Fréttablaðið - 27.01.2016, Side 6
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Inniheldur xýlómetazólínhýdróklóríð. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi,
kinnholum og nefkoki. Otrivin Menthol 1,0 mg/ml er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði
í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Fyrir fyrstu
notkun á að ýta 4 sinnum á úðarann til að undirbúa dæluna. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað
er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni,
um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Frábendingar: Ofnæmi fyrir xýlómetazólíni eða einhverju innihaldsefnanna. Ekki
má nota Otrivin Menthol eftir heiladingulsnám, skurðaðgerðir um nef/munn, hjá sjúklingum með þrönghornsgláku eða nefslímubólgu með óeðlilega
þurri nefslímhúð eða með slímhúðarvisnun. Varnaðarorð og varúðarreglur: Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á
brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, hjarta og æðasjúkdóma, slagæðargúlp, erfiðleika við þvaglát, æxli
í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Má ekki nota handa börnum yngri en 12 ára og ekki lengur en í 10 sólarhringa. Sérstaklega skal gæta
þess að fara ekki yfir ráðlagðan skammt hjá börnum og öldruðum. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Otrivin-Andadu-5x10.indd 1 22/12/15 13:40
MENNTAMÁL Samtök foreldra grunn-
skólabarna í Reykjavík, SAMFOK, hafa
miklar áhyggjur vegna boðaðs niður-
skurðar hjá skóla- og frístundasviði á
þessu ári. Hagræðingarkrafan á árinu
hljóðar upp á 670 milljónir króna.
Ekki liggur fyrir hversu mikill niður-
skurður lendir á grunnskólunum.
„Við vitum að skólastjórar hafa bar-
ist í bökkum við að halda starfseminni
gangandi svo vel sé eftir niðurskurð
fyrri ára. Frekari niðurskurður mun
bitna enn meira á grunnþjónustunni.
Mestar áhyggjur höfum við af því að
stuðningur við börn með sérþarfir
verði ekki nægur,“ segir Bryndís Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri SAMFOKS.
Skólastjórar hafa áhyggjur af því
að fjármagn til reksturs grunnskóla
í Reykjavík sé alls ekki í takt við lög-
boðið hlutverk hans og skyldur. Þeir
segja að niðurskurður í kreppunni
hafi ekki verið bættur. Enn frekar hafi
verið skorið niður síðustu ár. Fjár-
magnið hafi ekki fylgt launaþróun.
Þorsteinn Sæberg, skólastjóri
Árbæjarskóla, telur þjónustustig í
sínum skóla orðið of lágt.
„Ég reyni að jafna út þeim gæðum
sem ég hef í starfinu til að láta hlut-
ina bitna sem minnst á nemendum.
En hópar nemenda í kennslu verða
stærri og einstaklingsbundin þjónusta
minni,“ segir Þorsteinn.
Skólastjórinn segir niðurskurðinn
líka ná til sérkennslu. „Ég vil meina að
sérkennsla í Reykjavík hafi á síðasta
ári verið skorin beint niður um 20
prósent. Með boðun um yfirfærslu
á halla og frekari niðurskurði spyr
maður sig á hvaða leið við erum.“
Frá 2008 hefur ekki fengist fjárveit-
ing til að endurnýja áhöld og tæki að
því er Þorsteinn greinir frá.
Grunnskólar hafa almennt ekki
fengið úthlutað fé til búnaðarkaupa í
mörg ár, fyrir utan tölvukost.
„Þetta hefur auðvitað áhrif á
aðstöðuna. Hún er víða töluvert bág-
borin,“ segir Guðlaug Erla Gunnars-
dóttir, skólastjóri Ingunnarskóla og
formaður Félags skólastjórnenda í
Reykjavík.
Guðlaug getur þess að margir
skólar hafi ekki náð utan um rekst-
urinn, eins og hún orðar það. „Þjón-
ustan hefur kallað á meiri fjármuni en
hefur verið úthlutað. Þetta er mikið
áhyggjuefni. Við náum ekki utan um
starfið eins og við viljum hafa það.
Það er til dæmis minni sveigjanleiki
til að hafa fámennari hópa í kennslu.“
Guðlaug segir unnið að nýju líkani
sem úthluta á eftir. „Okkur finnst að
það eigi að klára þá vinnu áður en
við tökum á okkur halla á milli ára.
Reksturinn er misþungur eftir skóla-
gerðum.“ ibs@frettabladid.is
Segja niðurskurð bitna á nemendum
Samtök foreldra og skólastjóra hafa verulegar áhyggjur vegna boðaðs niðurskurðar hjá skóla- og frístundasviði í Reykjavík á þessu ári.
Óttast mest að stuðningur við börn með sérþarfir verði ekki nægur. Skólastjórar segjast berjast í bökkum og segja ástandið bágborið.
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er skólastjóri Ingunnarskóla. FréttablaðIð/anton
EfNAhAgsMÁL Horfur eru á auknu
ójafnvægi í þjóðarbúskapnum næstu
misseri að því er fram kom á fundi
fjármálastöðugleikaráðs 22. janúar.
Vöxtur útlána í lánakerfinu er
innan hóflegra marka en líkur á
meiri eftirspurn eftir útlánum í
náinni framtíð.
Viðnámsþróttur bankanna er
töluverður en vel er sagt fylgst með
lausafjárstöðu þeirra, sérstaklega
vegna uppgjörs nauðasamninga
slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja
og útboðs í tengslum við losun og
bindingu aflandskróna.
Fjármálastöðugleikaráð hefur
beint því til Fjármálaeftirlitsins að
bregðast við þessum horfum með
viðeigandi hætti. Meðal annars með
því að settur verði aukinn eiginfjár-
auki á helstu bankastofnanir. – srs
Sjá teikn um að
ójafnvægi aukist
Fjármálastöðugleikaráð spáir auknum
útlánum. FréttablaðIð/PjEtur
Með boðun um
yfirfærslu á halla og
frekari niðurskurði spyr
maður sig á
hvaða leið við
erum,
Þorsteinn Sæberg,
skólastjóri
Árbæjarskóla
Kanslari á karnivali
Angela Merkel Þýskalandskanslari og Volker Wagner, forseti Karnivalsamtaka Þýskalands, fylgjast með karnivalhátíð í Berlín. FréttablaðIð/EPa
2 7 . j A N ú A r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U r6 f r é T T I r ∙ f r é T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
7
-D
7
0
8
1
8
4
7
-D
5
C
C
1
8
4
7
-D
4
9
0
1
8
4
7
-D
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K