Fréttablaðið - 27.01.2016, Blaðsíða 8
Oculis ehf., í hnotskurn
Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis ehf.
hefur þróað byltingarkennda tækni
við meðhöndlun augnsjúkdóma.
Tæknin, sem er varin einkaleyfi,
lýtur að því að nota augndropa í
stað augnástungu til að meðhöndla
sjúkdóma í afturhluta augans. Þá
leysir tæknin einnig tvö stærstu
vandamál hefðbundinna augn
dropa, en með tækninni má marg
falda leysanleika lyfja og ná fram
langverkandi áhrifum. Leit að fjár
magni til að ljúka klínískum rann
sóknum og til markaðssetningar er
hafin.
Guðrún M. Ásgrímsdóttir, rann
sóknarstjóri hjá Oculis, segir að
tæknin eigi rætur að rekja til lyfja
fræðideildar Háskóla Íslands, en
hugvitið er prófessoranna Þorsteins
Loftssonar og Einars Stefánssonar.
„Tæknin skapar verulega möguleika
til lyfjaþróunar, sérstaklega fyrir
sjúkdóma í afturhluta augans en
einnig fyrir ýmsa algenga og erfiða
sjúkdóma í framhluta augans,“ segir
Guðrún.
Fyrirtækið Oculis var stofnað
um þessa tækni árið 2003. Grunn
rannsóknir og dýratilraunir hafa
að stærstum hluta farið farið fram
í Reykjavík. Klínískar rannsóknir
[rannsóknir í mönnum] hafa að
mestu farið fram erlendis, m.a. í
Japan, Ísrael og Danmörku. Fyrir
það lyf sem lengst er komið í þróun
hjá Oculis, DexNP, hafa rannsóknir
sýnt fram á að bæta megi sjón og
minnka bjúg í sjónhimnu augans
með augndropunum einum saman.
„Þessar rannsóknir hafa verið
framkvæmdar á tveimur mismun
andi sjúkdómum sem í dag eru að
stærstum hluta meðhöndlaðir með
lyfjum sem sprautað er inn í augað
með sprautunál,“ segir Guðrún.
Megináhersla Oculis er að fá
DexNP samþykkt til meðferðar við
sjónhimnubjúg í sykursýki. Lyfið er
hins vegar líklegt til að þjóna sem
meðferð við öðrum sjúkdómum,
m.a. sem bólgueyðandi lyf eftir
augasteinsskipti, uveitis (sjaldgæfur
bólgusjúkdómur) og aldurstengdri
hrörnun í augnbotnum. Oculis
þróar jafnframt fleiri lyf til hliðar
við DexNP til meðferðar á öðrum
algengum augnsjúkdómum. Er
þar m.a. um að ræða lyf við gláku,
þurrum augum og augnsjúkdómi
í sykursýki (diabetic retinopathy).
Oculis tilkynnti um miðjan des
ember að í byrjun þessa árs hæfist
leit að fjármagni til að ljúka klín
ískum rannsóknum og til markaðs
setningar á DexNP augndropunum.
Áætlaðar tekjur af DexNP eru veru
legar verði lyfið markaðssett í Evrópu
og Bandaríkjunum. Tvö lyf eru í dag
ríkjandi á markaði fyrir sjónhimnu
sjúkdóma en samanlagðar tekjur
þeirra nema í dag um sex milljörðum
Bandaríkjadala á ári, þrátt fyrir að
einungis lítill hluti sjúklinga sé í dag
að fá meðferð.
„Mikil þörf er fyrir einfaldari með
ferðarúrræði við sjónhimnusjúk
dómum, en sem dæmi má nefna að
áætlað er að aðeins um tvær millj
ónir þeirra 25 milljóna manna sem
þjást af sykursýkistengdum sjón
himnubjúg fái lyf við hæfi, m.a. vegna
skorts á aðgengi að sérhæfðum augn
læknum með sprautuaðstöðu,“ segir
Guðrún.
Byltingarkennd meðferð augnsjúkdóma
Lyfjaþróunarfélagið Oculis ehf. hefur þróað augndropa sem koma í stað augnástungu við meðferð augnsjúkdóma. Hugvitið á rætur að
rekja til lyfjafræðideildar Háskóla Íslands. Leit að fjármagni til að ljúka klínískum rannsóknum og til markaðssetningar er hafin.
Að losna við að láta sprauta lyfi í augað á sér er eitthvað sem flestir myndu kjósa. mynd/oculis
l Oculis ehf. er fyrirtæki sem vinnur
að þróun augnlyfja.
l Fyrirtækið vinnur með nanóagnir
í augndropum sem auka frásog
lyfja inn í augað. Þannig má
bæta lyfjameðferð við ýmsum
algengum augnsjúkdómum.
l Hægt er að meðhöndla sjón
himnusjúkdóma með augn
dropum þannig að sjúklingar
þurfa ekki á augnástungum að
halda.
l Þrír reyndir einstaklingar úr
lyfjaiðnaði voru kosnir í stjórn
félagins í júní síðastliðnum, þeir
Dr. Joeseph Markoff, augnlæknir
og fyrrum yfirmaður augndeildar
Merck, Dr. K. George Mooney,
fyrrrum forstöðumaður þróunar
einingar Pfizer, og Dr. James D.
Pipkin, núverandi forstöðumaður
lyfjaþróunar hjá Ligand Pharma
ceuticals.
l Þá tók Páll Ragnar Jóhannesson,
fyrrum framkæmdastjóri fyrir
tækjaráðgjafar Straums, við sem
framkvæmdastjóri félagsins í maí
og Rene Ruckert, fyrrum yfirmaður
augndeildar hjá alþjóðlega lyfja
fyrirtækinu Bayer, tók við sem for
stöðumaður vöruþróunar í ágúst.
l Ásamt þessu var vísindaráð
félagsins sett formlega á stofn, en
í því situr hópur leiðandi vísinda
manna á sviði augnlækninga og
lyfjaþróunar.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Tæknin skapar
verulega möguleika
til lyfjaþróunar, sérstaklega
fyrir sjúkdóma í afturhluta
augans en einnig
fyrir ýmsa
algenga og
erfiða
sjúkdóma í
framhluta
augans
Guðrún Marta Ásgrímsdóttir,
rannsóknarstjóri hjá Oculis
Vinsamlegast skráið þátttöku á vef SA: www.sa.is
Fimmtudaginn 28. janúar á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-12.00
Menntadagur atvinnulífsins
8.30 Setning. Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður SA.
Þúsundir nýrra starfa. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Tækni og skólastarf. Kristín Pétursdóttir, forstjóri Mentor.
Tækifærin í skapandi greinum. Sigurlína Ingvarsdóttir, yfirframleiðandi Star Wars: Battlefront hjá DICE.
Æi ég Googla það bara! Er framtíð fræðslu í okkar höndum? Hlíf Böðvarsdóttir, fræðslu- og gæðastjóri Securitas.
Vinnumarkaður, færni og framtíðin. Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun.
Menntaverðlaun atvinnulífsins 2016. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra afhendir verðlaunin.
10.00 Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi.
10.30 Menntastofur samtaka í atvinnulífinu. SAF, SFS, SFF, SI og SVÞ ræða brýnustu menntamálin innan einstakra
atvinnugreina.
Fundarstjóri: Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Allir velkomnir – ekkert þátttökugjald.
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
7
-E
A
C
8
1
8
4
7
-E
9
8
C
1
8
4
7
-E
8
5
0
1
8
4
7
-E
7
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K