Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 24
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 200824 Ættfræði
75 ára í dag
30 ára
n Tesha Eggertsgötu 30, Reykjavík
n Adam Tomczyk Löngufit 8, Garðabær
n Ólafur Már Sigurðsson Traðarbergi 3, Hafnar-
fjörður
n Sigtryggur Klemensson Álftamýri 34, Reykjavík
n Árni Elliot Swinford Laugavegi 40, Reykjavík
n Arnór Steinar Oddsson Smáraflöt 20, Akranes
n Baldvin Stefánsson Vatnsholti 2, Reykjavík
n Eygló Pétursdóttir Heiðarholti 36e, Reykjanesbær
n Kristinn Gunnarsson Víkurbraut 5, Grindavík
n Dagbjartur Ingi Jóhannsson Þúfubarði 19,
Hafnarfjörður
40 ára
n Heiðrún Edda Guðsteinsdóttir Hólatúni 1,
Sauðárkrókur
n Sigríður Stefánsdóttir Hólabraut 23, Skagaströnd
n Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir Hvoli 1, Selfoss
n Magnús Gautur Gíslason Brautarholti 4, Ísafjörður
n Guðrún Þórlaug Grétarsdóttir Hraunsvegi 19,
Njarðvík
n Sveinn Björnsson Aðalstræti 17, Akureyri
n Hlynur Rúnarsson Hörgatúni 13, Garðabær
n Linda Erlendsdóttir Skipasundi 28, Reykjavík
n Björn Þór Björnsson Viðarási 12, Reykjavík
n Margrét Sigurðardóttir Rauðalæk 10, Reykjavík
50 ára
n Birgir Straumfjörð Jóhannsson Garðhúsum 26,
Reykjavík
n Kristján Trausti Unnsteinsson Hraunbæ 107,
Reykjavík
n Vilhjálmur H Waltersson Reykjavegi 59,
Mosfellsbær
n Þorleifur Sigurður Ásgeirsson Fífumóa 3d,
Njarðvík
n Ómar Jóhannesson Álfkonuhvarfi 67, Kópavogur
n Kristinn Ómar Herbertsson Silfurtúni 7, Garður
n Kristín Anna Þorsteinsdóttir Dísarási 6, Reykjavík
n Sigrún Magnúsdóttir Arnarási 16, Garðabær
n Heiðrún Ásgeirsdóttir Miðkoti 1, Dalvík
n Helga Ottósdóttir Raftahlíð 8, Sauðárkrókur
n Barði Kristjánsson Stekkjarholti 6, Akranes
60 ára
n Rögnvaldur Gunnarsson Heiðargerði 57,
Reykjavík
n Helga Soffía Gísladóttir Svölutjörn 4, Njarðvík
n Leokadia Piela Hafnargötu 2, Bakkafjörður
n Örn Pálsson Strandvegi 13, Garðabær
n Ágúst A Ragnarsson Víkurströnd 5, Seltjarnarnes
n Jón Sigurðsson Jaðarsbraut 25, Akranes
n Margrét Pálsdóttir Lundi 1, Kópavogur
n Kristín Ólafsdóttir Naustabryggju 15, Reykjavík
70 ára
n Jóhann Tryggvason Espilundi 6, Garðabær
n Ragnhildur Hallgrímsdóttir Kársnesbraut 27,
Kópavogur
n Sigurbjörg Kristjánsdóttir Einigrund 20, Akranes
n Páll Hjartarson Sóleyjarima 9, Reykjavík
n Þórdís Jónsdóttir Stigahlíð 60, Reykjavík
n Elín Kristín Halldórsdóttir Unufelli 27, Reykjavík
75 ára
n Inga Magnúsdóttir Eyrarflöt 4, Akranes
n Pálmi Kristinn Jóhannsson Geitlandi 33,
Reykjavík
n Kristján Sveinsson Brúnavegi 9, Reykjavík
n Garðar Guðjónsson Ásbraut 9, Kópavogur
80 ára
n Gunnar Árnason Gullsmára 9, Kópavogur
85 ára
n Guðrún Eiríksdóttir Skarðshlíð 10b, Akureyri
95 ára
n Guðrún Valborg Finnbogadóttir Njálsgötu 27,
Reykjavík
n Ólafur H Kristjánsson Hrauntungu 77, Kópavogur
IngImar ErlEndur SIgurðSSon
Skáld og rIThöFUndUr
Ingimar Erlendur fæddist á Akur-
eyri en flutti með fjölskyldunni til
Reykjavíkur er hann var fimm ára.
Hann var í Miðbæjarskólanum,
Austurbæjarskólanum, lauk lands-
prófi frá Ingimarsskóla og prófum
frá Kennaraskóla Íslands 1957.
Ingimar Erlendur var blaðamað-
ur við Morgunblaðið 1959-62, var
ritstjóri og ábyrgðarmaður Frjálsrar
þjóðar 1962-63 en hefur helgað sig
ritstörfum síðan.
Rit Ingimars: Sunnanhólmar, ljóð
1959; Hveitibrauðsdagar, smásögur,
1961; Borgarlíf, skáldsaga, 1965; Ís-
landsvísa, skáldsaga, 1967; Ort á öxi,
ljóð, 1973, 2. útg. 1978; Undirheim-
ur, skáldsaga, 1974; Fiskar á fjalli,
ljóð, 1974; Islandsvisa, norsk útgáfa,
1975; Grasið hefur grænar hendur,
ljóð, 1975; Veruleiki draumsins, ljóð,
1976; Göngustafur vindsins, sögur,
1977; Fjall í þúfu, ljóð, 1978; Núvist,
ljóð, 1980; Helgimyndir í nálarauga,
ljóð, 1982; Ljóð á Lúthersári, 1983;
Ljósahöld og myrkravöld, ljóð, 1985;
Hvítamyrkur, ljóð, 1993, 2. útg. 1997;
Hvítvoðungar, ljóð, 1997, 2. prentun
1998; Hvítblinda, ljóð, 2000; Hvíta-
logn, ljóð, 2001; Hvítuvötn, ljóð,
2002; Hvítelfur I., ljóð, 2003; Hvít-
elfur II., ljóð, 2003, Hvítakista, ljóð,
2008.
Fjölskylda
Fyrri kona Ingimars var Ragnheiður
Jónsdóttir, f. 20.11. 1935, kennari í
Reykjavík. Hún er dóttir Jóns Eiríks-
sonar, bónda á Svertingsstöðum í
Húnavatnssýslu, og k.h., Hólmfríðar
Björnsdóttur húsfreyju.
Börn Ingimars og Ragnheiðar eru
Huld Ingimarsdóttir, f. 7.4. 1956, yf-
irmaður fjármálasviðs alþjóða Rauð
krossins í Afríku, búsett í Simbabve
og á hún einn son; Friðbjörg Ingi-
marsdóttir, f. 8.8. 1959, félagsfræð-
ingur hjá Reykjavíkurakademíunni
en maður hennar er Gunnar Her-
sveinn heimspekingur og rithöf-
undur; Helga Ingimarsdóttir, f. 23.2.
1962, húsmóðir í Reykjavík en mað-
ur hennar Ævar Einarsson fram-
kvæmdastjóri; Þóra Ingimarsdóttir,
f. 11.11. 1963, búsett í Reykjavík.
Seinni kona Ingimars var Mar-
grét S. Blöndal, f. 7.12. 1939, d. 9.4.
2006, geðhjúkrunarfræðingur. Hún
var dóttir Sölva Blöndal hagfræð-
ings og Elsu Maríu Blöndal, f. Hed-
berg húsmóður.
Börn Ingimars og Margrétar
eru Sigríður Freyja Ingimarsdótt-
ir, f. 18.8. 1970, píanókennari, bú-
sett í Hafnarfirði en maður hennar
er Ragnar Tómas Árnason lögfræð-
ingur; Sigurður Vífill Ingimarsson,
f. 8.4. 1977, verslunarstjóri hjá Hag-
kaup í Smáralind en kona hans er
Linda Hölludóttir húsmóðir.
Systkini Ingimars: Birgir Sig-
urðsson, f. 28.8. 1937, rithöfund-
ur í Reykjavík; Sigríður Freyja, f.
23.7. 1931, d. 15.6. 1970, var búsett
í Reykjavík.
Foreldrar Ingimars voru Sigurður
Ingimar Helgason, 1.3. 1906, d. 2.1.
1940, myndlistarmaður í Reykjavík,
og k.h., Friðbjörg Jónsdóttir, f. 25.8.
1900, d. 19.9. 1995, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Helga, sjómanns
í Reykjavík, bróður Jóns, föður Þór-
arins tónskálds. Helgi var sonur Jak-
obs, söðlasmiðs í Berjanesi undir
Eyjafjöllum Sigurðssonar, hálfbróð-
ur, samfeðra, Sigríðar, ömmu Jóns
Aðalsteins Jónssonar, fyrrv. for-
stöðumanns Orðabókar Háskóla
Íslands. Móðir Helga sjómanns var
Þórunn Þorvaldsdóttir í Skóbót í
Garðahreppi.
Móðir Sigurðar listmálara var
Helga Hannesdóttir, b. á Heina-
bergi á Skarðsströnd Jónssonar,
b. á Hofakri Jónssonar, b. á Hóli í
Hvammssveit Ólafssonar. Móð-
ir Jóns á Hofakri var Margrét, dótt-
ir Björns, b. á Hóli Magnússonar,
og Ingibjargar Bjarnadóttur. Móð-
ir Hannesar var Ingibjörg Hannes-
dóttir, b. á Hnjúki Andréssonar, b.
á Krossi Hannessonar, b. á Ham-
arlandi Björnssonar. Móðir Ingi-
bjargar var Guðrún Gísladóttir, b.
á Grunnasundsnesi í Eyrarsveit
Magnússonar, b. þar Þorsteinssonar,
Magnússonar. Móðir Guðrúnar var
Snjólaug, dóttir Jóns, b. í Arney Þor-
valdssonar, og Þuríðar Jónsdóttur,
b. í Ólafsey Teitssonar. Móðir Helgu
Hannesdóttur var Helga Bjarna-
dóttir, b. á Skerðingsstöðum, bróður
Þórðar, langafa Friðjóns Þórðarson-
ar, fyrrv. ráðherra, og Gests, föður
Svavars sendiherra, föður Svandís-
ar borgarfulltrúa. Bjarni var sonur
Jóns, b. á Breiðabólstað í Hvamms-
sveit Jónssonar, b. þar Ásgeirssonar,
b. á Orrahólum Björnssonar, Jóns-
sonar eldri í Vogi Brynjólfssonar.
Móðir Jóns yngri var Halldóra Jóns-
dóttir, b. í Skógum Jónssonar. Móð-
ir Helgu Bjarnadóttur var Ingveld-
ur Brynjólfsdóttir, b. á Hóli, bróður
Hannesar á Hnjúki. Móðir Ingveld-
ar var Anna, systir Jóns Jónssonar á
Breiðabólsstað.
Friðbjörg var dóttir Jóns Alex-
anders, b. í Sörlatungu í Hörgárdal
Guðmundssonar, b. á Stóra-Grindli
í Fljótum Hafliðasonar. Móðir Jóns
Alexanders var Sigríður Ásmunds-
dóttir.
Móðir Friðbjargar var Jónasína,
systir Magnúsar, afa Páls Skúlasonar,
heimspekings og fyrrv. háskólarekt-
ors. Magnús var einnig afi Þórhalls
Höskuldssonar, prests á Akureyri,
föður Höskulds alþm.. Annar bróð-
ir Jónasínu var Gísli, afi Friðfinns
Gíslasonar leikara. Jónasína var
dóttir Friðfinns, b. í Hátúni í Hörg-
árdal Gíslasonar, bróður Lilju, lang-
ömmu Ragnars Aðalsteinssonar hrl.
Til
hamingju
með
afmælið!
Stefán fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í Hvassaleitis-
skóla, lauk stúdentsprófi af tónlist-
arbraut MH, hóf nám við Tónlistat-
skólann í Reykjavík 1993 og lauk
einleikaraprófi á franskt horn 1998,
stundaði síðan framhaldsnám í
Tónlistarháskólanum í Ósló 1998-
2005 er hann lauk MA–prófi og ein-
leikaraprófi þaðan.
Tónlistin hefur verið Stefáni allt
frá því á unga aldri og tekið nánast
alla hans tíma utan námsins. Hann
lék með Skólahljómsveit Laug-
arnesskóla á æskuárunum og lék
síðan með Lúðrasveitinni Svani í
nokkur ár á unglingsárunum. Hann
hefur verið fastráðin við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands frá 2000, hefur
leikið reglulega með Hljómsveit
Íslensku óperunnar og Kammer-
sveit Reykjavíkur frá 2000 og kemur
oft fram með popphljómsveitinni
Hjaltalín á síðustu árum. Hann
hefur leikið inn á fjölda n allan af
hljómplötum, bæði klassískar og
dægurhljómplötur.
Stefán hefur tekið þátt í og unn-
ið til verðlauna í alþjóðlegum tón-
listarkeppnum á Ítalíu í Finnlandi
og í Noregi. Hann situr í verkefna-
valsnefnd Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og sat í starfsmannastjórn
sveitarinnar um skeið.
Fjölskylda
Unnusta Stefáns er Tinna Árna-
dóttir, f. 17.7. 1984, söngnemi.
Sonur Stefáns er Myrkvi Már
Stefánsson, f. 2.9. 2003.
Systir Stefáns er Anna Sigrún
Bernharðsdóttir, f. 13.5. 1985, nemi
í Reykjavík.
Foreldrar Stefáns eru Bernharð-
ur Wilkinson, f. 14.3. 1951, flautu-
leikari og hljómsveitarstjóri, bú-
settur í Færeyjum, og Ágústa María
Jónsdóttir, f. 20.11. 1954, fiðluleik-
ari við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Stefán J. Bernharðsson
hornlEIkarI í SInFóníUhljóMSvEIT íSlandS
„Það verður lítið um veisluhöld. Ég
ætla að skella mér til Reykjavíkur,“
segir Sigríður Stefánsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur á Skagaströnd. Sigríður
fagnar fertugasta aldursári í dag. „Ég
ætla að hitta fjölskylduna og fara út
að borða,“ segir Sigríður sem ætlar að
gera vel við sig og gista á hóteli með-
an hún dvelur í höfuðborginni.
Meðal þess sem Sigríður ætlar að
gera í tilefni af afmælinu er að skella
sér í leikhús. „Ég ætla að sjá Fólkið í
blokkinni,“ en það er sýnt í Borgar-
leikhúsinu og er í leikstjórn Unn-
ar Aspar Stefánsdóttur. „Ég er mikið
fyrir leikhús en það er komið svolítið
langt síðan að ég fór síðast í bæinn.“
Sigríður fór þó nýlega að sjá leikrit í
heimabyggð en þar var sett upp verk-
ið Þórdís spákona.
Sigríður segist vera mikið afmæl-
isbarn og haldi daginn yfirleitt hátíð-
legan. Það var þó lítið um veislustand
þegar Sigríður var þrítug. „Þá var ég
bara kasólétt og var frekar róleg í tíð-
inni,“ segir Sigríður sem starfar sem
hjúkrunarfræðingur á heilsugæsl-
unni á Skagaströnd og hefur unn-
ið þar í nokkur ár. Hún er hins vegar
fædd og uppalinn í Ólafsvík á Snæ-
fellsnesi.
Sigríður ætlar líka að nota bæjar-
ferðina til þess að klára jólainnkaup-
in. „Maður reynir að versla eitthvað í
heimbyggð en úrvalið hérna er auð-
vitað mjög takmarkað. Maður fer líka
töluvert norður á Akureyri enda er
það talsvert styttra. En þetta verður
ekki bara eitt jólastress ég ætla að
hafa það gott líka.“
Aðspurð hvort Sigríður eigi sér
draumaafmælisgjöf segist hún léleg
í að gefa vísbendingar um slíkt. „Ég
hef alltaf verið léleg í að gefa svoleið-
is vísbendingar en mig langar í góða
myndavél í afmælisgjöf.“
asgeir@dv.is
30 ara í dag
Sigríður Stefánsdóttir er fertug í dag:
Heimsækir Höfuðborgina
Sigríður Stefánsdóttir ásamt eiginmanni sínum halldóri gunnari ólafssyni.