Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 23
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 2008 23Umræða Hver er konan? „Hlín Helga guðlaugsdóttir.“ Hvað drífur þig áfram? „Það eru hugsjónir.“ Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp í Borgarfirði“ Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? „Það er náttúrulega Fois gras sem er gæsalifrarpaté.“ Ertu farin að undirbúa jólin? „Já, ég er búin að gera laufabrauð og búa til jólakort.“ Hvernig gékk hönnunin á V- dagsbolunum í Nakta apanum? Var afraksturinn góður? „Þetta fór fram úr björtustu vonum og krakkarnir voru með rosalega mikla sköpunargleði en við völdum krakka sem hafa áhuga á hönnun og slíku.“ Hafið þið fengið einhver viðbrögð? „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og fólk afar hrifið af því að við skyldum ákveða að nota efnið sem við áttum svona í ljósi erfiðra tíma, Við ákváðum sem sagt að endurhanna og nýta hugvitið. Það er svo mikil orka sem býr í huga fólks og að nota það í þágu þessa málefnis er gott.“ Hvenær hefst sala á bolunum? „Þeir eru komnir í Nakta apann og verða þeir til sölu fram að jólum. Stykkið kostar 4.500 krónur og er enginn þeirra eins.“ Vekið þið athygli á átakinu með einhverjum öðrum hætti? „Nei, ekki við en þetta skiptist milli samtaka.“ Hvað er fram undan? „Við förum fljótlega upp úr jólum að huga að V-deginum sem við höldum yfirleitt snemma á árinu. Það er ekki ólíklegt að það verði í tengslum við Kongó en í ár erum við í samstarfi við Unicef. Þetta er enn óákveðið en undirbúningur fer bráðum af stað.“ Hver er draumurinn? „Ég á svo marga drauma en einn þeirra er að ofbeldi gegn konum linni.“ Hvað finnst þér um aðgerðirnar fyrir utan ráðHerrabústaðinn á þriðjudag? „Eigum við ekki að segja bara að ég myndi ekki mótmæla svona.“ HögNi JóNssoN 37 ára píparI „Mér fannst þetta flott hjá þeim, ég hefði gert það sama.“ ElVar örN EyþórssoN 18 ára STarFSMaðUr SHEll „afskaplega heimskulegar, ég myndi kjósa að kalla þetta fólk sem hefur ekkert betra að gera í lífinu sem kemur svona fram. Þetta er ekki leiðin til að mótmæla.“ sVaNur sæVar lárussoN 36 ára HúSVörðUr „Það er allt í lagi á meðan menn beita ekki ofbeldi. Fara að mölva upp og henda skyrdósum eða eggjum og einhverju þá er það gengið of langt. En friðsöm mótmæli eru bara af hinu góða.“ FiNNur óskarssoN 64 ára STarFSMaðUr á plaNI Dómstóll götunnar HlíN HElga guðlaugsdóttir vöruhönnuður er í stjórn V- dagssamtakanna en um þessar mundir standa samtökin fyrir átaki gegn kynbundnu ofbeldi. í fyrradag söfnuðust saman á þriðja tug framhaldsskólanema til að endur- hanna V-dagsboli sem seldir verða í Nakta apanum fram að jólum en ágóðinn rennur til neyðarmóttöku vegna nauðgana á landspítalanum. Búin að Búa til laufaBrauð „Ég styð þær. Það er full ástæða til að sýna eitthvað annað heldur en bara þessi mótmæli í orði. Og þetta mun sennilega fara vaxandi.“ FriðJóN árNasoN 52 ára VErKEFNaSTJórI HJá VINNUEFTIrlITI ríKISINS Forysta Samfylkingarinnar virð- ist hafa sagt fjölmiðlum, Alþingi og jafnvel þorra almennings stríð á hendur um túlkun á þeim veruleika sem þjóðin stendur frammi fyrir eft- ir bankahrunið. Tökum nokkur dæmi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, sat und- ir gagnrýni þess hluta þjóðarinn- ar sem komst fyrir í Háskólabíói og anddyri þess 24. nóvember síðast- liðinn. Hún setti ofan í við fund- argesti er þeir notuðu um sig orð- ið „þjóð“. Enginn gæti talað í nafni þjóðarinnar. Sérhver maður gæti aðeins talað fyrir sjálfan sig. Þessi ummæli hennar voru ef til vill ekki röng en óheppileg og gáfu tilefni til hártogana. glæpur að vita ekki Björgvin G. Sigurðsson bankamála- ráðherra svarar spurningum stjórn- arandstöðunnar á Alþingi, nú síðast í gær, meðal annars um samskipti sín við bresk stjórnvöld og Fjármála- eftirlitið, viðvaranir þar til bærra manna og stofnana við aðsteðjandi vanda bankakerfisins. Björgvin keppist við að segja þingheimi, fjölmiðlum og kjósend- um að allt sé í slétt og fellt. Eng- inn misskilningur, allir vinni verk sín vel, enginn hafi getað sér fyrir ósköpin sem yfir dundu. Björgvin vill rannsaka allt og velta við hverj- um steini , en segir það eins og hann sé ekki meðal grunaðra heldur í liði hinna saklausu. Nei, hann bankamálaráðherr- ann hafi ekkert vitað og ekkert fylgst með fyrstu þrjá daga banka- hrunsins. En, jú, hann og Samfylk- ingin beri ábyrgð á Davíð Oddssyni í Seðlabankanum. Björgvin vill ekkert af því vita, að einmitt þetta, að bankamálaráð- herra þjóðar veit ekkert og er ekki hafður með í ráðum þegar banka- kerfi hrynur, er í sjálfu sér rík ástæða til þess að segja af sér embætti. Fara út í fússi og sýna heilindi og gott for- dæmi fyrir framtíðarstjórnmál hins nýja Íslands. Fóstran og óvitarnir Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í gær, að meginástæðan fyrir því hvernig komið væri lægi hjá bönkunum sjálfum. „Það voru þeir sem keyrðu okkur út af vegin- um,“ sagði Ágúst Ólafur og bætti við, að þó svo að menn yrðu að lúta reglum væri lögreglan ekki ábyrg á hraðakstri. Vera má að Ágúst Ólafur sé orðinn þreyttur á stöðugri gagnrýni almenn- ings á mótmælafundum, í fjölmiðlum og á Alþingi. En hann má ekki verða afund- inn af þeim sökum og koma sök á aðra eins og börn gera oft. Árni Þór Sigurðsson, VG, benti Ágústi Ólafi á það á Alþingi í gær að líta á lög um ráðherraábyrgð sem hvíla á 14. grein stjórnarskrárinn- ar. Í tíundu grein laga um ráðherra- ábyrgð frá 1963 segir að ráðherra sé sekur ef „hann framkvæmir nokkuð eða veldur því að framkvæmt sé nokk- uð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáan- lega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þessi sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur far- ast fyrir að fram- kvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir“. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hélt um Samfylkingarstjórnvölinn innan ríkisstjórnarinnar þegar lögð voru drög að þjóðnýtingu Glitnis án vitundar Björgvins í lok septemb- er. Ingibjörg Sólrún var fjarverandi á erlendri grundu vegna veikinda. Fengu ráðherrar Samfylkingarinnar ekkert að vita dagana fyrir 29. sept- ember? Ekki heldur Össur? Nú hefur Össur upplýst að hann hafi leynilega fært til bókar innan ríkisstjórnarinnar að Davíð Odds- son starfaði ekki á hans ábyrgð í Seðlabanka Íslands. Björgvin segir opinberlega að Samfylkingin beri ábyrgð á veru Davíðs í bankanum. Væri ekki ágætt að þeir vopna- bræður Össur og Björgvin kæmu sér saman um hvað rétt er og satt í þessu efni? kemur bráðum betri tíð? Loks er það þáttur Lúðvíks Berg- vinssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar. Efnislega notaði hann tíma sinn gegn Atla Gíslasyni, VG, í Kastljósi í fyrrakvöld til þess að réttlæta verklag ríkisstjórnarinnar. Þótt kannski væri einhver vanhæf- ur, KPMG kannski að rannsaka sjálft sig, ynnu samt allir dag og nótt við að koma íslenska hagkerfinu á rétt- an kjöl. Eitthvað er gamalkunnugt við alla þessa nálgun Samfylkingarinn- ar. Eins og draugagangur úr fortíð- inni. Hvenær ætlar Samfylkingin að kasta fyrir björg því seigfljótandi valdakerfi sem hún gagnrýndi svo ákaft í stjórnarandstöðu? Tvö andlit Samfylkingarinnar kjallari svona er íslanD 1 Jessica Biel strippar-myndir Ein kynþokkafyllsta leikkona heims leikur fatafellu í nýjustu kvikmyndinni sem hún leikur í og fækkar þar fötum í meiri mæli en hún hefur áður gert. 2 oprah er 100 kíló Sjónvarpsþáttastjarnan er búin að tapa stríðinu við aukakílóin – allavega í bili. 3 Flóðgáttir spillingar lögfrótt fólk sem dV ræddi við óttast að flóðgáttir spillingar opnist ef það fær staðist að skilanefndir geti staðið í vegi fyrir því að skattrannsóknastjóri fái gögn um starfsemi íslenskra félaga í lúxemborg. 4 ríkisforstjórar á ofurlaunum Friðrik Sophusson, forstjóri landsvirkjun- ar, er á nær tvöfalt hærri launum en forsætisráðherra. 5 Handtekinn fyrir að stela eigin bíl lögreglumenn í detroit í Bandaríkjunum stöðvuðu mann á sjötugsaldri fyrir að keyra um á stolnum bíl. Hann kannaðist ekkert við glæpinn enda á eigin bíl. 6 sérstaklega hættuleg árás piltarnir þrír sem réðust á jafnaldra sinn í Njarðvík verða líklega ákærðir fyrir sérstaklega hættulega árás. Þyngsta mögulega refsing er sextán ár. 7 lárus svarar ekki Ekki hefur náðst í lárus Finnbogason, formann skilanefndar landsbankans. leitað hefur verið til skilanefndar um að bæta Styrktarsjóði hjartveikra barna 28 milljóna króna tap vegna bankahruns. mest lesið á dV.is JóHaNN HaukssoN útvarpsmaður skrifar Nei, hann banka- málaráðherrann hafi ekkert vitað og ekk- ert fylgst með fyrstu þrjá daga banka- hrunsins. maður Dagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.