Lögmannablaðið - 01.07.1998, Qupperneq 13
innan tveggja vikna frá því að það
fékk úrskurð í hendur að það muni
ekki hlíta honum. Framanritað yfir-
lit um afgreiðslu mála upplýsir að
það er sjaldan sem vátryggingafé-
lag hafnar að hlíta niðurstöðu
nefndarinnar.
Það urðu nokkur tímamót í vá-
tryggingastarfsemi hér á landi á ár-
inu 1994. Það ár komu til fram-
kvæmda ný lög um vátrygginga-
starfsemi (nr. 60/1994), sem bæta
mjög réttarstöðu viðskiptavina vá-
tryggingafélaga. Athygli er t.d. vak-
in á VI. kafla laganna sem fjallar
um upplýsingaskyldu og val á lög-
gjöf um vátryggingasamninga. Í
annan stað var úrskurðarnefndinni
komið á fót í samstarfi stjórnvalda,
Neytendasamtaka og Sambands ís-
lenskra tryggingafélaga.
Ég tel að nefndin hafi skilað
góðu verki. Ekki er vitað um ann-
að en að almenn ánægja sé ríkjandi
með starfsemi hennar. Hún getur
leitt ágreiningsmál til lykta á tiltölu-
lega skömmum tíma þar sem til-
kostnaður er í lágmarki. Það er
fullvissa mín að nefndir líkt og Úr-
skurðarnefnd í vátryggingamálum
eigi rétt á sér. Þær stuðla að bættri
réttarstöðu aðila í víðtækri merk-
ingu.
13Lögmannablaðið
AÐFARARGERÐIR
eftir Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómara
Fæst hjá Bóksölu stúdenta og á skrifstofu L.M.F.Í.
—— o 0 o ——
Aðrar bækur útgefnar af Námssjóði L.M.F.Í.:
Dómar um bótaábyrgð hins opinbera 1920-1984
Dómar í félagarétti 1968-1988
Dómar í sjóréttarmálum 1965-1982
Dómar um veðréttindi 1920-1988
Dómar í skaðabótamálum 1973-1978
Dómar í skaðabótamálum 1979-1988
Dómar um almennt einkamálaréttarfar
Námssjóður Lögmannafélags Íslands
Úr
siðareglum
L.M.F.Í.
36. gr.
Lögmaður skal hafa góða
skipan á skrifstofu sinni,
vaka yfir störfum starfsliðs
síns og líta eftir því, að lög-
mannsfulltrúar fylgi góðum
lögmannsháttum.
Ber lögmanni að sjá til
þess, að bókhald skrifstof-
unnar, varsla fjármuna,
skjala og annarra gagna sé í
samræmi við lög og góða
venju í þeim efnum.
Lögmaður skal ekki láta
óviðkomandi hafa aðgang
að skjölum eða öðrum gögn-
um skrifstofunnar, er varðað
geta skjólstæðinga hans.
Sama regla gildir um
starfslið lögmannsins.