Fréttablaðið - 27.01.2016, Blaðsíða 16
Skjóðan
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Umsjón Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir | Forsíðumynd anton Brink
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
miðvikudagur 27. janúar
ÞJóðsKrá Íslands - Hverjir eiga við-
skipti með íbúðarhúsnæði?
Fimmtudagur 28. janúar
nýHerJi - Uppgjör 4. ársfjórðungs og
ársins 2015.
ÞJóðsKrá Íslands - Fjöldi útgefinna
vegabréfa
Hagstofa Íslands - Vísitala neyslu-
verðs í janúar 2016
Hagstofa Íslands - Nýskráningar og
gjaldþrot hlutafélaga og einkahluta-
félaga í desember 2015
Hagstofa Íslands - Skráð fyrirtæki
og félög
Föstudagur 29. janúar
Hagstofa Íslands - Verðmæti sjávar-
afla, janúar–október 2015
Hagstofa Íslands - Útungun alifugla í
desember 2015
Hagstofa Íslands - Gistinætur og
gestakomur á hótelum í desember
2015
Hagstofa Íslands - Vísitala fram-
leiðsluverðs í desember 2015
Hagstofa Íslands -Vöruviðskipti við
útlönd, janúar–desember 2015, bráða-
birgðatölur
mánudagur 1. febrúar
ÞJóðsKrá Íslands - Íslyklar og inn-
skráningarþjónusta Ísland.is
Þriðjudagur 2. febrúar
Össur - Uppgjör 4. ársfjórðungs og
ársins 2015.
dagatal viðskiptalífsinsÁ döfinni
allar markaðsupplýsingar
Vikan sem leið
27,4
milljarðar seldir í Bakkavör
Arion banki og lífeyrissjóðir seldu félagi í
eigu bræðranna Ágústs Guðmundssonar
og Lýðs Guðmundssonar og bandarískra
fjárfestingasjóða 46 prósent hlut BG12 í
Bakkavor Group Ltd. Kaupverðið var 27,4
milljarðar íslenskra króna. Sameinaði
lífeyrissjóðurinn og dótturfélag Klakka
seldu jafnframt 5% hlut.
landsBanKinn seldi hluta-
bréf sín í Borgun án þess að láta
markaðinn vita að þau væru til
sölu. Kaupendurnir voru hand-
valdir úr hópi annarra eigenda og
stjórnenda Borgunar. Verðið var
óeðlilega lágt, eins og arðgreiðsla
til eigenda örfáum vikum eftir
söluna leiddi í ljós.
nÚ er komið á daginn að nýir
eigendur Borgunar hagnast um
marga milljarða vegna hagn-
aðarhlutdeildar Borgunar í sölu
Visa í Evrópu til Visa í Ameríku.
Stjórnendur Landsbankans, ríkis-
bankans, voru að ráðstafa eignum
skattgreiðenda þegar þeir afhentu
hlut bankans í Borgun fyrir tákn-
rænt gjald, sem endurspeglaði
hvergi nærri sannvirði hlutarins.
Visa í Evrópu hafði í tíu ár haft
sölurétt gagnvart Visa í Banda-
ríkjunum og viðræður um
fullnustu hans hafa staðið í þrjú
ár. Það er því ekki hægt að halda
því fram að mönnum hafi ekki
verið kunnugt um söluna á Visa
í Evrópu, sem nú færir nýjum
eigendum Borgunar marga
milljarða. Visa í Bandaríkjunum
hefur ítrekað gefið út tilkynn-
ingar um áhrif kaupskyldunnar
gagnvart Visa í Evrópu á afkomu
fyrirtækisins. Þetta eru og hafa
verið opinberar upplýsingar.
stJórnendur Landsbankans
vissu af yfirvofandi sölu á Visa í
Evrópu og settu sérstök ákvæði
inn í sölu á hlut Landsbankans
í Valitor til Arion banka, sem
tryggðu Landsbankanum hagnað
af væntanlegum viðskiptum milli
Visa í Evrópu og Bandaríkjunum.
Fullyrðingar um að hlutdeild
Borgunar í hagnaði af þeim við-
skiptum hafi fyrst og fremst orðið
til á þeim mánuðum sem liðnir
eru frá sölu hlutabréfa bankans
eru fráleitar og til merkis um
annaðhvort örvæntingu stjórn-
enda Landsbankans eða ósvífni,
nema hvort tveggja sé.
noKKrir stjórnendur gömlu
bankanna sitja í fangelsi. Þeir
hafa m.a. verið dæmdir fyrir um-
boðssvik, þ.e. þeir eru taldir hafa
farið út fyrir umboð sitt og ráð-
stafað eignum bankanna á þann
veg að hluthafar urðu fyrir tjóni.
eKKi Verður annað séð en að
bankastjóri og framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs Landsbankans
hafi beinlínis skaðað eigendur
bankans, íslenska skattgreið-
endur, með sölunni á hlutunum
í Borgun án útboðs. Með hlið-
sjón af sölunni í Valitor til Arion
banka blasir við að vart er um
vanrækslu að ræða heldur beinan
ásetning. Samkvæmt dóma-
framkvæmd Hæstaréttar hlýtur
formaður bankaráðs Landsbank-
ans að bera beina refsiábyrgð í
málinu ásamt bankastjóranum
og framkvæmdastjóra fyrir-
tækjasviðs, jafnvel þótt hann hafi
mögulega ekki átt beina aðkomu
að málinu.
Hugsanlega gerðu kaupendur
Borgunar viðskipti ársins á sama
tíma og Landsbankamenn fá
skammarverðlaun sem verstu
viðskiptamenn ársins en spyrja
má hvort einhver munur sé á
umboðssvikum bankamanna
fyrir hrun og umboðssvikum
bankamanna, sem í dag gauka
verðmætum eignum til sérval-
inna vina sinna án útboðs og á
vildarkjörum.
Skussar ársins –
eða ótíndir skúrkar?
970
milljónir settar í Quizup
Tölvuleikjaframleiðandinn Glu Mobile
Inc, sem sérhæfir sig í að framleiða
leiki fyrir snjalltæki, ætlar að fjárfesta í
íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Plain Van-
illa fyrir allt að 7,5 milljónir Bandaríkja-
dala sem samsvarar um 970 milljónum
króna. Glu og Plain Vanilla ætla m.a. að
vinna að þróun sjónvarpsþáttar QuizUp.
6,2
prósenta launahækkun
ASÍ og SA undirrituðu SALEK-sam-
komulagið sem gildir út árið 2018.
Samkvæmt samkomulaginu mun
almenn 6,2 prósenta launahækkun
taka gildi í stað 5,5 prósenta launaþró-
unartryggingar. Þá hækkar framlag
atvinnurekenda í lífeyrissjóð og verður
11,5 prósent í lok tímabilsins.
Þótt ritun sögu
ÁTVR sé lokið er
enn alveg óvíst
hvenær bókin
kemur út. Tíu ár
eru liðin frá því
að ritun sögunn-
ar hófst.
„ St a ð a n e r
þannig að verk-
efnið er þann-
ig séð búið,“
s e g i r S i g r ú n
Ósk Sigurðar-
dóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri
ÁTVR. Nú eigi einungis eftir að
taka ákvörðun um útgáfuna. „Það
verður að segjast eins og er að þessi
mikla umræða sem hefur verið um
afdrif fyrirtækisins hefur seinkað
þeirri ákvörðun. Ef ég á að vera
alveg hreinskilin,“ segir Sigrún Ósk.
Þar vísar hún í umræðu um afnám
á einkarétti Vínbúðanna á sölu
áfengis. Hún segir þessa umræðu þó
ekki einu ástæðu seinkunarinnar.
„En það er ekki því um að kenna.
Það væri ósanngjarnt. En það hefur
haft áhrif.“
Síðasta dag janúarmánaðar 2014
birti Fréttablaðið frétt um að kostn-
aður við ritun sögunnar yrði um 22
milljónir króna. Sigrún Ósk segir að
sú kostnaðaráætlun haldist nánast
óbreytt. Í fréttinni kom fram að
byrjað var að huga að ritun sögu
ÁTVR fyrir tíu árum, þótt kostnaðar-
áætlun hafi ekki verið gerð fyrr en
árið 2006. Í ávarpi forstjóra ÁTVR í
ársskýrslu verslunarinnar fyrir árið
2005 kom fram að áformað væri að
sagan kæmi út á árinu 2007, þegar
ÁTVR varð 85 ára.
Upphafleg kostnaðaráætlun, sem
gerð var árið 2006, gerði ráð fyrir að
ritun sögu ÁTVR kostaði 14,4 millj-
ónir króna. Sú upphæð rann öll til
fjögurra verktaka sem skrifuðu sög-
una. Fyrrverandi starfsmenn ÁTVR,
sem aðstoðuðu við ritun sögunnar,
fengu ekki greitt fyrir þá vinnu, að
því er fram kemur í svari ÁTVR við
fyrirspurn Fréttablaðsins.
Þrátt fyrir að verkið hafi dreg-
ist og ýmislegt breyst frá því að
ákvörðun um ritun sögunnar var
tekin, heldur Sigrún Ósk að sagan
verði gefin út. „Það er svo sem ekki
mitt nákvæmlega að ákveða það. En
ég held að hún verði gefin út,“ segir
Sigrún Ósk en bætir því við að það
sé ekki hægt að segja nákvæmlega
til um hvenær það gerist.
Kostnaður við verkið hefur ekki
farið fram úr áætlunum þótt tölurn-
ar í dag líti allt öðruvísi út en þær
gerðu þegar áætlun var gerð 2006.
Sé tekið tillit til verðlagsþróunar
frá árinu 2006 hljóðaði upphafleg
áætlun upp á 24,8 milljónir á verð-
lagi dagsins í dag.
jonhakon@frettabladid.is
Enn beðið með útgáfu
á sögu Vínbúðanna
Tíu ár hefur tekið að skrifa sögu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Allt óvíst
hvenær af útgáfu verður. Umræða um breytingar á sölu áfengis hefur haft áhrif.
Sigrún Ósk segir að þessi mikla umræða sem hefur verið um afdrif ÁTVR hafi seinkað ákvörðun um útgáfu. FRéTTablaðið/Valli
Sigrún Ósk
Sigurðardóttir
- Launavinnslur
- Bókhald
- Uppgjör
- Skattframtöl
Viðskiptaþjónusta PwC
2 7 . J a n Ú a r 2 0 1 6 M i ð V i K u d a g u r2 markaðurinn
2
6
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
7
-B
9
6
8
1
8
4
7
-B
8
2
C
1
8
4
7
-B
6
F
0
1
8
4
7
-B
5
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K