Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.03.1912, Blaðsíða 18
180
Athugasemdir við skýrslur þessar.
Árin 1904—06 voru 73 sakamál dæmd í hjeraði, eða 24 að meðallali á ári;
af þeim voru 12 eða rjettur helmingur fyrir þjófnað. Árin 1907—1909 voru málin
alls 82, eða 27 að meðaltali. Þar af 16 eða 60°/o fyrir þjófnað.
Frá því farið var að semja skýrslur þessar hjer, hefur þjófnaður og aðrir
hagnaðarglæpir, svo sem svik og fals, verið langtíðastir allra glæpa á Islandi, en
aðrir glæpir haía verið mjög fátiðir; þó má telja víst, að brennuglæpir hafi farið í
vöxt hin síðari árin, þó þeir hafi ekki komist upp, en hjer eru, eins og skýrslurnar
bera með sjer, að eins talin þau sakamál, er dómur fellur í, en eigi þau mál, sem
að eins eru ransökuð, en eigi leiða lil málshöfðunar.
Af hinum dæmdu voru 8 kvenmenn árin 1904—06, eða tæpir 3 að meðal-
tali, en árin 1907—09 voru þeir 9 eða rjettir 3 að meðaltali.
Með lögum nr. 39, 16. nóvember 1907 voru í lög leiddir svonefndir skil-
orðsbundnir hegningardómar. Lögum þessum var farið að beita á árinu 1908, og
þó einkum 1909, en það segir sig sjálfl, að engin reynsla er enn fengin, hvernig
þau lög liafa gelist. Þess vegna er því sleppl i þetta sinn að draga nokkrar álykl-
anir út af þeim, en í næstu skýrslu ætti það að vera hægt.
D. M á 1 d æ m d í I a n d s y f i r d ó m i.
Árið 1907 voru 55 mál dæmd þar, þar af 37 einkamál, 15 sakainál og 3 almenn
lögreglumál.
Árið 1908 voru 49 mál dæmd, þar af 39 einkamál, S sakamál og 2 almenn lög-
reglumál.
Árið 1909 voru 54 mál dæmd. Þar af 43 einkamál, 9 sakamál og 2 ahnenn lög-
reglumál.