Lögmannablaðið - 01.07.1998, Page 14

Lögmannablaðið - 01.07.1998, Page 14
14 Lögmannablaðið Starfsemi lögmannafélaga íBandaríkjunum (BNA) erflestum lögmönnum á Ís- landi sjálfsagt framandi. Sam- skipti Íslands og BNA á sviði lögfræði er reyndar næsta tak- mörkuð, þar sem á yfirborðinu er um tvö ólík réttarkerfi er að ræða. Að því er sjá má hafa kynni íslenskra lögfræðinga af réttarkerfi BNA helst verið í tengslum við kynnisferðir á vegum félagasamtaka og svo umfjöllun fjölmiðla um ein- staka dómsmál, samanber Barnfóstrumálið á síðastliðnu ári. Sívaxandi straumur íslenskra lög- fræðinga í meistaranám (LLM- gráðu) í lögfræði til BNA hefur án efa aukið þekkingu og skilning á bandarískum lögum, og um leið innsýn í Common Law (dómvenju) réttarkerfi, eins og ríkir í fylkja- dómskerfinu, en minna í alríkis- dómskerfinu, þar sem áhrifa Civil Law (lögbóka) réttar gætir í sívax- andi mæli, að miðevrópskri fyrir- mynd. Í stuttri grein er enginn vegur að gera málefnum lögmannafélaga í BNA ítarleg skil. Af mörgu er að taka. Hins vegar verður staldrað við nokkra meginþætti í uppbygg- ingu samtaka lögmanna í BNA. Kynnt verða helstu atriði varðandi skipulag, félagaþjónustu, skyldu- aðild og eftirlitsvald yfir lögmönn- um. Er sjálfsagt forvitnilegt fyrir ís- lenska lögmenn að bera saman skipan þessara mála vestan hafs við það hvernig þessum málefnum er háttað í hinum nýju lögum um lögmenn, sem samþykkt voru af Alþingi fyrir skömmu. Skipulag lögmannafélaga Réttarkerfi BNA finnst flestum all flókið vegna greiningar þess í tvö mjög sjálfstæð og óháð réttarkerfi. Þetta eru annars vegar fylkjaréttur og hins vegar alríkisréttur. Í stuttu máli sagt þá hafa fylkjadómstólar almenna lögsögu í öllum málefn- um á sviði einka- og refsimála, en alríkisdómstólar hafa takmarkaða lögsögu og eru sett tiltekin vald- mörk í stjórnarskrá BNA og alríkis- lögum. Allir fylkjadómstólar eru þó bundnir í dómum sínum af for- dæmum Hæstaréttar Bandaríkj- anna og alríkislöggjöf, ef tiltekið svið heyrir undir alríkisvald sam- kvæmt stjórnarskrá BNA. Um málefni lögmanna og sam- taka þeirra fer samkvæmt lögum hvers fylkis. Þar er ekki alríkis- valdi til að dreifa, heldur er skip- an málefna lögmanna algerlega á forræði hvers fylkis. Eins og nánar verður greint síðar hefur þetta for- ræði aðallega verið falið hæstarétti fylkjanna og áfrýjunardómstólnum í District of Columbia, sem hefur sjálfstæða lögsögu í málum héraðs- ins, sem nær yfir Washington DC, að því er varðar lögmenn í því hér- aði. Verður í greininni aðallega vitnað í Lögmannafélag Flór- ídafylkis, en skipan þessara mála er nánast með sama hætti í öllum fylkjum BNA. Lögmannafélag Flórída er meðal þeirra allra fjölmennustu í BNA, með yfir 55.000 félagsmenn, þar af eru um 9.000 í Miami-héraði einu. Yfirstjórn lögmannafélagsins er í höndum forseta og viðtakandi for- seta, ásamt fylkisráði (Board of Governors), þar sem eru 51 fulltrúi, kosnir frá hverri hinna 20 þingháa í Flórída, ásamt fulltrúum félags- manna, sem búa utan fylkisins, og fulltrúum skipuðum af Hæstarétti Flórída. Fylkisráðið hefur eitt vald til að skipa málefnum lögmanna með þeim takmörkunum sem sett- ar eru í reglum um lögmannafélag- ið, ásamt ákvæðum í settum lögum og stjórnarskrá Flórída. Fylkisráðið hefur yfirumsjón með skrifstofu fé- lagsins og framkvæmdastjóra þess, hinum ýmsu ráðum og nefndum sem starfa innan félagsins (faghóp- ar) og fer með aga- og eftirlitsvald á fyrstu stigum þeirra mála. Lög- mannafélagið tilnefnir einnig meirihluta fulltrúa í prófráð, sem annast framkvæmd lögmannsprófa í Flórídafylki. Félagaþjónusta Lögmannafélagið annast rekstur á ýmissi þjónustu fyrir lögmenn. Margt af þeirri þjónustu fer sam- kvæmt ákveðnum reglum, sem Jón Ögmundsson, lögmaður að bandarískum rétti UM LÖGMANNAFÉLÖG Í BANDARÍKJUNUM Jón Ögmunds- son, cand.jur. frá HÍ, Juris Doctor frá Mi- a m i h á s k ó l a , lögmaður í Flórída 1995- 1998. ... er skipan málefna lögmanna algerlega á forræði hvers fylkis.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.