Lögmannablaðið - 01.07.1998, Blaðsíða 3
Íönnum Alþingis á síðustudögum þingsins urðu tugirfrumvarpa að lögum, eins og
venjulega. Þar á meðal var
frumvarp til laga um lögmenn,
en lögin munu taka gildi 1. jan-
úar 1999. Eins og félagsmenn
vita hófst undirbúningur aðlög-
unar félagsins að nýju lögunum
þegar á aðalfundi í marz með
kosningu nefndar til að endur-
skoða samþykktir og miðar því
starfi eftir áætlun. Áður hafði
síðasta stjórn skipað þrjá fyrr-
verandi formenn, Gest Jónsson,
Hákon Árnason og Þórunni
Guðmundsdóttur, í nefnd til
þess að endurskoða siðareglur
lögmanna.
Siðareglurnar eru að stofni frá
1960, en voru síðast endurskoðað-
ar árið 1991, en sífellt þarf að hafa
í huga, hvort þær svari kröfum tím-
ans. Jafnvel þótt menn séu þeirrar
skoðunar að til séu algild sannindi
og kröfur til siðlegrar hegðunar
breytist ekki í neinum meginatrið-
um, eins og ritari þessari lína, þarf
samt að taka tillit til breyttra að-
stæðna, nýrra krafna og nýrra
möguleika.
Ráð Evrópsku Lögmannafélag-
anna (CCBE) er að leggja loka-
hönd á endurskoðun siðareglna
sinna, sem gilda í samskiptum á
milli landa Evrópska Efnahags-
svæðisins og hljóta þær að verða
viðmiðun við setningu þeirra siða-
reglna, sem gilda munu innanlands
í löndunum. Þetta er eitt af því sem
veldur því að gæta þarf að endur-
skoðun siðareglna lögmanna nú.
Annað er að samkvæmt hinum
nýju lögmannalögum er sú skylda
lögð á hendur Lögmannafélagi Ís-
lands að setja félagsmönnum sín-
um siðareglur. Þriðja atriðið, sem
ég vil nefna er að samkvæmt
Mannréttindasáttmála Evrópu og
túlkun hans af Mannréttindadóm-
stólnum og nú Hæstaréttar Íslands
er tjáningarfrelsi manna í umræð-
um um opinber málefni miklu
meira en var, jafnvel fyrir fáum
árum. Dómstólarnir viðurkenna að
í lýðræðisríki sé hvöss gagnrýni
nauðsynleg til þess að frjó, opin og
beinskeytt umræða leiði til lýðræð-
islegrar skoðanamyndunar og bæti
ákvarðanatöku.
Í 18. gr. núverandi siðareglna
LMFÍ er í 1. mgr. kveðið á um það,
að lögmenn skuli sýna dómstólum
fulla tillitsemi og virðingu í ræðu,
riti og framkomu, en í 2. mgr. er
sagt, að gagnrýni á störf og starfs-
háttu dómstóla megi einungis hafa
uppi á faglegum og málefnalegum
grundvelli. Hér er að ýmsu að
hyggja. Siðareglurnar hafa lög-
menn sjálfir sett sér til þess að þær
bindi þá alla á þeim sviðum, sem
þær taka til. Hvort sem lögmönn-
um líkar betur eða ver eru þeir
skuldbundnir til þess að vera félag-
ar í Lögmannafélaginu og hlíta
siðareglum þess. Hvort sem lög-
mönnum líkar betur eða ver, hafa
þeir einnig einkarétt til málflutn-
ings fyrir dómstólunum (og í könn-
un meðal lögmanna veturinn 1996-
97 kom í ljós, að yfirgnæfandi
meirihluti þeirra var fylgjandi þess-
um einkarétti). Einkarétturinn legg-
ur lögmönnum ótvírætt ýmsar
skyldur á herðar, sem þægilegra
gæti verið að vera laus við. Ein
þessara skyldna er, að minni hyggju,
að gæta hófsemdar í orðalagi, þeg-
ar niðurstöður dómstóla eru gagn-
rýndar. Ekki svo að skilja, að mál-
efnaleg gagnrýni á dómsniðurstöð-
ur sé ekki alltaf og allstaðar heim-
il, jafnvel þótt einhverjum öðrum
en gagnrýnanda þyki hún vera
fjarri raunverulegum lögfræðileg-
um rökum. En lögmenn verða,
meðal annars í ljósi siðareglnanna,
að gæta að því að dómstólar geta
ekki svarað fyrir sig, eða að
minnsta kosti er venja hérlendis að
þeir geri það ekki. Dómarar líta
svo á, að þeir hafi með dómi sín-
3Lögmannablaðið
Jakob R. Möller, hrl.
Hvöss gagnrýni og siðareglur lögmanna
Lögmannafélag Íslands
Álftamýri 9, 108 Reykjavík
sími (telephone): 568-5620
bréfsími (telefax): 568-7057
tölvupóstur (E-mail): lmfi@tv.is
Stjórn L.M.F.Í.
Jakob R. Möller, hrl.,
formaður
Ásgeir Thoroddsen, hrl.,
varaformaður
Kristinn Bjarnason, hdl.,
ritari
Sif Konráðsdóttir, hdl.,
gjaldkeri
Sigurbjörn Magnússon, hrl.,
meðstjórnandi
Starfsfólk L.M.F.Í.
Marteinn Másson,
framkvæmdastjóri
Hildur Pálmadóttir, ritari
Blaðið er sent öllum félagsmönnum.
Ársáskrift fyrir utanfélagsmenn:
kr. 1.500 + vsk.
Verð pr. tölublað kr. 300 + vsk.
Prentun: Borgarprent h.f.
Umsjón auglýsinga:
Öflun ehf., sími 561-4440
Einkarétturinn
leggur lögmönnum ótví-
rætt ýmsar skyldur á
herðar ...
Jakob R. Möller,
hrl., formaður
L.M.F.Í.