Fréttablaðið - 25.06.2015, Page 49
FIMMTUDAGUR 25. júní 2015 | SPORT | 37
FÓTBOLTI Breiðablik hefur farið
liða best af stað í Pepsi-deild
kvenna. Blikastúlkur unnu gríðar-
lega mikilvægan 1-0 sigur á Sel-
fossi í Pepsi-deildinni í fyrradag
en með honum náðu þær fjögurra
stiga forskoti á toppi deildarinnar.
Blikar eru búnir að vinna sér
inn 19 stig, fjórum meira en
Stjarnan og Selfoss sem eru í 2.
og 3. sæti. Blikastúlkur eru búnar
að vinna sex af fyrstu sjö leikj-
um sínum og gera eitt jafntefli.
Markatalan er líka frábær; 23
mörk skoruð og aðeins tvö fengin
á sig. Breiðabliki var spáð sigri í
Pepsi-deildinni í ár og byrjunin
lofar allavega góðu. Sérstaklega
í ljósi þess að Blikar hafa ekki
byrjað jafn vel í efstu deild síðan
2005 – árið sem félagið varð síðast
Íslandsmeistari.
Þá unnu Blikar fyrstu sjö leiki
sína með markatölunni 28-5 og
voru með 21 stig á toppi deildar-
innar, þremur stigum á undan Val.
Þegar upp var staðið fékk Breiða-
blik 40 stig í 14 leikjum árið 2005;
vann 13 leiki og gerði eitt jafnt-
efli. Blikar eru þegar búnir að
tapa jafn mörgum stigum í ár og
allt tímabilið 2005 en miðað við
spilamennsku liðsins í sumar er
ólíklegt að það tapi mörgum stig-
um til viðbótar.
Aðeins einn leikmaður er eftir
í Breiðabliksliðinu frá Íslands-
meistaraárinu 2005. Það er lands-
liðskonan Fanndís Friðriksdóttir
sem kom fyrst inn í lið Breiða-
bliks sumarið 2005, aðeins 15 ára
gömul. Fanndís, sem er marka-
hæst í Pepsi-deildinni í ár, lék þrjá
leiki í efstu deild sumarið 2005 og
skoraði eitt mark. - iþs
Besta byrjun frá meistaraárinu
Blikar hafa ekki byrjað jafn vel frá 2005, þegar liðið varð síðast Íslandsmeistari.
Á TOPPNUM Blikar eru búnir að vinna sex af sjö leikjum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lofthradi.is Sími 1817
MEIRI HRAÐI
Í BÚSTAÐINN
MEIRI HRAÐI
Allt að 30 Mb/s hraði.
STÖÐUGRA SAMBAND
Mikil notkun truflar ekki aðra viðskiptavini.
INNLENT NIÐURHAL INNIFALIÐ
Allt innlent niðurhal er innifalið.
Athugaðu hvort að þú getir fengið Lofthraða í bústaðinn þinn, kynntu þér málið á lofthradi.is
FÓTBOLTI Klara Bjartmarz, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, mun ekki
skjóta máli Kassims Doumbia,
leikmanns FH, til aganefndar
sambandsins en það staðfesti hún
í samtali við Fréttablaðið í gær.
Klara hefur heimild til að
senda mál inn á borð aganefndar
sem geta talist skaðleg íslenskri
knattspyrnu og ímynd hennar.
Doumbia fagnaði jöfnunarmarki
sínu gegn Breiðabliki með því að
öskra blótsyrði að myndatökuvél
Stöðvar 2 Sports, sem var með
leikinn í beinni útsendingu.
„Þetta var honum ekki til sóma
og íþróttinni ekki til framdrátt-
ar,“ sagði Klara. „En hann baðst
afsökunar og ég læt það duga að
þessu sinni.“
Doumbia og knattspyrnudeild
FH hörmuðu atvikið í yfirlýsingu
sem send var fjölmiðlum í fyrra-
dag.
Doumbia hóf keppnistímabilið í
Pepsi-deild karla í fjögurra leikja
banni vegna hegðunar sinnar
eftir leik FH og Stjörnunnar í
lokaumferð síðasta tímabils. - esá
Doumbia ekki
fyrir aganefnd
SLEPPUR Kassim Doumbia fer ekki í
bann fyrir ljótan munnsöfnuð.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Litlar líkur eru á því að
Blikinn Höskuldur Gunnlaugsson
verði með sínum mönnum þegar
þeir mæta ÍBV í Vestmannaeyj-
um á sunnudag.
Höskuldur hefur verið veikur
og missti af toppslag Breiðabliks
og FH í síðustu umferð af þeim
sökum. Arnar Grétarsson, þjálf-
ari Breiðabliks, segir að Höskuld-
ur sé á batavegi en hann reikni
ekki með honum fyrir leikinn
gegn ÍBV.
Breiðablik fær rúmleg tveggja
vikna frí eftir leikinn á sunnu-
dag og reiknar Arnar með því að
Höskuldur verði búinn að ná full-
um bata fyrir leik liðsins gegn
Fjölni mánudaginn 13. júlí. - esá
Höskuldur fer
ekki til Eyja
ÖFLUGUR Höskuldur hefur skorað
fjögur mörk í tíu deildar- og bikar-
leikjum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
3
-1
7
1
C
1
7
D
3
-1
5
E
0
1
7
D
3
-1
4
A
4
1
7
D
3
-1
3
6
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K