Lögmannablaðið - 01.07.1998, Blaðsíða 22

Lögmannablaðið - 01.07.1998, Blaðsíða 22
22 Lögmannablaðið Þóknun lögmanns fyrir sölu fasteignar – ágreining- ur um vinnubrögð. Þóknun lögmanns, semjafnframt rak fasteigna-sölu, lækkuð vegna van- rækslu við sölu fasteignar. Í erindi sóknaraðila (S), sem barst stjórn L.M.F.Í., var farið fram á álit henn- ar á þóknun fyrir sölu fasteignar á vegum lög- manns (L), sem rak fast- eignasölu samhliða lög- mannsstofu. Kaupendur töldu sig hafa verið leynda upplýsingum um fyrirhug- aðar framkvæmdir á sam- eign og kröfðust skaða- bóta eða afsláttar. Seljandi og kaupandi sömdu sín á milli um 150.000 króna lækkun kaupverðsins og jafnframt um útgáfu afsals. S, sem greitt hafði L kr. 170.000 í söluþóknun, auk auglýsingakostnaðar og virðisaukaskatts, krafð- ist endurgreiðslu að hluta af söluþóknuninni og taldi sig ekki hafa fengið þá þjónustu hjá L við lausn ágreiningsins við kaupanda, sem búast hefði mátt við. L neitaði endurgreiðslu. S taldi sig hafa greitt fyr- ir þjónustu, sem hefði ekki verið innt af hendi, þ.e. fyrir lokafrágang og útgáfu afsals fyrir íbúð- inni. Þá taldi S þjónustuna hafa verið ófullnægjandi og leitt til tjóns fyrir sig. Ófullnægjandi þjónusta eða ráðgjöf, sem ylli sér tjóni, veitti sér rétt til að krefjast endurgreiðslu þóknunar að hluta eða öllu leyti. L hefði áskilið sér hæstu leyfilegu þókn- un, 2% af söluverði fast- eignarinnar. Yrði talið að L ætti rétt til þóknunar yrði að lækka hana veru- lega þar sem þjónustan hefði reynst ófullnægj- andi. L mótmælti staðhæfing- um um slæleg vinnubrögð og ófullnægjandi þjónustu sem röngum og meiðandi. Kjarni málsins hefði verið sá að S hefði leynt upplýs- ingum um fyrirhugaðar framkvæmdir. S hefði við- urkennt þetta í verki með því að veita afslátt af sölu- verði. S hefði skuldbundið sig til að veita tilteknar upplýsingar, þ. á m. yfirlit um stöðu hússjóðs auk upplýsinga um yfirstand- andi eða væntanlegar framkvæmdir, en vanrækt þá skyldu. Reynt hefði verið af hálfu fasteignasöl- unnar að jafna ágreining samningsaðila, án árang- urs. Ekki hefði staðið á því að ganga frá sölunni með því að útbúa afsal, sem reyndar hefði verið gert. Hefði það legið til- búið á fasteignasölunni. Eftir því hefði hins vegar ekki verið leitað af hálfu S og yrði hann að bera hall- ann af því. Að mati stjórnar L.M.F.Í. kom ekkert fram í málinu sem benti til þess að L eða starfsmenn fasteignasöl- unnar hefðu neitað samn- ingsaðilum um þá þjón- ustu að annast útgáfu af- sals og annan frágang. Samningsaðilar hefðu sjálfir ákveðið að annast útgáfu afsalsins án þess að leita liðsinnis L. Taldi stjórnin S því ekki eiga rétt til lækkunar á sölu- þóknun til L af þessari ástæðu. Stjórnin taldi, með vísun til 2. kafla laga um fast- eigna- og skipasölu, nr. 34/1986, þá skyldu hvíla á fasteignasala að hann afl- aði nauðsynlegra upplýs- inga um ástand fasteignar, þ. á m. upplýsinga um fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags. Gæti fasteignasalinn ekki skotið sér á bak við stöðluð ákvæði í söluumboði, þar sem seljandi tæki að sér að afla þessara upplýs- inga. Skylda fasteignasal- ans væri sjálfstæð að þessu leyti og þyrfti hann m.a. að standa kaupand- anum skil á upplýsingun- um. Jafnframt taldi stjórn- in ljóst að S hefði vitað um fyrirhugaðar fram- kvæmdir þó ekki væri ljóst að hve miklu leyti þeim upplýsingum hefði verið komið til kaupanda. Að mati stjórnar L.M.F.Í. vanræktu L og starfsmenn fasteignasölunnar skyldur sínar sem milligöngu- menn við sölu fasteignar S með því að afla ekki full- nægjandi upplýsinga um ástand hins selda húsnæð- is og fyrirhugaðar fram- kvæmdir á því. Ef upplýs- Úrskurðir og álitsgerðir stjórnar L.M.F.Í.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.