Fréttablaðið - 27.01.2016, Blaðsíða 27
Kynslóðin sem er að útskrifast úr
framhaldsskóla í dag þekkir ekki
daglegt líf án netsins en þangað
sækir hún að mestu afþreyingu
á borð við tónlist, kvikmyndir og
leiki, banka- og fjarskiptaþjón-
ustu, ýmis þjónusta og varningur
er keyptur þar eða skoðaður fyrir
kaup og samskipti milli þessa hóps
fara að miklu leyti fram gegnum
netið.
Einn fulltrúi þessarar kynslóð-
ar er hinn tæplega 22 ára gamli
Eyjamaður Sæþór Hallgrímsson,
sem útskrifaðist um síðustu jól
með hæstu einkunn af nýju stúd-
entsbrautinni á tölvubraut Tækni-
skólans.
Eftir að hann flutti frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur á
sínum tíma stóð valið milli þess að
klára félagsfræðina, þar sem hann
átti tvær annir eftir, eða byrja frá
grunni í nýju námi við tölvubraut.
Hann segist strax hafa fundið
að ákvörðunin hafi verið rétt og
að námið hentaði honum mjög vel.
„Ég kunni ýmislegt fyrir mér áður
en ég hóf námið þannig að fyrstu
annirnar voru ekkert svakalega
krefjandi. Ég hafði t.d. aðeins
fiktað í forritun með JavaScript
og skoðað dálítið HTML/CSS. Það
gaf mér forskot strax í byrjun.“
Fjölbreytt verkefni
Verkefnin sem Sæþór og fé-
lagar hans unnu í náminu voru af
ýmsum toga. „Stærri verkefnin
voru dálítið frjálslegri þar sem
verkefnalýsingin var þá yfirleitt
bara „búðu eitthvað til“. Stærstu
verkefnin sem ég gerði voru ann-
ars vegar pöntunarvefur fyrir bíó-
hús sem var þriggja manna hóp-
verkefni. Hins vegar var um að
ræða 1X2 tippkerfi fyrir fótbolta-
deildir. Seinna verkefnið er enn
óklárað en ég stefni á það að halda
áfram með það.“
Næst á dagskrá hjá Sæþóri er að
hefja nám í tölvunarfræði við Há-
skólann í Reykjavík næsta haust.
Hann er þó ekki búinn að gera upp
við sig í hverju hann muni sérhæfa
sig en segir það þó tengjast vefn-
um á einn eða annan hátt. „Í dag
finnst mér veföppin mest spenn-
andi auk þess að vinna með gögn
og gagnagrunna. En hvort það yrði
þá framendamegin, sem notandinn
sér, eða í þróun þjónustunnar sem
keyrir á bak við, það er ég ekki
enn viss um.“
Hraðar breytingar
Þótt Sæþór sé rúmlega tvítug-
ur gerir hann sér ágætlega grein
fyrir þeim mun sem er á lífi hans
og foreldra hans þegar þau voru
á sama aldri. „Auðvitað voru
öll samskipti persónulegri hér
áður fyrr. Á móti tók margt svo
miklu lengri tíma áður fyrr. Ég
er kannski 20 sekúndur að borga
reikning í appinu á meðan hér áður
fyrr þurfti fólk jafnvel að fara frá
vinnu til þess að fara í bankann og
bíða þar lengi í röð.“
En hvernig sér Sæþór fyrir sér
þróunina á vefnum næstu 5-10
árin? Hann nefnir til sögunnar
þróun á öppum yfir í veföpp en
þau eru mun hagnýtari. „Þá virk-
ar appið á öllum tækjum og ekki
þarf að skrifa sér app fyrir hvert
og eitt stýrikerfi. Þannig verður
mun hagkvæmara að láta þróa app
þar sem ekki þarf sér forritunar-
teymi fyrir hvert og eitt umhverfi
heldur myndi eitt teymi þróa vef-
app sem allir gætu notað.“
Veföppin munu sækja á í framtíðinni
Hinn 22 ára Eyjamaður Sæþór Hallgrímsson útskrifaðist um síðustu jól með hæstu einkunn af nýju stúdentsbrautinni á tölvubraut
Tækniskólans. Framtíðin er full af tækifærum fyrir ungt fólk á þessu sviði og hann spáir því að veföppin munu vaxa mikið á næstu árum.
„Ég kunni ýmislegt fyrir mér áður en ég hóf námið þannig að fyrstu annirnar voru ekkert svakalega krefjandi,“ segir Sæþór
Hallgrímsson. Mynd/Anton Brink
Margt tók svo miklu
lengri tíma áður fyrr. Ég
er kannski 20 sekúndur
að borga reikning í
appinu á meðan hér áður
fyrr þurfti fólk jafnvel að
fara frá vinnu til þess að
fara í bankann.
Sæþór Hallgrímsson
SKÝRSLURFLOTASTÝRING
NÝTING Á FLOTA
AFSLÁTTARKERFIYFIRLIT
SÖLUSKRIFSTOFUR
BÍLABÓKUNARKERFI SEM VIRKAR
ÞRÓAÐ Í SAMSTARFI VIÐ ÍSLENSKAR BÍLALEIGUR
www.smartmedia.is 588-4100 info@smartmedia.is
399.990*
án vsk
100.000 afsláttur til 10. febrúar
áður 499.990 (619.988 m/vsk)
*verð miðast við staðlaða bílabókunarsíðu
kynningarblað VeflAuSnir
27. janúar 2016 5
2
6
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
4
7
-C
D
2
8
1
8
4
7
-C
B
E
C
1
8
4
7
-C
A
B
0
1
8
4
7
-C
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K