Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Side 3
mánudagur 27. október 2008 3Fréttir
Aðstoðarmenn ráðherra boðuðu forsvarsmenn valinna fjöl-
miðla á fund í Háskóla Reykjavíkur á dögunum þegar óvissan
var algjör í efnahagsmálum þjóðarinnar. Steingrímur Sigur-
geirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir að ekki
hafi verið um leynifund að ræða. Umræðuefni hans er engu
að síðu leyndarmál. Verið að veita okkur upplýsingar um
hvað sé í gangi segir ritstjóri Morgunblaðsins.
RitstjóRaR á
leynifundi
DV Fréttir fimmtudagur 3. júlí 2008 7
Fá ekki fé til verksins
Foringi Hells Angels
Leif sem kom hingað fyrir örfáum
árum. Þá var hann ekki stöðvaður
þrátt fyrir að lögreglan hafi lagt sig
í líma við að snúa meðlimum geng-
isins við til síns heima. Hann segir
að þvert á móti hafi lögreglan verið
mjög vinaleg á meðan hann dvaldi
hér á landi. Hann segist hafa not-
ið landsins gæða á meðan hann
dvaldi hér og hefur ekkert illt um
þjóðina að segja. Honum finnst
aftur á móti viðbrögð lögreglunnar
hafa verið heldur hörð þegar þeir
hafa komið í hópum. Eftir að þeim
var vísað úr landi í fyrra fóru þeir í
mál við ríkið.
Fimm sinnum fyrir dóm
„Þeir hafa dregið mig fimm
sinnum fyrir dóm og alltaf hef ég
gengið út sem frjáls maður,“ seg-
ir Leif um erfitt líf Vítisengilsins.
Ein af alvarlegri ákærunum sem
hann fékk var vegna smygls á þrjú
hundruð og fimmtíu kílóum af
hassi frá Danmörku til Noregs. Þá
var efnunum smyglað með húsbíl
og eldri hjón óku honum. Landa-
mæraverðir náðu efnunum og
voru níu einstaklingar ákærðir í
kjölfarið. Sjálfur þurfti Leif að dúsa
í gæsluvarðhaldi í þrettán mán-
uði þar til hann var dæmdur
í níu ára fangelsi. Síðan var
hann sýknaður af hæsta-
rétti Noregs.
Hinir átta fengu sam-
tals fimmtíu og sjö ára
fangelsisdóma vegna
glæpsins.
Hugsanlega til
Íslands
„Við erum fjöl-
skyldumenn,
eigum börn og
lifum venjulegu
lífi, en ég reyni
ekki að ljúga að
Íslendingum,
sumir Vítis-
englar hafa fengið dóma,“
segir Leif og talar ítrekað
um Vítisenglana sem stórt
bræðralag eða fjölskyldu.
Hann bendir jafnframt
á að Vítisenglar geri
menn ekki að glæpa-
mönnum. Það sjá
mennirnir sjálfir um.
Aðspurður hvort
von sé á norskum Vít-
isenglum til landsins
segir hann aldrei að
vita – vistin síðast
hafi að minnsta
kosti verið
notaleg.
„Við erum fjölskyldumenn, eigum börn
og lifum venjulegu lífi, en ég reyni ekki að
ljúga að Íslendingum, sumir Vítisenglar
hafa fengið dóma.“
Leif Ivar Kristiansen
Leiðtogi Vítisenglanna leif ivar
Kristiansen er leiðtogi norsku Vítisengl-
anna og leiðbeinir fáfni eftir grýttum
slóðanum til fullgildingar samtakanna.
mynd tOm E. ØStHuuS
föstudagur 4. júlí 200816 Helgarblað DV
Ísland smæsta útibú V
Greiningardeild ríkislögreglustjórans
óttast þau og nágrannaþjóðir okkar
vakta þau eins og haukar; Hells Ang-
els eru kölluð alþjóðleg glæpasam-
tök á Íslandi. Foringi Vítisenglanna
í Noregi, Leif Ivar Kristiansen, neitar
þeim ásökunum og segir þá vera fjöl-
skyldumenn. Vítisenglarnir skráðu
sig heldur betur á spjöld sögunnar
á Norðurlöndum í upphafi tíunda
áratugarins þegar þeir háðu blóð-
ugt gengjastríð við Banditos í Dan-
mörku. Stríðið snérist um fíkniefna-
markaðinn á Norðurlöndum. Ellefu
manns létust í átökunum, þar á með-
al foringi Banditos. Núna vilja félagar
í Fáfni MC gerast meðlimir. Þeir eru
enn „hangarounds“, en komist þeir
inn í samtökin verður Ísland minnsti
armur Vítisenglanna í veröldinni.
Ísrael og Vítisenglar
Ársins 1948 verður ekki aðeins
minnst fyrir þau merkilegu tíðindi
að Ísraelsríki var stofnað, heldur
voru hin goðsagnakenndu samtök
Vítisenglanna stofnuð sama ár. Það
var í Fontana í Kaliforníu sem vél-
hjólasamtökin Hells Angels voru
stofnuð upphaflega. Samkvæmt vef-
síðu samtakanna var það fyrrverandi
flugmaður þeirrar sveitar og vinur
eins stofnfélaganna sem stakk upp á
nafninu.
Verulegs misræmis hefur gætt í
frásögnum af upphafsárum sam-
takanna og að sögn Ralphs Barger,
stofnfélaga Oakland-deildarinn-
ar, voru einar fyrstu deildir sam-
takanna stofnaðar í San Franc-
isco, Gardena, Fontana og víðar
sem sjálfstæðar deildir og höfðu
meðlimir þeirra jafnvel enga
vitneskju um að aðrar deildir
væru til. Núna eru starfandi fleiri
en hundrað deildir Vítisengla, í
tuttugu og níu löndum, en árið
1961 var á Nýja-Sjálandi stofnuð
opinberlega fyrsta deildin utan
Bandaríkjanna. Fyrsta deildin í
Evrópu var stofnuð á Englandi árið
1969 í kjölfar þess að Bítlarnir buðu
nokkrum meðlima Vítisenglanna í
San Francisco til London.
Opin öllum nema þeldökk-
um
Að verða fullgildur meðlimur
Vítisenglanna er langt og tíma-
frekt ferli, en samtökin eru ekki öll-
um opin. Samkvæmt heimildum
dómsmálaráðuneytis Banda-
ríkjanna þarf sá sem æskir að-
ildar að vera hvítur eða af
rómönskum eða asískum
uppruna, vera tuttugu og
eins árs eða eldri og eiga
Harley Davidson-mót-
orhjól. Blökkumenn
eiga ekki möguleika
á að verða félag-
ar og samkvæmt
skjali sem not-
að var í dóms-
máli í Kanada
eru reglur þar
að lútandi
mjög strang-
ar. Í skjalinu
kemur fram
að Oshawa-
deildin hafi
leyft blökku-
manni að
verða stuðn-
ingsaðili,
en þegar
sú vitneskja barst yfirstjórn samtak-
anna til eyrna varð að reka hann á
brott, því aðild hans braut í bága við
alþjóðareglur samtakanna.
Fjölskyldusamtökin Vítisenglar
Samtökin hafa verið til á Norður-
löndum í talsverðan tíma en það var
ekki fyrr en 1992 sem þau voru stofn-
uð í Noregi. Foringi þeirra þar er Leif
Ivar Kristiansen. Hann hefur tekið
Fáfnismenn undir sinn verndarvæng
og aðstoðar þá við umsóknarferlið til
þess að verða hluti af englunum al-
ræmdu. Sjálfur sagði Leif í viðtali við
DV í gær að stjórnvöld þyrftu ekk-
ert að óttast; samtökin gengju út á
að keyra á Harley Davidson-hjólinu
sínu. „Íslensk stjórnvöld þurfa ekki
að óttast okkur,“ sagði hann.
Leif hefur engu að síður verið
handtek- inn fimm
sinn-
um. Eitt skiptið var hann handtekinn
og hnepptur í gæsluvarðhald fyrir til-
raun til þess að smygla 350 kílóum af
hassi frá Danmörku til Noregs. Hann
var fyrst dæmdur í níu ára fangelsi
fyrir glæpinn, síðar var hann sýknað-
ur af hæstarétti þar í landi.
Blóðugt stríð á Norðurlöndum
Vítisenglarnir urðu fyrst al-
ræmdir á Norðurlöndum eftir
að þeir háðu blóðugt stríð við
Banditos en bæði gengin
eru skilgreind sem glæpa-
samtök. Ástæðan fyrir
átökunum var barátta
um fíkniefnamarkað-
inn í Danmörku. Ellefu
manns fórust í stríð-
inu en meðal annars
áttu þeir í skotbar-
dögum á götum úti
fyrir utan Kastrup,
alþjóðaflugvöll
Danmerkur.
Stríðið náði
hámarki
þegar
liðs-
maður Banditos
skaut flugskeyti
inn í félagsheim-
ili englanna við
Nörrebro í Dan-
mörku. Mildi var
að enginn lést en
árásin var tákn um
alvarleika stríðs-
ins. Gengin voru vel
vopnuð og tilbúin
að skaða hvert annað
með öllum tiltækum
ráðum. Að lokum eiga
Vítisenglarnir að hafa
myrt leiðtoga Banditos og
þar með lauk stríðinu.
Útlagar undir eftirliti
Greiningardeild ríkislög-
reglustjórans lítur á
tengsl Fáfn-
is við
Valur grettissON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Vítisenglarnir urðu
fyrst alræmdir á Norð-
urlöndum eftir að þeir
háðu blóðugt stríð við
Banditos en bæði geng-
in eru skilgreind sem
glæpasamtök.“
Foringinn leif ívar Kristiansen
er grjótharður Vítisengill. Hann
segir stjórnvöld hér á landi hafa
ekkert að óttast.
17DV Helgarblað föstudagur 4. júlí 2008
Ítisenglanna
samtökin sem alvarlega og raun-
verulega ógn við öryggi Íslend-
inga. Samtök sem vígbúast eins
og þau séu að fara í raunverulegt
stríð eru óhugnanleg hætta að
hennar mati og þá sérstaklega í
ljósi þess að menn innan Fáfnis
hafa margítrekað gerst brotleg-
ir við lögin og má þar fyrstan
nefna Jón Trausta Lúthersson.
Það er ekki bara greiningar-
deildin sem óttast samtökin
því alríkislögregla Bandaríkj-
anna hefur öflugt eftirlit með
þeim sem og alríkislögreglan
í Kanada, Vítisenglarnir eru
fjölmennir þar í landi. Banda-
ríkjamenn hafa skilgreint Vít-
isenglana sem útlaga sem
hafa sagt sig úr lögum við sam-
félagið.
Á heimasíðu Hells Angels
má finna lista yfir lönd sem
Vítisenglarnir dvelja í. Þá er
sérstaklega minnst á í upp-
talningu landanna að Ísland
hefur sótt um aðild en einnig
Pólland. Ísland er langminnsta
landið sem tilheyrir Vítisenglunum
verði Fáfnismenn teknir inn sem
fullgildir meðlimir.
Táknmynd bræðralags og
tryggðar
Vítisenglar eru umdeild sam-
tök sveipuð mistri leyndardóms og
dulúðar, þökk sé mikilli leynd sem
meðlimirnir hafa tileinkað sér, jafn-
vel með einmitt þann ásetning í
huga. Meðlimir nota ekki fullt nafn
í samskiptum sínum við aðra félaga,
eingöngu skírnarnafn og jafnvel
bara viðurnefni. Saga samtakanna
er litrík og í henni er að finna mörg
tilfelli þar sem staðfest hafa verið
tengsl meðlima þeirra við glæpsam-
lega starfsemi. Vítisenglum er öðr-
um þræði lýst sem goðsögnum nú-
tímans og táknmynd bræðralags og
tryggðar liðinna tíma og hins vegar
sem ótýndum glæpamönnum og
plágu á samfélaginu. Að sama skapi
dregur almenningsálitið dám af
umfjöllun fjölmiðla og sveiflast frá
virðingu og hetjudýrkun til fullkom-
innar fyrirlitningar.
Vítisenglar félagar í Hells angels í
Þýskalandi fylgdust með réttarhöld-
um yfir meðlimi Banditos sem var
sakaður um að hafa myrt Vítisengil.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Fáfnismaður jón trausti
lúthersson er einn af forsprökk-
um fáfnis hér á landi og
verðandi Vítisengill.
Vítisenglum haldið frá afmælisVeislu
Foringi Hells Angels hissa á stjórnvöldum:
Kurteisir menn
Þegar DV ræddi við Leif Ivar
Kristiansen, foringja Hell‘s Ang-
els í Noregi, eftir að greiningar-
deild Ríkislögreglustjóra sagði
í skýrslu að samtökin væru al-
þjóðleg glæpasamtök sagði hann
íslensk stjórnvöld ekki hafa neitt
að óttast. „Íslensk stjórnvöld
þurfa ekki að óttast okkur. Ég er
mjög hissa á að íslensk stjórnvöld
skuli segja þetta,“ sagði Leif og
varaði enn fremur stjórnvöld hér
á landi við því að hræra upp í ótta
almennings gagnvart samtökun-
um. Hann sagði það grundvall-
arforsendu að sanna glæpi
á menn eða samtök áður en
farið væri að saka þau um að
vera alþjóðleg glæpasamtök.
Þá benti Leif á að það væri mis-
jafn sauður í mörgu fé, auðvit-
að hafi menn innan samtak-
anna gerst brotlegir við lög, en
það ætti ekki að kasta rýrð á
samtökin í heild sinni frekar
en menn dæmi heila þjóð
vegna verknaða einstakra
manna sem tilheyra
henni.
„Mér þykir reyndar
leitt að þeir skuli vera
hræddir við okkur, við erum kurt-
eisir menn og viljum bara ferðast
um á mótorhjólunum okkar,“
sagði Leif en hann er stofnandi
Hell‘s Angels í Noregi og for-
sprakki samtakanna þar í landi.
„Ef þeir vilja stríð getum við
mætt þeim af fullri hörku,“ segir
Leif um hörku stjórnvalda í garð
samtakanna hér á landi en benti
jafnframt á að það sé þó ekki vilji
norsku Vítisenglanna. Spurður
um Fáfnismenn segir
hann þá efnilega
stráka en þeir séu
ekki opinber-
lega orðnir Vít-
isenglar þótt
þeir eigi góða
möguleika á
því.
Leif Ivar Kristiansen Leiðtogi
Hell‘s angels í noregi segir
Íslendinga ekki hafa neitt að óttast.
Mynd: TOM E. ØSTHUUS
Skytturnar þrjár Páll magnússon, ólafur
Stephensen og Þorsteinn Pálsson voru
boðaðir af aðstoðarmönnum ráðherra til
fundar í Háskóla reykjavíkur á dögunum.
Fundarefni er trúnaðarmál að sögn
aðstoðarmanns menntamálaráðherra.
„Þetta voru bara svona almennar
samræður. Maður ræðir þetta við
fullt af fólki og það er ekki vaninn
að gefa upp hvað fer fram í slík-
um samtölum,“ segir Steingrím-
ur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra, spurður
um fund sem hann auk annarra
aðstoðarmanna ráðherra boðuðu
valda forsvarsmenn fjölmiðla á
í Háskóla Reykjavíkur á dögun-
um. Aðstoðarmennirnir boð-
uðu þá Þorstein Pálsson, ritstjóra
Fréttablaðsins, Ólaf Stephen-
sen, ritstjóra Morgunblaðsins,
og Pál Magnússon útvarpsstjóra
á sinn fund. Steingrímur og Ró-
bert Marshall, aðstoðarmaður
samgönguráðherra, voru í það
minnsta viðstaddir. Báðir eru þeir
þaulreyndir fjölmiðlamenn.
Fundarefni trúnaðarmál
„Það var ekkert sérstakt tilefni
eða neitt slíkt, þetta var rabbfund-
ur,“ segir Steingrímur aðspurður
hvað hafi verið rætt á þessum dul-
arfulla fundi. Hann neitar því að
þarna hafi átt sér stað leynifundur
milli valinna fjölmiðla og aðstand-
enda ríkisstjórnarinnar. Samt sem
áður segir hann það vera trúnað-
armál hvað rætt hafi verið. „Það
er yfirleitt þannig þegar menn
ræða saman, en það þýðir ekki að
þarna hafi
verið
um leynifund að ræða,“ bætir
Steingrímur við.
Fjölmiðlar fengu
ekki tilmæli
Aðspurður hvort einhverjum
tilmælum hafi verið beint til for-
svarsmanna fjölmiðlanna segir
Steingrímur það síður en svo hafa
verið. „Á svona tímum er mikil-
vægt að menn ræði saman og að
boðskiptaleiðir séu greiðar. Sam-
félagið lék á reiðiskjálfi á þessum
tímapunkti. Þá er ekki óeðlilegt
að menn tali saman og heyri sjón-
armið hver annars.“
Skraffundur í HR
Páll Magnússon útvarpsstjóri
gat litlar upplýsingar gefið um
fundarefni samræðnanna. „Eins
og ég skildi þetta var þetta skraf-
fundur um andrúmið í samfélag-
inu. Skraf og ráðagerðir,“ sagði
Páll þegar DV hafði samband við
hann. Hann sagðist telja að fund-
urinn hafi verið liður í að heyra
álit manna úr hinum ýmsu geir-
um. Hann viðurkenndi þó að til-
efni fundarins hafi verið honum
hálfpartinn á huldu.
Kom ekkert fjölmiðlum við
Ólafur Stephensen, ritstjóri
Morgunblaðsins, segir að fund-
urinn hafi ekki haft neitt með fjöl-
miðlana sem slíka að gera. Það
orkar samt sem áður tvímælis í
ljósi þess að rit- stjórarnir
tveir auk út-
varps-
stjóra
voru
boð-
að-
ir af
hin-
um reyndu fjölmiðlamönnum,
Róberti og Steingrími. „Þetta var
í raun ekkert sem viðkom fjöl-
miðlum. Bara verið að veita okk-
ur upplýsingar um hvað væri búið
að vera í gangi í þjóðfélaginu,“
segir Ólafur Stephensen spurð-
ur um fundarefnið. Hann seg-
ir að engum tilmælum hafi verið
beint til fjölmiðlanna né heldur
að hann hafi skilið fundinn sem
einhvern leynifund. DV náði ekki
í Róbert Marshall vegna málsins í
von um að gera eina lokatilraun
til að fá það á hreint hvert tilefni
fundarins var, hvað var rætt efnis-
lega á honum og af hverju fulltrú-
ar valinna fjölmiðla voru boðað-
ir á fundinn sem slík leynd hvílir
yfir. Svo mikil í raun, að fæstir við-
mælendur DV virtust í raun vissir
um hvað hann snerist.
mikael@dv.is
SIgURðUR MIKaEL jónSSOn
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Fundað með völdum fjölmiðlum
róbert marshall, aðstoðarmaður
samgönguráðherra, var meðal
viðstaddra á fundinum í Hr auk
annarra aðstoðarmanna. Forsvars-
menn fengu upplýsingar um stöðu
mála í efnahagsóvissunni.
Ekkert að segja Hog rider-
arnir höfðu takmarkaðan áhuga
á myndatöku og vildu ekki ræða
við blaðamann dV.