgöngin eru undir Breiðadals- og Botnsheiði milli Ísafjarðar, Önundarfjarðar og Súgandafjarðar en þau eru þriggja arma. Elstu göngin eru í gegnum Arnardalshamar milli Ísafjarðar og Súðavíkur en þau voru gerð 1948 og eru 30 m löng. Göng Vígð lengd Göng undir Breiðadals- og Botnsheiði 1996 9,12 km Héðinsfjarðargöng 2010 7,1 + 3,9 km Fáskrúðsfjarðargöng 2005 5,9 km Hvalfjarðargöng 1998 5,77 km Bolungarvíkurgöng 2010 5,4 km Múlagöng í Ólafsfjarðarmúla 1991 3,4 km Almannaskarðsgöng 2005 1,3 km Strákagöng við Siglufjörð 1967 800 m Oddsskarð milli Eskifjarðar og Norðfjarðar 1977 640 m Arnardalshamar, milli Ísafjarðar og Súðavíkur 1948 30 m Vaðlaheiðargöng eru veggöng sem verið er að gera undir Vaðlaheiði við Eyjafjörð. Göngin verða um 7,5 km milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals. Með göngunum styttist vegalengd milli Akureyrar og Húsavíkur um 16 km og ekki þarf lengur að fara um Víkurskarð. Gert er ráð fyrir að framkvæmd- um verði lokið í árslok 2016. EKIÐ LANDSHLUTA Á MILLI Á vef Vegagerðarinnar er að finna ýmsan fróðleik. Þar má til dæmis finna hversu langt er á milli hinna ýmsu staða á landinu. Hér eru nokkru dæmi um algengar vegalengdir. Reykjavík - Selfoss 57 km Reykjavík - Borgarnes 74 km Reykjavík - Akureyri 388 km Reykjavík - Egilsstaðir 652 km Reykjavík - Ísafjörður 455 km Reykjavík - Vík í Mýrdal 186 km Reykjavík - Seyðisfjörður 679 km Akureyri - Seyðisfjörður 291 km Akureyri - Egilsstaðir 264 km Akureyri - Ísafjörður 558 km Akureyri - Höfn í Hornafirði 510 km Akureyri - Sauðárkrókur 120 km Egilsstaðir - Ísafjörður 822 km Egilsstaðir - Höfn í Hornafirði 246 km Vík í Mýrdal - Höfn í Hornafirði 272 km Ísafjörður - Patreksfjörður 178 km Würth á Íslandi var stofnað 1988 og hefur nú þjónustað sína viðskiptavini í 27 ár. Würth samsteypan samanstendur af 413 fyrirtækjum í 84 löndum með ríflega 66 þúsund starfsmenn. Würth á Íslandi ehf. einbeitti sér fyrst að þjónustu við bifreiðaverkstæði, en síðan við tré- og málmiðnaðinn ásamt þjónustu við almennan iðnað. Fyrir 2 árum bættust við í vörulínu fyrirtækisins stærri tæki fyrir verkstæði: lyftur, hjólastillitæki, dekkjavélar og margt fleira undir merkjum WWE. WWE (Würth Workshop Equipment ) er samstarfsvettvangur Würth fyrirtækja sem annast sölu og þjónustu á stærri búnaði inn á verkstæði. Würth á Íslandi hefur markað sér þá stefnu að bjóða hágæðabúnað og þjónustu í þessum efnum til að tryggja rekstraröryggi viðskiptavina sinna. Sefac stólpalyftur • Fáanlegar 5,5 7,5 og 8,2 tonn • 7,5 er með þráðlausum samskiptum milli pósta • Íslenskur texti í skjá • Dekkjastærð : 962 til 1154 mm • Mesta hæð: 1820 mm • Hraði upp óhlaðinn 1090 mm/mín • Hraði upp hlaðinn 7,5 T. 790 mm/mín • Ryk og vatnsvarinn samkv. IP54 • Þyngd á stólpa 430 kg Vesturhrauni 5 210 Garðabæ S:530-2000 Bíldshöfði 16 112 Reykjavík S:530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S:461-4800 Würth á Íslandi ehf Hunter GSP HD • Max ummál 52“ 1321 mm • Max breidd 19,5“ 495 mm • Max þyngd á dekki 227 kg Hjólastilling • Einföld og fljótleg mæling • Ekki þarf að lyfta upp hásingum til að miðjustilla • Lifandi mynd af 3 öxlum í einu, hvort sem er á bíl eða vagni • Þráðlaus tenging milli hausa í tölvu 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 2 -4 8 4 8 1 7 F 2 -4 7 0 C 1 7 F 2 -4 5 D 0 1 7 F 2 -4 4 9 4 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.