Fréttablaðið - 27.01.2016, Qupperneq 32
Fæstir huga að örygg-
ismálum fyrr en brotist
hefur verið inn. Tjónið
getur verið ómetanlegt.
Guðmundur S. Jónsson segir árásir og innbrot á vefi daglegt brauð.
Nokkur góð ráð til að
verjast árásum
1. Notaðu sterkt og afgerandi lykilorð sem auðvelt er að muna. Orðið
þarf að innhalda að minnsta kosti átta stafi sem bæði eru bók- og tölu-
stafir.
2. Ekki nota admin sem notandanafn í uppsetningu.
3. Lágmarkaðu innskráningar í stjórnborðið með því að láta þær ein-
göngu miðast við þína IP-tölu. Gott er að setja 25 sekúndna bið á not-
anda sem slær inn rangt lykilorð.
4. Notaðu rafræn skilríki eða snjallsíma við innskráningu. (island.is
eða clef).
5. Veldu örugga hýsingu hjá traustu fyrirtæki.
6. Mundu að setja inn reglulegar uppfærslur.
7. Taktu afrit reglulega.
Árásir og innbrot á vefi eru
daglegt brauð í okkar háþróaða
tæknisamfélagi. En svipuð lög-
mál gilda um netöryggismál og
heimaöryggis mál. Fæstir huga að
þeim fyrr en brotist hefur verið
inn. Tjónið sem af því hlýst getur
oft verið ómetanlegt og gjarn-
an kostað miklu vinnu. Af þeim
sökum þurfa öryggismál að vera
í föstum skorðum þegar vefsíður
eru annars vegar.
Að þessu leyti er sérhæfing ör-
yggismála okkar aðalsmerki. Þegar
kemur að því að verjast rafrænum
vágestum, þá er uppsetningin í
raun sérsniðin að þeim þörfum sem
skapast hverju sinni. Nærtækustu
dæmin eru eigin eldveggur ásamt
ýmsum viðbótum sem einfaldlega
loka á allar mögulegar ógnir sem
steðja að hverju sinni.
Í Wordpress eru fyrirliggjandi
ýmsar fleiri lausnir sem vert er
að benda á. Þannig er hægt að lág-
marka árásir með því að fjarlægja
sjálfgefna notandann (admin) og
setja inn í staðinn notandanafn-
ið kerfisstjóri. Hér ber að hafa í
huga að þó svo að Wordpress kapp-
kosti að uppfæra sín öryggismál þá
verða vefsíðueigendur að hafa vak-
andi auga yfir sínum tölvukerfum.
Þar má einu gilda hvort þau heita
Wordpress eða eitthvað annað.
veFlauSnir Kynningarblað
27. janúar 201610
um fyrirtækið
Tæknifyrirtækið Netheimur hefur
verið starfrækt í 17 ár og hefur á
þeim tíma byggt upp mikla sérhæf-
ingu á sviði reksturs tölvukerfa,
hýsingar og hugbúnaðarsmíði.
Starfsemin fer fram í vistlegu hús-
næði að Sóltúni 26. Þetta er mátu-
lega stór vinnustaður þar sem finna
má samhentan, glaðlegan og vinnu-
saman starfsmannahóp sem býr að
fjölbreyttum bakgrunni, menntun
og aldursdreifingu. Mannskapur-
inn er vel í stakk búinn til að svara
þeim kröfum og takast á við þær
áskoranir sem eingöngu fagmenn
eru færir um að leysa af hendi.
Leiðarstefið í allri vinnu Netheims
felst þó ávallt í því að kapp sé best
með forsjá. Hagur viðskiptavina er
hagur Netheims segir Guðmundur
Ingi Hjartar son framkvæmdastjóri.
lúllabúð
Lúllabúð er hugbúnaðardeild Net-
heims sem sérhæfir sig í hönnun og
uppsetningu á vefsíðum og „öppum“
fyrir snjallsíma. Hjá Lúllabúð leggj-
um við ríka áherslu á notendavæna
hönnun og viljum taka mið af not-
andanum í öllu okkar vinnuferli, allt
frá fyrsta fundi til lokaniðurstöðu.
Því er það markmið okkar að sníða
vörur að þörfum notenda, í stað þess
að láta þá aðlagast að okkar vöru.
Við rekum vefi og vefkerfi fyrir
fyrirtæki, stofnanir og einstak-
linga. Þau eru ýmist hýst hjá okkur
eða á öðrum stað. A ð því leyti felst
sérhæfingin í WordPress forrit-
un og hönnun fyrir vefsíður ásamt
rekstri á einu af rótgrónustu hýs-
ingarkerfum landsins undir merk-
inu XNET.IS. Meðal viðskiptavina
okkar eru vefir eins og Nútíminn,
Miðjan, Fréttanetið, Krónan, Nóa-
tún, Ellos og Lögregluvefurinn. Öll
þessi fyrirtæki hafa valið þá leið að
fara yfir í WordPress.
Veraldarvefurinn er í stöð-
ugri þróun og leggjum við mikið
upp úr því að kynna okkur nýj-
ustu tækni og aðferðafræði til
þess að teljast samkeppnishæf
innan markaðarins. Sum verkefni
krefjast sérlausna, sem verða til
þess að við könnum ótroðnar slóð-
ir og erum við með öllu óhrædd við
að feta þann veg.
Ekkert verk er of lítið eða of
stórt, enda koma viðskiptavinir
okkar úr öllum krókum og kimum
atvinnulífsins. Öll verkefni hafa
sína eiginleika og áskoranir sem
við leitumst eftir að takast á við
í nánu samstarfi við viðskiptavini
okkar. Ekkert veitir okkur jafn
mikla ánægju eins og að ganga
frá góðu verki þar sem allar óskir
viðskiptavinarins hafa verið upp-
fylltar.
Sérfræðingar í WordPress og öryggismálum
Lúllabúð er hugbúnaðardeild Netheims sem sérhæfir sig í hönnun og uppsetningu á vefsíðum og „öppum“ fyrir snjallsíma.
einföld ráð til að verjast vefsíðuárásum
mynd/STeFán
starfsfólk Netheims
hefur hannað, smíðað og sett upp
ýmsar sérhæfðar forritunar- og
kerfislausnir. Með því móti höfum
við veitt ýmsum fyrirtækjum
margháttaðan stuðning við
að hagræða í sínum rekstri.
Starfsmenn okkar búa yfir áralangri
reynslu og faglegri þekkingu
sem ávallt miðar að því að gæta
hagsmuna hvers viðskiptavinar
með persónulegri þjónustu.
2
6
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
4
7
-E
0
E
8
1
8
4
7
-D
F
A
C
1
8
4
7
-D
E
7
0
1
8
4
7
-D
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K